21.02.1985
Sameinað þing: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3110 í B-deild Alþingistíðinda. (2595)

232. mál, framleiðni íslenskra atvinnuvega

Flm. (Gunnar G. Schram):

Herra forseti. Ég hef leyft mér að bera fram till. til þál. á þskj. 305 um átak til að auka framleiðni íslenskra atvinnuvega. Meðflm. þessarar þáltill. eru Guðmundur J. Guðmundsson, Karvel Pálmason, Pétur Sigurðsson og Stefán Guðmundsson. Ég vil, með leyfi hæstv. forseta, leyfa mér að lesa tillögutextann:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að leita eftir samvinnu við heildarsamtök vinnumarkaðarins um að hrinda af stað átaki til að auka framleiðni íslenskra atvinnuvega með eftirfarandi markmið að leiðarljósi:

1. að leggja grundvöll að endurnýjuðum hagvexti og þar með stuðla að jafnvægi í efnahagsmálum;

2. að skapa forsendur fyrir þjóðarsamstöðu um að auka það sem til skipta er í þjóðfélaginu og deila þeim ávinningi af réttsýni;

3. að efna til þríhliða samvinnu ríkisvalds, launþega og atvinnurekenda um að bæta efnahag þjóðarinnar og innleiða ný vinnubrögð í samskiptum aðila á vinnumarkaðinum;

4. að kynna þjóðinni grundvallaratriði framleiðni hugsunar og skapa skilning á nauðsyn aðlögunar að síbreytilegum samkeppnisaðstæðum fyrir íslenskt atvinnulíf.“

Í till. er gert ráð fyrir að ríkisstj. skipi níu manna stjórnarnefnd til að stýra framkvæmd þessa átaks. Verði hún skipuð þremur fulltrúum samtaka vinnuveitenda skv. tilnefningu Vinnuveitendasambands Íslands, þremur fulltrúum launþega skv. tilnefningu Alþýðusambands Íslands og þremur fulltrúum ríkisvaldsins sem forsrh. skipar að höfðu samráði í ríkisstj. Forsrh. skipi formann stjórnarnefndarinnar úr hópi nefndarmanna.

„Enn fremur ályktar Alþingi að framleiðniátak þetta verði unnið í tengslum við Iðntæknistofnun Íslands og jafnframt tengt öðrum tilraunastofnunum atvinnuveganna. Þá verði leitað aðstoðar annarra opinberra stofnana (rannsóknastofnana, skóla og fjölmiðla) eftir því sem verkefni bjóða hverju sinni. Þjóðhagsstofnun verði falið að fylgjast með þróun framleiðni í atvinnuvegunum samhliða átakinu.

Loks ályktar Alþingi að átak þetta verði hafið á árinu 1985“ þ.e. á þessu ári „og að eitt fyrsta verk stjórnarnefndar verði að skila ítarlegri till. til ríkisstj. um nánari tilhögun og framkvæmd málsins. Verði sú till., ásamt greinargerð um ákvörðun ríkisstj. um framkvæmd málsins, lögð fyrir Alþingi og við byrjun þings haustið 1985“.

Þetta er tillögutextinn og af honum má nokkuð ljóslega sjá hvert er efni og hver er tilgangur með þessum tillöguflutningi.

Við þær aðstæður sem nú ríkja í íslensku efnahagslífi er brýn nauðsyn á að koma að nýju á hagvexti. Það er kunnara en frá þurfi að segja að á síðustu þremur árum hefur þjóðarframleiðsla, hagvöxturinn, dregist saman og verið neikvæð ólíkt því sem var á árunum þar áður. Hefur svo rammt að þessu kveðið að eitt árið af þessum þremur minnkaði þjóðarframleiðslan á mann um 5.5%. Það er fyrst á þessu ári að örlítil batamerki eru í sjónmáli eftir þetta samdráttarskeið. Þjóðhagsstofnun spáir því að þjóðarframleiðsla muni aukast um 0.5% á þessu ári, en það er aðeins spá og ekki séð fyrir hvort hún muni ganga eftir. Það er því augljóst að við verðum að leita ýmissa leiða til að auka þjóðarframleiðsluna. Þar koma ýmis úrræði til greina; stuðningur við nýjar atvinnugreinar, sem nú eru á tilraunastigi, aukning á grundvelli stóriðju o.s.frv.

Sá kostur sem þó er e.t.v. einna nærtækastur og gæti fyrst skilað árangri er að auka framleiðni í þeim fyrirtækjum sem eru starfandi í landinu í dag og stuðla þannig að bættri samkeppnisstöðu og arðbærari rekstri fyrirtækjanna. Þetta er að dómi flm. eitt brýnasta verkefnið í íslensku atvinnulífi nú og undirstaða þess að hægt sé innan skamms tíma að bæta lífskjör í landinu ef á heildina er litið og bæta úr þeim samdrætti sem orðið hefur á síðustu árum. Með þessum tillöguflutningi er lagt til að stjórnvöld hrindi af stað átaki í þessu efni í samvinnu við heildarsamtök vinnumarkaðarins.

Auk hins efnahagslega ávinnings sem fengist af aukinni framleiðni í íslenskum fyrirtækjum sem starfandi eru í dag, gæti átak í þessum efnum orðið grundvöllur, og það er kannske ekki síst mikilvægt, að bættum samskiptum aðila vinnumarkaðarins og stjórnvalda, en ég hygg að fáum blandist hugur um að nauðsyn er slíkra bættra samskipta í íslensku þjóðfélagi í dag. Um nokkurt skeið hefur verið lýst eftir breyttum vinnubrögðum í þessum efnum og gætu nú verið aðstæður til að hefja samvinnu um það mál skömmu eftir að nýlokið er samningum milli aðila vinnumarkaðarins og raunar skömmu áður en slíkir samningar hefjast aftur á nýjan leik á þessu vori.

Hér er því í hnotskurn gerð till. um að við nýtum tækifæri í íslenskum atvinnuvegum, í starfsemi íslenskra fyrirtækja, betur og gjörr en verið hefur á liðnum árum, þannig að afraksturinn af hinum efnahagslegu þáttum í atvinnuvegunum verði meiri án þess að um sérstakan og aukinn tilkostnað sé þar að ræða. Hér er um framleiðsluþætti að ræða sem vitanlega eru alkunnir. Það er vinnuaflið, fjármagnið, hráefnið og orkan sem hér skipta mestu máli. Það má t.d. auka framleiðnina með því að bæta hráefnisnýtingu eða með því að nýta fjármagnið á arðbærari hátt en áður var gert. Ekki er vanþörf á þessu síðasta í íslenskum fyrirtækjum.

Framleiðnistig iðnaðarþjóða heimsins er mjög mismunandi. Í þessu efni er kannske ekki úr vegi að við gerum okkur mjög stuttlega grein fyrir því hvar við Íslendingar erum staddir í þessum efnum miðað við aðrar þjóðir og þá vitanlega fyrst og fremst nágrannaþjóðirnar. Má þar m.a. vísa til OECD-þjóðanna. Þá kemur, ef á heildina er litið, í ljós að framleiðni í íslenskum fyrirtækjum er tiltölulega lítil hér á landi. Við stöndum aftarlega í þessum efnum. Það þýðir einfaldlega að arðbærni íslenskra atvinnuvega er ekki jafnmikil og sambærilegra atvinnuvega hjá öðrum þjóðum. Hún gæti verið mun meiri. Því er þetta átak lagt til. Ef hún væri mun meiri mundi það skila meiri tekjum, ekki aðeins til starfsmanna fyrirtækjanna, launþega, og eigenda, sem er í sjálfu sér meginatriðið, heldur einnig til þjóðarbúsins alls.

Í fskj. og í grg. með þáltill. eru birtar tölulegar upplýsingar sem gera kleift að bera saman framleiðnistig þar sem íslenskir atvinnuvegir standa á í dag við aðrar þjóðir. Hér eru upplýsingar um ellefu þjóðir. Ef við miðum við að framleiðni á Íslandi árið 1976 hafi verið 100, þá sést þar að framleiðni var svipuð á Íslandi og í Bretlandi á þeim tíma, en framleiðni í þessum tveimur löndum var helmingi minni en framleiðni í Bandaríkjunum. Það er ekki nóg með að framleiðni sé lítil hér á landi, eins og ég vék að, heldur hefur framleiðniþróunin verið mjög hæg á undanförnum árum.

Það kemur í ljós, ef við lítum á tölur í þessum efnum, að framleiðniþróun var langörust í Svíþjóð, Danmörku, Vestur-Þýskalandi og Frakklandi á undanförnum árum, mun örari en á Íslandi. Það má segja að við séum á svipuðu stigi og Bretland í þessum efnum og erum þar í hópi þeirra ellefu þjóða sem hér eru teknar sem dæmi. Flestar eru þær Evrópuþjóðir. Við erum hér ásamt Bretlandi lægstir hvað framleiðniþróun snertir.

Ef við lítum sérstaklega á iðnaðinn, framleiðniþróun vinnuafls í iðnaði á tímabilinu frá 1974–1982, kemur í ljós að framleiðni í íslenskum iðnaði á þessu tímabili hefur aukist að meðaltali úr 89.2 stigum á árinu 1974 í 104 stig á árinu 1982. Þetta þýðir að framleiðniaukningin í íslenskum iðnaði hefur verið um 2% á ári. Það er svipað og árleg framleiðniaukning í Bretlandi á sama tíma. Ef við lítum hins vegar á lönd eins og Frakkland, Vestur-Þýskaland og Belgíu er framleiðniaukningin helmingi meiri eða um 4% á ári á þessu tímabili, en ekki nema um 1% í Bandaríkjunum og Kanada. En þar er hún í heild miklu meiri og þess vegna er kannske eðlilegt að hún hafi aukist hægar í þessum tveimur síðast földu löndum. Þetta bendir til að framleiðnistig á Íslandi hafi síður en svo hækkað í samanburði við aðrar þjóðir frá árinu 1976, en ég nefndi tölur um það áðan.

Þegar við lítum á þessar staðreyndir, sem sýna að við erum nálægt botninum í þessum efnum, kemur í ljós að það er full ástæða til að grípa til sérstakra ráðstafana. Það er skoðun flm. þessarar þáltill. að átakið til þess að auka framleiðni íslenskra atvinnuvega, þar sem við mundum hafa hliðsjón af reynslu annarra þjóða, gæti reynst árangursrík leið til að skapa þjóðarsamstöðu um að koma á ný á hagvexti hér á landi og stuðla að jafnvægi í efnahagsmálum, sem svo mjög er um rætt í þingsölum sem utan þeirra á síðustu mánuðum. Jafnframt gæti slíkt sameiginlegt átak skapað nýjar forsendur fyrir samskiptum aðila vinnumarkaðarins. Það er, eins og ég nefndi í upphafi máls míns, kannske ekki síst mikilvægt og eitt meginatriði þessa tillöguflutnings.

Það er hin þríhliða samvinna beggja aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins sem er undirstöðuatriði þess að árangur náist. Í upphafi þarf að setja mjög vandaðar leikreglur um hvernig skipta eigi ávinningi af aukinni framleiðni og bregðast við afleiðingunum sem gætu verið röskun á störfum og högum fólks vegna breytinga á tækni og vinnuaðferðum, en slíkar breytingar eru óhjákvæmilega forsenda allrar framleiðniaukningar.

Það er skoðun flm. að þetta framleiðniátak þurfi að ná til allra höfuðatvinnuvega landsmanna en ekki einskorðast við einstakar atvinnugreinar. Það er þess vegna sem gert er ráð fyrir að ríkisstj. í heild eða forsrh. fyrir hennar hönd hafi frumkvæði um að skipa þá stjórnarnefnd sem á að stýra framkvæmd þessa átaks.

Þetta er, herra forseti, í meginatriðum efni þessarar þáltill. Aðalatriðið er að arðbærni og arðgefni atvinnuvega sem fyrir eru í landinu verði mun meiri. Reynslan frá öðrum þjóðum og fordæmi hefur sýnt að framleiðni er þar verulega meiri en í íslenskum atvinnuvegum. Það ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að við nýtum betur fjármagn, hráefni og afl vinnunnar í náinni samvinnu aðila vinnumarkaðarins og ríkisvaldsins. Það er kjarni málsins.