26.02.1985
Sameinað þing: 53. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3218 í B-deild Alþingistíðinda. (2697)

306. mál, samvinnufélög og samvinnusambönd

Fyrirspyrjandi (Eyjólfur Konráð Jónsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. viðskrh. fyrir svör hans. Það er ánægjulegt að þetta frv. sér væntanlega dagsins ljós hér á hinu háa Alþingi fyrir þingslit í vor. Þá verður hægt að taka til óspilltra málanna á næsta hausti til þess að reyna að koma á heilbrigðri löggjöf um samvinnufélög og samvinnusambönd, eins og það er kallað, því að sérstakur kafli í lögum fjallar um samvinnusambönd, VI. kafli núverandi laga, en samvinnusambönd eru ekki samvinnufélög eins og þau eru nú starfrækt á Íslandi. Þau eru það í engum skilningi. Og það er eitt af því sem þarf auðvitað að leiðrétta. Í 3. gr. samvinnufélagalaganna eru talin upp skilyrði fyrir því að eitt félag geti kallast samvinnufélag, og samvinnusambönd uppfylla nánast í engu tilliti þau skilyrði. Þetta er eitt af því sem leiðrétta þarf til að koma heilbrigðri skipan á samvinnurekstur í þessu landi.

Eins og allir vita er mikið umrót í þessu þjóðfélagi. Sjálfsagt hljótum við öll að vona að það sé af hinu góða. Það er margt að gerast og miklar breytingar verða ábyggilega á þessu þjóðfélagi á næstu misserum. Ég endurtek að við vonum auðvitað öll að þær verði af hinu góða, en það verða þær því aðeins að lýðræðið aukist en ekki þrengist um svigrúm manna. Þess vegna er þessi þáttur, endurskoðun samvinnufélagalaga, ekki hinn ómerkasti. Það þarf vissulega að huga að breytingum í rekstri og störfum þeirra samtaka ekki síður en á sviði einkarekstrarins og að því er hlutafélögin varðar. En ég endurtek þakkir mínar.