20.02.1985
Neðri deild: 43. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3081 í B-deild Alþingistíðinda. (2567)
230. mál, tekjustofnar sveitarfélaga
Félmrh. (Alexander Stefánsson):
Herra forseti. Aðeins örfá orð. Ég skal ekki taka efnislega afstöðu til þessa máls. En ég vil vekja athygli á því að ríkisstj. hefur fyrir nokkru skipað nefnd, sem hefur verið tilkynnt opinberlega um, til þess að endurskoða lög um tekjustofna sveitarfélaga. Nefndin hefur þegar hafið störf.
Mér finnst ástæða til að vekja athygli á þessu vegna þess að menn eru væntanlega sammála um að það er löngu orðin þörf á að endurskoða gildandi tekjustofnalög. Það eru ýmsar breytingar orðnar í okkar þjóðfélagi sem beinlínis kalla á það, ekki síst það sem hefur verið að gerast og á eftir að gerast í þá átt að endurskipuleggja verkaskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga. Jafnhliða þessari endurskoðun á lögum um tekjustofna sveitarfélaga hefur verið ákveðið að taka fyrir ákveðin verkefni, sem ríki og sveitarfélög koma sér saman um að taka til endurskoðunar á þann veg að um verkefnaflutning, tilflutning á annan hvorn veginn verði að ræða, og er að sjálfsögðu gert ráð fyrir því að eðli tekjustofna breytist í samræmi við það. Þetta er ákvörðun sem þegar er komin til skoðunar. Ég hefði þess vegna talið að svona tillöguflutningur eins og hér kemur fram um núgildandi lög hefði átt að falla inn í þessa heildarendurskoðun. Ég geri þá athugasemd til flm. þessarar till.
Hins vegar vil ég geta þess að mér hefði fundist ástæða til, þar sem rökstuðningur fylgir hér í grg., að flm. hefðu aflað sér upplýsinga um heildarfjárhæð þeirra tekna sem sveitarfélögin hafa fengið í gegnum þetta ákvæði tekjustofnalaga. Þess er hvergi getið í grg. en miðað við uppsetningu hennar mætti ætla að hér væri um að ræða gífurlegar fjárhæðir sem sveitarfélögin væru að taka í sinn hlut af þessum skattstofni. Mér finnst ástæða til að benda mönnum á þetta. Þó að ég hafi þessar upphæðir ekki með mér á þennan fund þá er auðvelt að afla þeirra með því að hafa samband við Samband ísl. sveitarfélaga sem hefur allar upplýsingar hvað þetta varðar. En það er eigi að síður innlegg í þetta mál.
Ég vil í þessu sambandi geta þess að þegar þessi ákvæði tekjustofnalaga voru tekin í lögin þá var það fyrst og fremst gert til þess að styrkja litlu sveitarfélögin, fámennu sveitarfélögin sem raunverulega hafa ekki fjölbreyttari tekjustofna en allir þekkja, en hafa þarna vissa möguleika, ef vel er á haldið, til þess að fá nokkurn tekjuauka þó að misjafnlega hafi gengið í framkvæmd að ná þeirri tekjuaukningu til sveitarfélaganna sem þau höfðu vænst af þessu lagaákvæði.
Ég vil svo taka undir með hv. síðasta ræðumanni, 3. landsk. þm. Það var ýmislegt í málflutningi hv. þm. sem á vissulega heima í þessum umræðum og ýmsar upplýsingar og ábendingar sem hún kom með sem ég tel athyglisverðar. Ég hefði viljað beina því til hv. 3. landsk. þm. að senda þessar ábendingar til umræddrar nefndar, sem er að störfum, sem innlegg í þær umræður sem vissulega þurfa að fara fram og þá vinnumeðferð sem þessi nefnd á að fjalla um. Það er ákaflega þýðingarmikið, ekki síst fyrir framtíð sveitarfélaganna og yfirleitt til þess að tryggja stöðu þeirra í stjórnkerfinu, að á þessum málum sé tekið á réttan hátt.
Ég get getið þess hér, af því að ég held ég muni það rétt, að í nefndinni eiga sæti Húnbogi Þorsteinsson skrifstofustjóri í fjmrn., sem er formaður nefndarinnar, Jón Kristjánsson alþm., Magnús E. Guðjónsson frá Sambandi ísl. sveitarfélaga, Björn Friðfinnsson formaður Sambands ísl. sveitarfélaga, Ævar Ísberg borgardómari, Elsa Kristjánsdóttir oddviti í sandgerði og Jón Þorgilsson oddviti á Hellu.
Ég hef ekki meira um þetta mál að segja en ég tel að það sé þess eðlis að það ætti að falla inn í þá heildarendurskoðun sem þegar er hafin á lögum um tekjustofna sveitarfélaga.