20.02.1985
Neðri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3078 í B-deild Alþingistíðinda. (2566)

230. mál, tekjustofnar sveitarfélaga

Guðrún Agnarsdóttir:

Herra forseti. Þetta mál, svo einfalt sem það virðist við fyrstu sýn, vakti hjá mér margar spurningar og ég hef reynt að leita svara við sumum þeirra. Ef svör mín reynast röng þá vildi ég biðja hv. flm. um að leiðrétta mig.

Á s.l. árum og áratugum hefur þróunin stefnt í þá átt að auðvelda þéttbýlisbúum að njóta kosta og hlunninda þeirra sem dreifbýlið hefur upp á að bjóða. Þess hefur þó ekki jafnframt verið gætt nægilega vel að tryggja sveitarfélögum tekjumöguleika í þessu sambandi. Það er áberandi og ógnvæn legur skortur á fjölbreytni atvinnuhátta víða á landsbyggðinni. Grundvallaratvinnuvegirnir, landbúnaður og sjávarútvegur, krefjast endurskipulagningar til þess að afrakstur þeirra geti talist tekjustofn, hvort heldur er fyrir sveitarfélög eða fyrir landið allt. Fólksflótti er þegar byrjaður úr dreifbýli í þéttbýli og tekjustofnar fámennra sveitarfélaga fara þverrandi. Þróunin hefur líka gengið í þá átt að minnka tekjumöguleika sveitarfélaganna. Má sem dæmi nefna lög, samþykkt á síðasta Alþingi, um lækkun fasteignaskatts af sumarbústöðum. Hlunnindi ýmiss konar, sem í landinu eru, hafa reynst drjúg tekjulind fyrir bændur og sveitarfélög. Þessir aðilar sitja þó ekki að þessum gæðum óskiptum heima í héraði því að ýmis hlunnindi eru mjög eftirsóknarverð af þéttbýlisbúum. Má sem dæmi nefna laxveiðiár. Ýmsar þær bestu eru, a.m.k. að hluta til, raunar í eigu þéttbýlisbúa sem eru búsettir utan þeirrar sveitar þar sem hlunnindin er að finna. Ég er samt engan veginn viss um hve marga aðila er hér um að ræða sem átt er við í frv. Þær jarðir sem að ánum liggja hafa verið keyptar háu verði og þeir leiguliðar sem á jörðunum búa eða aðrir hafa ekki bolmagn til að kaupa þær og nýta jafnframt í hefðbundinn búskap. Tregða eigenda til að leyfa framkvæmdin á jörðunum, sem þeir þyrftu síðan að kaupa af leiguliðum, veldur því að leiguliðar gefast upp á því að nytja jarðirnar. Tilhneigingin er því sú að jarðirnar leggjast í eyði og tekjur renna til eigenda frá hlunnindum eingöngu.

Hreppsfélagið hefur því engar útsvarstekjur af slíkum eyðijörðum en hefur haft sem svarar 4% skatts af virðingarverði hlunninda. Með frv. þessu er lagt til að þetta ákvæði verði fellt úr lögum og þar með tekjumöguleikar viðkomandi hreppsfélags af þessum hlunnindum.

Til eru ýmsar aðferðir við að meta fasteign. Söluaðferð dugar vel þar sem hlutirnir ganga kaupum og sölum og verðmæti má dæma af söluverði. Það á illa við um hlunnindi sem sjaldan ganga kaupum og sölum. Kostnaðaraðferð er ekki nothæf þar sem um er að ræða náttúruauðlind sem litlu hefur oft verið kostað til. Því hefur við fasteignamat á hlunnindum verið beitt svokallaðri tekjuaðferð, en þá er verið að reyna að gera sér í hugarlund verðmæti höfuðstóls með því að áætla ildi hans út frá þeim tekjum sem hann gefur af sér. Í því tilviki sem hér um ræðir er lögbundin sú reikningsaðferð að tífalda tekjurnar til að fá út verðgildi höfuðstóls. Þessi háttur skilst mér að hafi verið lögbundinn 1978 og tekur því engan veginn tillit til þeirra ávöxtunarkrafna sem nú gilda í þjóðfélaginu.

Það mætti spyrja hvort hlunnindi eins og t.d. drjúg laxveiðiá sé ekki vænlegri fjárfesting en t.d. ríkisskuldabréf þau sem nú eru á boðstólum. Hvort mundu hv. þm. fremur setja fé sitt í ef þeir ættu kost á að velja? Það mætti því líka e.t.v. spyrja hvort ætti ekki a.m.k. að tuttugufalda tekjurnar af slíkum hlunnindum, svo verðmæt sem þau eru og trygg fjárfesting. Það mætti enn fremur spyrja hvort hlunnindi eru ekki í reynd vanmetin sem eign hérlendis. Ef litið er á mat hlunninda á árinu 1984 kemur eftirfarandi í ljós-mig langar til þess að lesa upplýsingarnar sundurliðaðar effir landshlutum:

Það er þá Reykjanes með 90 staði og hlunnindamat í krónum er 199 millj. 752 þús. Það er Vesturland ásamt Vestfjörðum án Strandasýslu með 798 staði, 203 millj. 404 þús. kr. Síðan er Strandasýsla ásamt Norðurl. vestra og eystra með 1300 staði, 107 millj. 979 þús. Austurland með 254 staði, 16 millj. 623 þús. Suðurland með 841 stað, 84 millj. 98 þús. kr. Samanlagt gerir þetta 3283 staði á Íslandi öllu sem hafa heildarmat hlunninda upp á 611 millj. 866 þús. Og þetta gildir hvort heldur sem þessi hlunnindi eru í eigu utan- eða innansveitarmanna.

Nú vil ég benda hv. þm. á að í þetta 611 millj. 866 þús. kr. heildarmat hlunninda er síðan deilt með tíu til þess að fá út tekjurnar af hlunnindum á landinu öllu. Þá fæst talan rúmlega 61 millj. kr. Þetta er ekki ýkja há tala ef tekið er tillit til þess að þarna er um að ræða landið allt og þarna er innifalinn jarðvarmi auk lax- og silungsveiði, dúntekju, malarnáms, rekaviðar o.fl. o.fl.

Snúum okkur síðan að laxveiðinni eingöngu. Á hverju sumri eru leyfðir laxveiðidagar um 100. Gildir sú regla að öllum jafnaði að ódýrast er að veiða í byrjun og lok þessa tímabils, þ.e. fyrri hluta júní og síðari hluta ágúst, en langdýrast er um miðbikið þegar mest er af laxi. Tilhneigingin undanfarin ár hefur verið sú að gjöfulustu og skemmtilegustu árnar hafa verið leigðar útlendingum, að sögn fyrir ærið fé, a.m.k. um hámarkstímann. Hafa erlendir aðilar verið viljugir að greiða svo háa leigu fyrir sumar árnar að langflestir Íslendingar geta ekki við slíkt verð keppt. Veiðiréttur í þeim ám kemur því aldrei til úthlutunar fyrir Íslendinga, t.d. hjá Stangveiðifélaginu, a.m.k. ekki yfir hámarkstímann. Reyndar er verð á veiðileyfum mjög breytilegt, allt eftir árstíma, ám, veiðistað í á og svo eftirspurn eftir leyfum. Erfitt er að fá uppgefið verð á veiðileyfum í hinum dýrari ám en þar heyrist fleygt ævintýralegum tölum. Hins vegar eru aðrar ár sem þykja miðlungi góðar eða ágætar en eru ódýrari og Íslendingum býðst að veiða í. Má þar nefna sem dæmi Leirvogsá sem kostar 7200 kr. fyrir eina stöng í einn dag í júlímánuði. Grímsá kostar 7200 kr. fyrir eina stöng í einn dag í ágúst en þar eru 10 stangir. Sú á gefur því 72 þús. kr. á dag utan hámarkstíma eða rúmar 7 millj. kr. ef reiknað er með þessu lægra verði yfir alla 100 dagana. Eins og áður sagði var reiknað með rúmlega 61 millj. kr. í tekjur af hlunnindum á landinu öllu á s.l. ári. Við þurfum því ekki nema 10 meðalgóðar laxveiðiár, ekki nærri því á hámarksverði, til að fá út 70 millj. kr. í hlunnindatekjur á ári af þeim eingöngu. Og þá skulum við ekki gleyma að undan er skilinn jarðvarmi allur.

Finnst ykkur þetta ekki athyglisvert hv. alþingismenn?

Ástæður sem gefnar eru í frv. þessu til að réttlæta niðurfellingu ákvæðisins um 4% hlunnindaskatt eru í fyrsta lagi að skattur þessi mismuni þegnum eftir búsetu og brjóti þannig í bága við viðurkennda grundvallarreglu skattaréttar.

Í öðru lagi. Enn fremur að telja megi að hann sé andstæður eignarréttarákvæði stjórnarskrárinnar, þ.e. 67. gr., en þar stendur, með leyfi forseta:

„Eignarrétturinn er friðhelgur. Engan má skylda til að láta af hendi eign sína nema almenningsþörf krefji. Þarf til þess lagafyrirmæli og komi fullt verð fyrir.“

Í þriðja lagi er talið að hlunnindaeigendur beri gífurlega þunga skattbyrði þar sem þeir greiði bæði hlunnindaskatt og líka tekjuskatt og útsvar af hlunnindatekjunum í heimabyggð sinni. Gangi þetta svo langt að heildargreiðslan geti farið yfir 100% .

Í fjórða lagi. Enn fremur er þetta talinn vara refsiskattur sem letji frekari fjárfestingar og uppbyggingu eigenda t.d. við fiskeldi og ylrækt.

Hvað varðar aðra málsástæðu, þ.e. ákvæði um eignarréttinn, þá sé ég ekki að umrætt ákvæði þetta knýi menn til að láta eign sína af hendi. Hvað viðkemur svo þriðju málsástæðu, þar sem tiltekin er hin þunga skattbyrði hlunnindaeigenda, þá kem ég því bara hreint ekki heim og saman hve áfjáðir menn virðast vera í að eiga og halda hlunnindajörðum ef þeir þurfa síðan hreinlega að borga með sér til að eiga þær. Í þessu sambandi vil ég benda á þær tölur sem ég vitnaði til áðan, þar sem tíu miðlungs laxveiðiár, reiknaðar á verði utan hámarkstíma, gefa af sér sem svarar andvirði allra hlunnindatekna sem skráðar eru á landinu á s.l. ári. Ég verð því að segja að þegar ég ber saman málsástæður hreppsfélaga eða sveitarfélaga annars vegar og málsástæður hlunnindaeigenda hins vegar, þá finnst mér þær síðarnefndu ekki nægilega sterkar til þess að réttlæta niðurfellingu þessa ákvæðis um 4% hlunnindaskatt og get því ekki stutt þetta mál. Það er hins vegar spurning hvort ekki þurfi að hyggja nánar að því hve hlunnindi virðast vanmetin sem eign á Íslandi.

Hvað varðar fjórðu málsástæðuna, þá að þessi þunga skattbyrði letji, þetta sé refsiskattur sem letji frekar fjárfestingar og uppbyggingu eigenda t.d. við fiskeldi og ylrækt, þá tel ég sjálfsagt að koma til móts við ætlanir manna í þeim efnum á annan hátt.