25.02.1985
Efri deild: 46. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3164 í B-deild Alþingistíðinda. (2651)

293. mál, sala Gullaugans og Áburðarverksmiðjunnar

Stefán Benediktsson:

Virðulegi forseti. Ég er flm. að þessari till., en á ekki sæti í þeirri n. sem væntanlega fjallar um hana þannig að mér finnst nauðsynlegt að ég lýsi mínum skoðunum í þessu máli.

Ég get ekki með nokkru móti samþykkt þá röksemd, sem fram kom í máli hæstv. ráðh., að það sé ekki nema tvennt til: annars vegar að selja og dreifa kartöflum með því móti sem nú er gert og hins vegar að kartöflubændur þurfi að bera kartöflurnar á bakinu til hvers neytanda fyrir sig. Ég hélt og held enn og held lengi við þá trú að við lifum í lýðfrjálsu landi þar sem menn geti bundist samtökum um hagsmuni sína þegar þeir vilja svo við hafa án íhlutunar ríkisvaldsins. Ég tel að sú tilraun sé vel þess virði að reyna að breyta sölu- og dreifingarmálum með þeim hætti að hið opinbera láti af afskiptum sínum, bæði af dreifingu og verðlagningu þessarar vöru, og að kartöflubændur reyni að framleiða, selja og dreifa þessari vöru sinni með þá grundvallarhugsun að leiðarljósi að framleiðslan sé í takt við þörfina annars vegar og verðlagið fari eftir eftirspurn hins vegar. Ef svo mikil þörf er fyrir þessa framleiðslu, sem allir vilja halda fram og flestallir trúa og ég líka, get ég ekki séð að menn séu að hætta á neitt stórt í þessu, hvorki um afkomu sína né varðandi fjárfestingar.

Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei getað sætt mig við þá grundvallarröksemd fyrir tilvist bændastéttarinnar í þessu landi að hún þarfnist offramleiðslu. Offramleiðslan er sá „samkomulagsendi“ sem beitt er þegar bændur og hið opinbera, þ.e. ríkisvaldið, eru að semja um afkomu þeirra. Við höfum upplifað að landeigendur hafa afsalað sér sínum sterka rétti, þ.e. samningsréttinum, í hendur ríkisvaldsins gegn þeirri tryggingu af ríkisvaldsins hálfu að það ábyrgist lágmarksafkomu bændastéttarinnar. Þetta er rökstutt þannig að við getum ekki án þessarar framleiðslu verið þar sem hún sé nauðsynleg fyrir lífsafkomu okkar sem þjóðar og taka allir menn undir þá röksemd út af fyrir sig. En tilfellið er að hún hefur ekki enn þá verið sönnuð með þeirri tilraun t.d. að framleiða einhvern tíma of lítið en ekki of mikið. Ég held að með þeirri tilraun fengist raunveruleg niðurstaða í gildismati okkar á þessari framleiðslu og nauðsyn hennar fyrir þjóðarbúið.

Hvað hinn hluta þessarar till. varðar, þ.e. sölu Áburðarverksmiðju ríkisins, þá er ég henni líka hlynntur. Við stöndum þar frammi fyrir íslenskum vanda. Almenningshlutafélög eru fá og mjög erfitt hér á landi að koma þeim upp. Ég tel að það sé mjög verðugt verkefni fyrir löggjafarvaldið að reyna á næstunni að gera sér grein fyrir því hvers vegna við getum ekki byggt upp á Íslandi efnahagslíf með svipuðum hætti og tíðkast í nágrannalöndum okkar og viðskiptalöndum, þ.e. hvers vegna almenningur í þessu landi getur ekki orðið virkur þátttakandi í atvinnulífi með því að festa fjármuni sína í því.

Hluta þessarar skýringar er að finna í afkomu Íslendinga almennt sem einstaklinga. En hinn hlutinn liggur að einhverju leyti í fjárfestingarstefnu í öðrum málaflokkum. Við vitum, eins og ég hef oft minnst á í þessum ræðustól, að mjög miklu af okkar fjármagni er stýrt af því opinbera til fjárfestingar og þá ekki allt eftir hagkvæmni svo ég segi nú ekki meira. En það er annað atriði sem skiptir kannske ekki minna máli þegar á er horft. Það er að flestallir stjórnmálaflokkar á þessu landi hafa, a.m.k. um tveggja eða þriggja áratuga skeið, stutt mjög eindregið þá stefnu að allir Íslendingar væru sjálfir eigendur að sínu húsnæði. Þetta er atriði sem hljómar mjög þekkilega þegar á er hlustað, en við getum samt sem áður leitt að því vissar líkur að þar sem allir landsmenn hafa fest peninga sína að miklu leyti í steinsteypu á undanförnum árum hefur örugglega minna orðið eftir í þeirra pyngju til að leggja í fjárfestingar í atvinnulífi, í t.d. hlutafélögum eða eftir öðrum leiðum sem fyrir hendi eru. Það sem rökstyður þetta einna best og í sem stystu máli er að þegar við horfum til nágrannalanda okkar, alveg sama hvert þeirra það er, hefur hvergi verið framfylgt sjálfseignarstefnu í húsnæðismálum af jafnmikilli einurð og hér á Íslandi, en þar er aftur á móti alls ekki óalgengt að fólk sem m.a.s. gegnir störfum sem að okkar mati teljast láglaunastörf, þ.e. í iðnaði eða einhverju því um líku, getur lagt fyrir og leggur fyrir fé og það fjárfestir m.a. í hlutabréfum í gegnum fjárfestingarsjóði sem bjóða þau til sölu. Það er ekkert óalgengt að venjulegir launþegar eigi þó nokkuð góða tryggingu til ellidaganna í slíkum fjárfestingum.