25.02.1985
Neðri deild: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3168 í B-deild Alþingistíðinda. (2656)

283. mál, eftirlit með matvælum

Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):

Herra forseti. Þetta frv., sem hér liggur frammi, er til breytinga á matvælalöggjöfinni. Er sú löggjöf að grunninum til frá árinu 1936. Er frv. flutt að beiðni Hollustuverndar ríkisins og heilbrigðiseftirlits sveitarfélaganna í þeim tilgangi að Heilbrigðiseftirlitið geti starfað á þann hátt sem nauðsynlegt er.

Með frv. er lagt til að sönnunarbyrði verði snúið við. Finnist t.d. matvara á framleiðslu-, dreifingar- eða sölustað verði það hér eftir framleiðenda, dreifenda eða seljenda að sanna að vara sem að öðru jöfnu er þar á boðstólum sé ekki til dreifingar eða sölu. Þyrfti þá heilbrigðiseftirlitið ekki að standa frammi fyrir því, eins og átti sér stað í því tilviki sem greint er frá í grg. með frv., að færa sönnur á að óstimplað kjöt, sem finnst á kjötborði veitingahúss, sé ættað til neyslu. Það þarf ekki, að mínum dómi, að tíunda frekar hér að eigi eftirlitið framvegis að búa við þá kosti áorkar það litlu. Því hefur heilbrrn. fallist á að flytja þetta frv. Það var lagt fyrir Ed. sem afgreiddi það á mjög skömmum tíma óbreytt og var full samstaða um afgreiðslu málsins í þeirri n. sem fjallaði um það í Ed.

Herra forseti. Ég legg til að að lokinni þessari umr. verði frv. vísað til 2. umr. og hv. heilbr.- og trn.