25.02.1985
Efri deild: 46. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3154 í B-deild Alþingistíðinda. (2640)
323. mál, iðnþróunarsjóðir landshluta
Helgi Seljan:
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. flm. fyrir vandaða og góða framsögu fyrir sínu máli þar sem margt var skynsamlega rætt um okkar atvinnulíf og vanda þess út um landsbyggðina. Það má hins vegar taka undir með hæstv. iðnrh. að hér er um háar upphæðir að ræða og þarf eflaust að huga þar vel að, sérstaklega varðandi skattlagninguna á raforkuna sem er vissulega allt of dýr í dag. En þegar rætt er um iðnþróun úti á landsbyggðinni, þá er ástæða til að leggja þar nokkuð jákvætt til málanna, en það þótti mér ekki áberandi í máli hæstv. iðnrh. svo sem hefði þó mátt vænta frá honum í hans innleggi. Þetta einstaka mál, sem hér er reifað, er allra athygli vert þó ég hefði viljað sjá það í öðrum búningi varðandi tekjuöflun. Ég veit um þörf sveitarfélaga, félaga og einstaklinga á fjármagni til uppbyggingar og aðgerða af þessu tagi. Það fer ekki milli mála og það ber því að skoða jákvætt, held ég, allar leiðir að því marki að auka möguleikana á iðnaðartækifærum úti á landi þar sem hugvit og verkkunnátta eru fyrir hendi, en afl þess sem gera skal, þ.e. fjármagnið, skortir.
Það sem ég hefði viljað sjá til viðbótar skatti á raforkuverin, sem ég hygg að mætti hafa einhvern fyrirvara á um upphæð, því man ég eftir reyndar úr tillögum Halldórs Arnasonar, þá iðnráðgjafa á Austurlandi, frá 1981. Þar minnir mig eitthvað standa um tekjur til iðnþróunarsjóða á þann veg, með leyfi virðulegs forseta: Ákveðinn hundraðshluta af veltu stóriðjuvera og virkjana í fjórðungnum. Hér er sem sagt sú hugsun sem hv. flm. er með.
Í frv. um kísilmálmverksmiðjuna á Reyðarfirði var gert ráð fyrir þessu, þ.e. að 1/4 af aðstöðugjaldstofni eða samsvarandi aðstöðugjaldstofni færi til iðnþróunarsjóðs Austurlands, en það frv.-ákvæði náði ekki í gegnum þingið þannig að lögin um kísilmálmverksmiðjuna eru án þess arna. Ég mundi sem sagt vilja bæta við ákveðnum hlut stóriðjunnar inn í þetta dæmi og draga þá úr hlut raforkuveranna sem því næmi. Ég kem aðeins með þetta til ábendingar.
Þegar um iðnþróun í landshlutunum er rætt er ekki hægt annað en að minnast á löggjöfina um iðnráðgjafana sem sett var í tíð síðustu ríkisstjórnar. Það starf sem þar hefur verið innt af hendi hefur reynst dýrmætt víða. Það er ekki áhlaupaverk á ferðinni þar. Mikið verk er að vinna og vart á eins manns færi í víðlendum landshluta þar sem byggðarlögin bíða öll eftir fjölbreytni þeirri sem iðnfyrirtæki geta skapað þeim.
Ég hygg líka að hollt væri að Alþingi færi að taka iðnaðarstefnuna í heild til umr. Hér var að forgöngu fyrrverandi iðnrh. samþykkt stefnumótun í iðnaðarmálum og þar er um margþætt verkefni að ræða. Að sumum er eflaust unnið, önnur bíða eflaust og sitja á hakanum eins og gengur. Um framkvæmd þeirrar stefnumótunar hefur hæstv. núverandi iðnrh. gleggsta yfirsýn. Hæstv. iðnrh. á að hafa gleggsta yfirsýn yfir það sem verið er að vinna í hans rn. hvað þetta snertir, hins vegar mun hann hafa fengið nýlega um það formlega fsp. og því bíð ég með að spyrja hann um það enda var hann mjög öruggur þegar hann gekk úr salnum um að ég mundi ekkert eiga vantalað við sig.
Málið er stórt í heild sinni. Hvert skref sem þar yrði stigið mundi auðvelda atvinnurekstur og skapa nýjan og traustari grunn úti í byggðunum. Það er af hinu góða svo sem hér er stefnt að.
Þegar ég tala um byggðirnar er ég einnig að tala um sveitirnar minnugur þess að ég flutti og fékk hér samþykkta till. um smáiðnað í sveitum sem ég veit að unnt er að gera sitthvað í ef menn vilja snúa sér að því í alvöru. Það mál mun því miður hafa fengið lítinn eftirrekstur, og kannske okkur flm. þeirrar till. eitthvað að kenna að hafa ekki rekið betur á eftir en raun ber vitni. En þar er um ýmsa möguleika að ræða og kom best í ljós þegar Framkvæmdastofnun kannaði viðhorf hinna smærri sveitarfélaga að það var virkilegur áhugi á því að taka á einhverjum smærri verkefnum sem gætu hentað vel til að vernda byggðina í sveitum landsins. Iðnráðgjöf, iðnþróunarsjóðir sem legðu til fjármagn og framtak fólksins gæti allt áorkað miklu þó þungt sé víða undir fæti. En margt er þó gert.
Ég get ekki stillt mig um að nefna ljós dæmi úr mínu eigin byggðarlagi um þessi atriði. Ég nefni þar mjög öfluga og að mörgu leyti fjölbreytta kjötiðnaðarstöð sem þar tók til starfa. Kaupfélagið á staðnum, sem hafði alla burði til þess arna taldi ekki á sínum tíma möguleika fyrir slíkri vinnslu, en þessi vinnsla vinnur nú fyrir Austurland að meginhluta og ég hygg að það sé ekki of sagt að þar séu 12–14 starfskraftar miðað við fullan vinnudag. Ég nefni annað dæmi þar. Brauðgerð sem menn höfðu ekki heldur trú á á sínum tíma, annar nú miklum hluta Austurlands og hefur 6–8 manna starfslið. Það munar um minna en 20 manns í 70 manna byggðarlagi sem fær þannig atvinnu við að vísu mjög hefðbundinn iðnað, úrvinnsluiðnað eins og kjötiðnaðinn. Það munar verulega um það og er mjög til góðs vegna þess að í kjötiðnaði hefur líka verið fitjað upp á ýmsum nýjungum og mundi vera enn frekar gert ef fjármagn væri fyrir hendi til að þróa þann iðnað. Í kjötiðnaðinum er ég sannfærður um að við eigum mikla möguleika ef við vinnum þar bæði að framleiðslumálum og kannske enn frekar að markaðsmálum meira en gert er. Þetta er unnt að gera. Ég nefni merkilegt dæmi sem ég veit að er núna á döfinni í Breiðdal, því litla byggðarlagi, sem gæti skapað fötluðum og öldruðum vinnu — atriði sem mér hefði varla dottið í hug að gæti átt sér stað en er býsna vænlegt þegar betur er skoðað — sérstæða leikfangagerð, svokölluð þroskaleikföng, sem þar væri unnt að framleiða en annars eru innflutt fyrir býsna mikinn pening.
Öll þessi átök þarfnast stuðnings og örvunar og því held ég að frv. af þessu tagi, sem hreyfir við máli þessu, sé vert allrar skoðunar með jákvæðu hugarfari ef það mætti verða til þess að þrýsta á enn frekari aðgerðir til eflingar þessa nauðsynlega þáttar sem við verðum að taka á í enn ríkari mæli og með enn meiri fjölbreytni í huga en við höfum þegar gert.