25.02.1985
Neðri deild: 44. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3176 í B-deild Alþingistíðinda. (2659)

5. mál, útvarpslög

Frsm. 1. minni hl. (Kristín S. Kvaran):

Virðulegi forseti. Það liggur fyrir að menntmn. skiptist í afstöðu sinni til þessa frv. til útvarpslaga, sem liggur fyrir hér til umr. í dag. Í menntmn. gerði ég grein fyrir því að ég áskildi mér rétt til þess að flytja og fylgja brtt. sem fram kunna að koma hér í hv. deild.

Á þskj. 507 koma fram brtt. frá Kristínu S. Kvaran og Guðmundi Einarssyni sem ég skýri nánar hér eftir því sem þörf krefur í máli mínu.

Við í Bandalagi jafnaðarmanna höfum þegar gert grein fyrir þeirri skoðun okkar að frv. sé afar illa í stakk búið til að marka þau tímamót í útvarpsmálum þjóðarinnar sem því er ætlað. Þetta kemur m.a. fram í nál. 1. minni hl. menntmn. á þskj. 506. Þar að auki finnst okkur furðu sæta að við Íslendingar skulum yfirleitt vera að eyða tíma okkar í það að ræða um það hvort, hvernig og þá hvenær við ætlum að rýmka þá einokunarlöggjöf sem gildandi lög eru.

Þegar ríkisstj. lagði hvað mesta áherslu á að afgreiða frv. s.l. haust voru aðstæður um margt mjög óvenjulegar og sérstæðar. Það hafði gripið um sig mikill fjölmiðlaáróður í verkfalli BSRB sem þá stóð sem hæst. Mikið var rætt um mikilvægi frjálsrar fjölmiðlunar og þessar umræður manna á meðal kveiktu ákveðnar óskir með þjóðinni, þ.e. þeim hluta þjóðarinnar, sem er stór hluti, sem vill að frumkvæði, sjálfstæði og frelsi ríki í fjölmiðlum. Hinir, sem eru færri, eru vissir um það og dæma um það fyrir fram að þjóðin hafi ekki gott af neinu öðru en því sem henni er skammtað gegnum pólitískt skömmtunarkerfi kerfisflokkanna. Þeir telja sig vita hvað þjóðinni beri að sjá og heyra, hvað henni er hollt og óhollt, telja sér skylt að hafa vit fyrir fólki með því að mata það með því sem þeim kemur best.

Virðulegi forseti. Forsjárhyggja kerfisflokkanna endurspeglast í þessari afstöðu. Hv. þm. gömlu kerfisflokkanna eru svo uppfullir af því að þeim beri að hafa vit fyrir fólki að þeir geta ómögulega sett sér það fyrir hugskotssjónir að frelsi fólks til þess að velja og hafna þurfi ekki nauðsynlega að fara fyrir einhverja réttarnefnd eða eitthvert ráð þar sem þeir hafa töglin og hagldirnar. Þeir verða óttaslegnir við tilhugsunina um hvert eitt minnsta skref í átt til frelsis.

En þetta er raunverulega sama dæmið sem tekið hefur verið áður, undir öðrum formerkjum að vísu, þegar vikið hefur verið að því leynt og ljóst hvað þessir smáflokkar séu nú orðnir þungir í skauti hér á þingi, hvað þeir flækist nú fyrir við afgreiðslu mála og allt annað í þeim dúr. Það fer ekki hjá því að það hvarfli að manni að þeim hinum sömu, sem slíkan þankagang hafa, þyki það tilheyra að hafa bara eitt útvarp. Æskilegast væri að þeirra mati að aðeins ein hlið mála væri tekin fyrir til umr. Til þess að létta af mönnum öllum tilraunum á þessu sviði er hægt að benda þeim á að leita til þeirra sem reynsluna hafa þar að lútandi, eða valdhafanna í Kreml. Þá þyrfti ekkert að vera að reyna að burðast við að sýna þetta yfirborðskennda lýðræði. Allt þetta kjaftæði um að til staðar eigi að vera skoðanafrelsi, allt slíkt yrði bara þreytandi vella sem auðvelt væri að ýta til hliðar.

Það er erfitt og þreytandi fyrir menn með slíkar skoðanir að þurfa sífellt að vera að tala sér þvert um hug, auk þess sem það er dýrt að halda uppi þessu upplýsta lýðræði. Nóg um það.

Hæstv. menntmrh. lagði frv. fram við aðstæður þar sem þetta mikla fjölmiðlafrelsi var sem mest til umræðu. Ráðh. virtist hafa hugsað sér það sem mótleik við harkalegum aðgerðum verkfallsmanna í fyrstu. Við þær aðstæður var bætt inn í frv. grein sem gerði ráð fyrir að frv., yrði það að lögum, tæki gildi 1. nóv. 1984. Þessi breyting hæstv. menntmrh. á frv. við þessar aðstæður, þegar vitað var að nánast einungis aðilar í mjög sterkum pólitískum tengslum við forustu Sjálfstfl. voru í stakk búnir til að hefja útsendingar með þessum stutta fyrirvara, var vægast sagt afar óeðlileg og ósmekkleg ráðstöfun.

Það er löngu orðið ljóst að Bandalag jafnaðarmanna er mjög hlynnt frjálsum útvarpsrekstri og vill veg hans sem mestan. Bandalag jafnaðarmanna er eina stjórnmálaaflið sem ekki bara heldur þessum skoðunum fram sem slíkum heldur þorir einnig að standa við þær. Ýmsir aðrir segjast hafa þessar sömu skoðanir. Þetta sé nú eiginlega þeirra skoðun, þeirra stefna. Já, en hvað? Jú, þeir þora bara einhverra hluta vegna ekki að standa við yfirlýstar skoðanir sínar. E.t.v. eru þeir búnir að láta skoðun sína af hendi fyrir eitthvað annað inn í þetta frv.

Bandalag jafnaðarmanna vill greiða fyrir þessu máli svo sem unnt er án þess þó að flaustursleg vinnubrögð komi niður á lögunum. Það er ljóst að frv. ber á sér ör þeirra pólitísku átaka og málamiðlana sem ríkt hafa innan þeirrar nefndar sem samdi það.

Það er ekki hægt að fallast á það að hinn pólitíski dómstóll, þ.e. útvarpsréttarnefnd og útvarpsráð eins og frv. gerir ráð fyrir, gegni þeim hlutverkum sem honum er ætlað. Það liggur fyrir að ætlunin er að kjósa þessi apparöt af þingi, sjö menn í hvort eftir hverjar kosningar. Þeir verða kjörnir af flokkunum sem sæti eiga á þingi og þá í hlutfalli við stærð þeirra. Menntmrh. er ættað að skipa formann og varaformann úr hópi nefndarmanna.

Við leggjum hins vegar til að útvarpsréttarnefnd verði einfaldlega ekki skipuð. Menntmrh. verði falið hlutverk hennar að svo miklu leyti sem þessa hlutverks er þörf, þ.e. að hann veiti leyfi til útvarpsreksturs þeim sem um það sækja. Hvað á útvarpsréttarnefnd að hafa með það að gera hverjir fái leyfi til útvarpsreksturs? Þeir sem áhuga hafa á slíku og hafa fengið til þess tilskilin leyfi frá menntmrh. geta snúið sér til Pósts og síma til að fá úthlutað senditíðni og sendirás.

Það aðhald, sem þessar stöðvar þurfa á að halda, kemur af sjálfu sér vegna þess að það vill svo til að það eru í gildi lög í þessu landi sem eru fullfær til að ná yfir það að útvarpsstöðvar beri fulla ábyrgð á rekstri sínum. Auk þess er það ljóst, að almenningur kemur til með að veita þessum stöðvum mjög mikið aðhald, a.m.k. ef þær tillögur þar að lútandi verða samþykktar sem Bandalag jafnaðarmanna hefur lagt til.

Við höfum ekkert að gera við þann pólitíska dómstól sem verið er að setja af stað með stofnun á borð við útvarpsréttarnefnd. Ef þessi pólitíski dómstóll á að hafa það hlutverk sem honum er ætlað — það er m.a. að velja og hafna hverjir það verða sem hugsanlega fá að standa að útvarpsrekstri — þá er ekki til neins að tala um frjálst útvarp. Það getur ekki orðið fyrr en við höfum náð þeim þroska að koma flokkavaldinu burt og gefa það frelsi og hin sjálfsögðu mannréttindi sem alltaf er verið að tala svo fjálglega um en nær aldrei lengra en á þetta yfirborðskennda umræðustig.

Frv., eins og það liggur fyrir, stendur alls ekki undir nafni, því nafni sem reynt hefur verið að nota yfir það, eða „afnám einkaréttar og einokunar í útvarpsrekstri“. Það er sem sagt orðið hálfútþynnt þetta frelsi sem þó var svo mikið hampað í fyrstu. Lög, sem í gildi eru og veita þetta aðhald, eru lög eins og lög um vernd barna og ungmenna, meiðyrðalöggjöf og lög um höfundarétt, lög sem fjalla um réttindi og skyldur rekstraraðila fyrirtækja og lög um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Það felst nægilegt þó að ekki verði farið að spyrða saman slíkan dómstól eins og áður var um getið. Þarna vantar ekki fulltrúa stjórnmálaafla í áhrifastöður, þarna þar sem stefnan er mörkuð.

Leyfi þau, sem menntmrh. veitir skv. okkar tillögum, viljum við að gildi aðeins til þriggja ára í senn, að þau verði tímabundin og það verði jafnaðarlega sótt um endurnýjun. Þetta virkar þá sem einn liður til þess að veita stöðvunum aðhald.

Þá er það einnig ljóst að mjög mikilvægt er að kannað verði markvisst hvaða skoðanir almenningur hefur á þeim stöðvum sem fara kunna af stað. Þess vegna höfum við lagt til að við veitingu nýrra leyfa og við endurnýjun leyfa verði auglýst eftir umsögn almennings. Með því móti gefst fólki kostur á að segja álit sitt. Óhjákvæmilega hlyti að verða tekið tillit til þess álits og umsagnir teknar til athugunar. Þar með er réttur almennings til áhrifa tryggður. Á sama hátt höfum við gert því skóna að mikilvægt sé, jafnframt því að skoðanir almennings komi fram og tjáningarfrelsi sé virt, að reglan um jafnan tíma hvað varðar stjórnmálaumræður í fjölmiðlum sé virt og alfarið tryggð. Þess vegna höfum við lagt til að menntmrh. gefi út reglur um jafnan tíma hvað þetta varðar.

Við í Bandalagi jafnaðarmanna höfum lagt til að engar hömlur skuli lagðar á það að úfvarpsstöðvar geti aflað tekna með auglýsingum aðrar en að auglýsingar verði skýrt afmarkaðar frá öðrum dagskrárliðum. Einnig er það sjálfsagt réttlætismál að stöðvarnar ákvarði sjálfar verð þeirrar þjónustu sem þær veita. Við álítum það fráleitt að til frambúðar verði litið á auglýsingar í útvarpi sem nauðsynlegan en illan kost. Það ber að okkar áliti að líta svo á að auglýsingar gegni mikilvægu hlutverki við að upplýsa almenning og er þá bæði átt við hvað varðar opinbera aðila og verslun og þjónustu.

Jafnframt þessu ákvæði um að auglýsingar verði gefnar frjálsar komum við í veg fyrir það sem aðrir eru hræddir um að verði til þess að við lendum undir, eins og þeir kalla það, ofríki þeirra hagsmuna sem stjórna auglýsingum. Þá erum við að tala um að með þessu ákvæði um frelsi í auglýsingum komum við í veg fyrir dulbúnar auglýsingar. Með því spornum við við því að auglýsingar hafi áhrif á dagskrána í formi hinna dulbúnu auglýsinga eins og þær tíðkast mikið í dag, t.d. bókakynningar og Skonrokk o.fl. í þeim dúr. Dæmi eru um það erlendis frá, þar sem auglýsingar eru ekki leyfðar frjálsar, að borgað sé undir borðið til þess að koma að dulbúnum auglýsingum. Þá er þetta auðvitað orðinn eintómur skrípaleikur.

Með því að samkeppnin um auglýsendur verði mikil verður í verulegum mæli komið í veg fyrir að það séu fyrst og fremst alþjóðleg fyrirtæki og þau öflugustu á markaðinum sem hafa ráð á að auglýsa í einhverjum mæli. Ef hins vegar verður um það að ræða að auglýsingar verða aðeins leyfðar í takmörkuðum mæli og alls ekki stöðvum sem senda út um þráð, þá verður svo dýrt að auglýsa í stöðvunum að þau fyrirtæki sem smærri eru hefðu enga möguleika á því að auglýsa neitt að ráði.

Með því að auglýsingar séu gefnar alfarið frjálsar myndast heilbrigð samkeppni um auglýsendur og þar með er verðinu haldið niðri og það kemur auglýsendum til góða og ekki síður neytendum. Þeir sem mest tala um að álagning vegna auglýsinga renni óheft út í verðlagið sem álagning á vöruverði og þjónustu, ættu að reyna að gera sér grein fyrir að með því að leggja til að útvarpsréttarnefnd ákveði auglýsingataxta með hliðsjón af gildandi töxtum Ríkisútvarpsins og annarra fjölmiðla á svæði þeirra eru þeir í raun og veru að ýta undir neikvæða þróun þessara mála. Sé þetta mál allt grannt skoðað efast ég um að þetta ákvæði standist gagnvart lögum um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Þetta gerir það eitt að verkum að ekki verður um heilbrigða samkeppni að ræða og þetta verður til þess eins að spenna upp verðlag á þessari þjónustu. Auk þess er mun hættara við að um verði að ræða dulbúnar auglýsingar af einhverju tagi eins og ég gat um áðan.

Það er auðvitað fáránlegt að leggja það til að þeir, sem hyggja á útsendingar um þráð eða útsendingar sem einungis verður hægt að ná með sérstökum búnaði, fái ekki að afla fjár til dagskrárgerðar með auglýsingum. Á meðan þetta ákvæði er alveg skýrt stendur það einnig fullum fetum í frv. að útvarpsstöð, sem dreifir efni sem móttekið er um gervihnött, sé heimilt að birta auglýsingar. Er það virkilegt að þeim mönnum, sem leggja svona nokkuð til, hafi ekki dottið það í hug hve mikil mismunun á sér stað með þessum tveimur ákvæðum? Sjá þeir ekki að íslenskir framleiðendur og iðnrekendur eiga virkilega undir högg að sækja með þessum ákvæðum? Er það e.t.v. ætlunin að íslenskum aðilum verði ætlað að fara með auglýsingar sínar til erlendra stöðva, sem dreifa efni sínu um gervihnött sem sendir til Íslands, til þess að komast inn á auglýsingamarkaðinn hérlendis? Er það þetta sem þessir menn ætla sér þegar þeir tala svo fjálglega á öðrum vettvangi um að styðja og styrkja íslenskan iðnað og framleiðslu? Þvílík tvöfeldni og skrípaleikur, ég segi nú ekki annað.

Auk þess verður þetta ákvæði til þess að í þessum stöðvum verður einungis um að ræða ódýrt, erlent afþreyingarefni sem hægt er að senda út án mikils tilkostnaðar. Þetta segi ég vegna þess að það sýnir sig í dag hve Ríkisútvarpinu verður lítið ágengt með innlenda dagskrárgerð ef einungis er tekið mið af afnotagjöldum. Þess vegna segi ég: Þetta ákvæði verður örugglega ekki til þess að efla innlenda dagskrárgerð.

Þeir hinir sömu, sem hvað harðast hafa gagnrýnt auglýsingar og talið þær eingöngu af hinu illa og um að þær hafi í för með sér mikinn kostnað fyrir neytendur, koma svo fram á sjónarsviðið með menningarsjóð. Þar er gert ráð fyrir að allt að 10% menningarsjóðsgjald skuli leggjast ofan á allar auglýsingar í útvarpi. Hvar eru þá allar áhyggjur þessara sömu manna af neytendum? Hvar er eiginlega réttur neytenda þá?

Með þessum 10% á að greiða hluta Ríkisútvarpsins af rekstrarkostnaði Sinfóníuhljómsveitarinnar og síðan er ætlunin að úthluta styrkjum til útvarpsstöðva til eflingar innlendri dagskrárgerð, eins og það heitir, dagskrárgerð er verða má til menningarauka og fræðslu. Ég tek það skýrt fram að ég er hlynnt því að við fáum menningarauka og fræðslu nánast í hvaða formi sem er, en bara ekki undir þessum formerkjum.

Hvað er eiginlega að innréttingunum í þessum mönnum sem leggja slíkt og þvílíkt til jafnframt því sem þeir halda fram þessum kostnaðarauka fyrir neytendur? Til þess að koma í veg fyrir þetta bákn sem þessi menningarsjóður hefur alla burði til að verða er einfaldlega hægt að setja allan rekstrarkostnað Sinfóníuhljómsveitarinnar á fjárlög þannig að þar komi skýrt og skilmerkilega fram hvað hún kostar. Og ef vilji er fyrir hendi til að styrkja innlenda dagskrárgerð á það einnig að koma fram á fjárlögum. (ÓÞÞ: Hvað með neytendur?) Ég var að geta um það. (ÓÞÞ: Hverjir borga fjárlögin?) Ég var að geta um það að þá kemur það hreint fram en ekki í formi óbeinna skatta. Það er hreinlega fáránlegt að fara að koma fram með nýjar álögur og skatta á neytendur í þessu formi og fara að búa til enn eitt apparatið til að deila niður og drottna með almannafé, Ég segi bara nei við slíkum till. Þessi menningarsjóður verður örugglega ein auðveldasta leiðin til þess að dagskrár verði eins konar dulbúnar auglýsingar fyrir hagsmunaaðila sem kaupa sér tíma á einn eða annan hátt.

Til þess að gefa enn betra og meira aðhald og veita samkeppni á auglýsingamarkaðinum gerum við í Bandalagi jafnaðarmanna brtt. sem kveður á um að hlustendakönnun verði gerð eigi sjaldnar en á mánaðar fresti. Hlustendakönnun gegnir mikilvægu hlutverki og Ísland er örugglega einasta landið í Evrópu, ef ekki í heiminum, þar sem ekki er gert ráð fyrir þessu mikilvæga atriði. Ég bið hv. þdm. að athuga þetta atriði mjög vel. Með því að leggja þetta til gerum við ráð fyrir að skoðanir almennings komist jafnaðarlegast á framfæri. Með því er stöðvunum veitt mjög strangt aðhald og þar kemur í ljós hvað fólki finnst um stöðvarnar, hvort því finnst þær vera góðar og fjölbreyttar, hvort dagskráin sé í því formi sem það kýs, hvort þar sé um óhlutdrægar fréttir að ræða, of mikið eða hæfilega mikið af auglýsingum o.s.frv.

Við teljum að verði slík hlustendakönnun framkvæmd reglulega verði þar um að ræða geysimikið aðhald. Af niðurstöðum slíkra hlustendakannana yrði tekið mið við dagskrárgerð og gerð og magn auglýsinga. Með þessu er sjálfgefið að stöðvar sem einungis eru reknar með gróðasjónarmiði, þ.e. með því að hafa á boðstólunum ódýrt afþreyingarefni og fylla upp með auglýsingum, e.t.v. misvel gerðum, detta út allsnarlega því að hlustendur koma til með að dæma þær úr leik strax. En þarna kemur aftur fram hjá kerfisflokkunum þessi mikla vantrú þeirra á almenningi, vantrú þeirra á getu almennings til að velja og hafna.

Okkur finnst sjálfsagt að sveitarfélögin hafi einkarétt á uppsetningu kapalkerfa, en að sveitarstjórnunum sé heimilt hverju sinni að framselja þennan rétt til einstaklinga eða félaga með sérstökum samningum. Með þessu þykir okkur tryggt að sveitarstjórnir hafi það alfarið í hendi sér hvernig þær haga þessum málum á sínu yfirráðasvæði.

Til þess að koma í veg fyrir það sem á einhvern máta getur kallast einokun í formi hringamyndunar — en þá væri verr af stað farið en heima setið — viljum við í BJ setja skörp skil á milli þess sem talist getur frjáls útvarpsrekstur og hins vegar hringamyndun. Þess vegna leggjum við til að einstaklingum og fyrirtækjum, sem eiga eignaraðild í öðrum greinum fjölmiðlunar, svo sem dagblöðum, sé óheimilt að eiga hlutdeild að útvarpsrekstri. Það er fljótgen að til verði slíkir aðilar hér, í ekki stærra landi. Slíkir risar verða okkur ekki til góðs.

Með einokun fjölmiðlaheimsins af slíku tagi erum við farin að tala um einstefnu í skoðanamyndun og hagsmunavörslu af því tagi sem er langt í frá að vera æskileg. Þess vegna leggjum við til að hlutdeild að útvarpsrekstri verði skorður settar hvað þetta eina atriði varðar.

Í framhaldi af þessu finnst okkur eðlilegt að sama aðila sé ekki heimilt að reka fleiri en tvær stöðvar. Við erum að sjálfsögðu trú okkar hugmyndafræði og leggjum á það ríka áherslu að Alþingi hafi eftirlit með framkvæmdavaldinu á meðan við viljum setja við því skorður að löggjafinn taki að sér eða fari inn á valdsvið framkvæmdavaldsins. En eins og mönnum hér ætti að vera kunnugt af umræðum undangenginna ára viljum við í BJ skýra greiningu þessara tveggja valdþátta.

Þá leggjum við til að nefnd sjö þm. hafi það hlutverk að fylgjast með framkvæmd þessara laga. Ekki er síður lögð á það áhersla að nefndin fylgist með hver verður þróun fjölmiðlunar og lagasetningar hvað varðar fjölmiðlun meðal nágrannaþjóða okkar. Þessari nefnd er svo gert að huga jafnaðarlega að nauðsynlegum breytingum á lögum þessum í ljósi þeirrar reynslu sem af framkvæmd þeirra fæst. Við leggjum til að nefndin skili skýrslu til Alþingis í nóv. ár hvert þar sem gerð verði ítarleg grein fyrir störfum nefndarinnar.

Við höfum komið með brtt. þar sem kveðið er á um að æviráðning útvarpsstjóra sé afnumin. Við höfum lagt þetta til á fleiri stöðum í embættismannakerfinu og sýnist að þetta geti stuðlað að eðlilegri endurnýjun í allri yfirstjórn.

Við hlutverki útvarpsráðs, að svo miklu leyfi sem við álítum það þarft, viljum við að taki stjórn Ríkisútvarpsins. Í þeirri stjórn viljum við sjá fulltrúa sem að okkar mati eru eðlilegir í þessu samhengi. Þar er fyrstan að telja útvarpsstjóra, þrjá framkvæmdastjóra Ríkisútvarpsins, tvo fulltrúa sem skipaðir verði af menntmrh. og einn frá starfsmönnum Ríkisútvarpsins. Þessi till. okkar er í átt til valddreifingar. Þarna gerum við ráð fyrir afnámi miðstýringar.

Einhvers staðar las ég að það vekti athygli í þessu sambandi hvernig hugmyndir okkar í Bandalagi jafnaðarmanna um valddreifingu birtust, þ.e. að við vildum útiloka fulltrúalýðræði og setja þess í stað upp hreint embættismannakerfi. Þessu er mér ljúft að svara og gera grein fyrir. Við í Bandalagi jafnaðarmanna gerum nefnilega ráð fyrir nokkru, sem í þessum rótgrónu kerfisflokkum virðist alls ekki hafa hvarflað að fólki, en það er að þessi stjórn, sem við leggjum til, á alls ekki að sjá um dagskrárgerð eins og útvarpsráði er ætlað. Við ætlumst alls ekki til að þessari stjórn sé ættað að sjá um að velja og hafna hinu og þessu sem fólk vill koma á framfæri í Ríkisútvarpinu. Við gerum ráð fyrir að stjórn þessa ríkisrekna fyrirtækis sjái um rekstur í stórum dráttum, svo sem byggingarmál og sendingar, punktur og basta. Hins vegar gerum við ráð fyrir að hinar frjálsu útvarpsstöðvar verði Ríkisútvarpinu til góðs, m.a. að því leyti að samkeppnin við þær stuðli að því að staða Ríkisútvarpsins verði á allan hátt tryggð sem best.

Innan stofnunarinnar gerum við ráð fyrir að ríki starfsmannalýðræði, en þurfi ekki að vera í því formi, sem frv. gerir ráð fyrir, að bera þurfi alla dagskrárgerð undir útvarpsráð. Við reiknum með starfsmannalýðræði, aukin áhrif starfsmanna, sem leiði af sér aukið frumkvæði, sjálfstæði og ábyrgð starfsmanna við dagskrárgerð. Við reiknum með að slíkt andrúmsloft samheldni og eindrægni í vinnubrögðum skapist m.a. vegna þess að við gerum jafnframt ráð fyrir að ákvæði í brtt. okkar komi í veg fyrir atgervisflótta starfsmanna Ríkisútvarpsins til hinna frjálsu stöðva, sem e.t.v. koma til með að hafa frjálsari hendur til að bjóða hærri laun fyrir hæfa starfsmenn. Þetta ákvæði í brtt. okkar, sem við vonumst til að verði samþykkt, er að útvarpsstjóra verði heimilað með samþykki stjórnar Ríkisútvarpsins að gera kjarasamninga við starfsmenn stofnunarinnar.

Til að gera stöðu þeirra sem jafnasta, sem hyggja á útvarpsrekstur og eru jafnvel í startholunum með allt saman og hinna sem vildu bíða og sjá hver framvinda mála yrði hér á Alþingi, sýnist okkur réttmætt að öll ákvæði þessara laga komi ekki til framkvæmda fyrr en að sex mánuðum liðnum eftir birtingu þeirra. Ég ætla að geyma mér að taka til umr. fjármálahliðina um afnotagjaldakerfið þar til tillögur og álit er fram komið sem í vændum er frá Ríkisútvarpinu.

Afstaða okkar er mjög skýr. Útvarpsréttarnefnd og útvarpsráð er út úr myndinni hvað okkur varðar. Við föllumst ekki á þau rök sem fram hafa verið sett varðandi skipun þeirra og hlutverk. Það er augljóst að setja verður reglur sem gilda skuli varðandi stjórnmálaumræður í fjölmiðlum og alveg er ómögulegt að fallast á að það eigi að vera þm. sem setji reglur þar að lútandi í gegnum útvarpsréttarnefnd. Hugtakið frelsi má aldrei nota sem yfirvarp yfir kúgun af einu eða neinu tagi, hvort heldur um er að ræða skoðanakúgun, ritskoðun eða að nota dómstól af því tagi sem úfvarpsréttarnefnd er ætlað að verða.

Með því að ákveða á þann hátt auglýsingataxta, sem ætlað er í frv. með hliðsjón af gildandi töxtum Ríkisútvarpsins, þá stuðlar það að óeðlilegu verðlagi og verðþróun, auk þess sem það brýtur í bága við lög um verðlag, samkeppnishömlur og óréttmæta viðskiptahætti. Auglýsingataxti hlýtur að miðast við mat auglýsenda á gildi þess að auglýsa hjá viðkomandi stöð. Það verður að afnema lögbundin afskipti stjórnmálaafla af þessu tagi sem alls staðar skína í gegn í þessu frv. Við viljum ekki að forsjárhyggja kerfisflokkanna í formi pólitískt skipaðrar nefndar hafi eftirlit með og gefi um það umsögn hvers konar rekstrarform eigi að vera á fyrirtæki sem hyggur á útvarpsrekstur. Það er ekki til neitt einfaldara en að Póstur og sími úthluti þeim senditíðni sem áhuga og vilja hafa til þess að stofna útvarpsstöð. En að ætla síðan að láta þessa almáttugu nefnd útvarpsmála þjóðarinnar um það hverjir fyrir náð og miskunn hennar hljóti það hnoss að fá að útvarpa er auðvitað jafnfáránlegt og hitt er sjálfsagt og eðlilegt.

Eins og útvarpslagafrv. lítur út í dag veitir það ekki frelsi. Það veitir einungis hugsanlega öðrum aðilum en Ríkisútvarpinu heimild til þess að útvarpa, en þá fyrst, eins og ég sagði áðan, að fengnu náðarsamlegu leyfi þessarar almáttugu útvarpsréttarnefndar. Það á ekki að koma til slíkur þröskuldur sem torveldi og hamli að svo geti orðið. Það verður fróðlegt að fylgjast með því þegar meiri hl. hér á Alþingi hefur fengið þessa útvarpsréttarnefnd í gegn og þegar hún svo fer að úthluta leyfum skv. kvótaskiptingu kerfisflokkanna alveg á sama hátt og þegar kvótinn kom fram í skiptingu formanns- og varaformannsembætta bankaráðanna nú nýverið. Einn fyrir þig og einn fyrir mig, sögðu þeir þá, kerfiskarlarnir. Ekki er líklegt að annað verði uppi á teningnum þegar kemur að því að ákveða hverjir það verða sem taldir verða hæfir að mati þessara sömu manna til að tjá sig á vettvangi frjáls útvarps.

Bandalag jafnaðarmanna hefur í störfum sínum lagt á það áherslu að eitt meginhlutverk laga og þar með lagasetningar sé að tryggja fólki frelsi. Það verður að gera ráð fyrir því sem allra mest innan lagasetningar að fólki verði treyst sjálfu, að treyst verði á dómgreind þess og rétt til að velja og hafna. Það felst í einföldustu skilgreiningu á mannréttindum að hafa réttinn til að tjá sig. Það eru hin einföldu og sjálfsögðu mannréttindi sem Bandalag jafnaðarmanna berst fyrir að fólk fái.