11.10.1984
Sameinað þing: 3. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 93 í B-deild Alþingistíðinda. (27)

Skýrsla ríkisstjórnarinnar um kjaradeilurnar

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Þessi umr. fer fram á mjög viðkvæmum tíma, þegar alvarlegt og víðtækt verkfall hefur staðið lengi, lengur en svo að lífið geti gengið eðlilega hjá okkur.

Hér var nokkuð rætt um það í dag hvernig unnt væri að koma á eðlilegri starfsemi í ýmsum stofnunum þjóðfélagsins og hvernig það veldur erfiðleikum ef fella þarf úrskurði eða ná þarf samkomulagi um störf einstakra hópa sem ekki er sérstaklega vikið að í lögum um kjarasamninga og sem ekki fá umfjöllun hjá kjaradeilunefnd eða að kjaradeilunefnd telur ekki vera á sínu verksviði að úrskurða um. Það stendur svo á um marga skóla að þar getur kennsla ekki farið fram vegna verkfalls húsvarða. Vissulega er það svo að það liggur nú ekki beint við að það þurfi að leggja niður kennslu þó húsverðir séu í verkfalli. Þá er vissulega erfiðara að reka sjálf húsin með venjulegum hætti, en ef menn komast inn í skólana ætti að mega fara fram kennsla þar rétt eins og önnur starfsemi. Þetta sér auðvitað hver maður og þeim mun betur sem lengra líður á verkfallið.

Það er líka ljóst að það þjónar litlum tilgangi að láta dag eftir dag líða þannig að deilt sé um það æ harðar hvort menn eigi að leita til verkfallsnefndar BSRB til þess að fá lausn mála sinna ellegar kjaradeilunefndar. Það er ljóst, a.m.k. öllum þm. að ég held, að forsenda fyrir lagaheimildinni um verkfall opinberra starfsmanna var úrskurðarvald kjaradeilunefndar. Þess vegna er það mjög alvarlegt að ganga gegn þessu ákvæði. Þegar sérstök lög gilda um fyrirkomulag og framkvæmd verkfalls opinberra starfsmanna er ljóst að því meira sem farið er út fyrir þær heimildir, þeim mun meira veikir það þessi lög. Þeim mun fleiri segja við okkur: Var það skynsamlegt að ganga frá þessum lögum með þeim hætti sem gert var eða komast menn e.t.v. að þeirri niðurstöðu að það sé nú þrátt fyrir allt hægt að finna einhvern sem getur séð um það af hálfu beggja deiluaðila að komast að samkomulagi fyrir tiltekna hópa, að gera e.t.v. til bráðabirgða vinnusamninga fyrir tiltekna hópa? Þá á ég við að það séu ekki einstakar stofnanir í ríkiskerfinu sem að slíku standi heldur séu það þeir sem fara með samningana sjálfa af hálfu ríkisins annars vegar og BSRB hins vegar. Vegna þessa vildi ég fyrir mitt leyti og þess ráðuneytis sem sér um rekstur skólastofnana freista þess að fá samninganefndina til þess að taka slík mál fyrir, ef það mætti verða til þess að ná samkomulagi beggja aðila um að veita tilteknum hópum vinnuréttarsamning, til bráðabirgða skulum við segja, og hætta þá deilunum um hvort menn leita til verkfallsnefndar BSRB einnar eða ekki. Ég hygg að þetta mál sé vel hægt að leysa með góðum vilja beggja aðila, með því hreinlega að afgreiða það í gegnum samninganefnd. Þá standa báðir aðilar að lausninni og þar með hefst engin deila um skylduna til kaupgreiðslna, þ.e. hvenær hún verði.

Þetta vildi ég nú nefna í þessu sambandi vegna þess að nú einmitt í dag gerði Skólastjórafélagið ályktun um að skora á menntmrn. að leita til verkfallsnefndar, en ég vil reyna fyrir alla muni að leita þeirrar lausnar að samkomulag verði um þetta atriði. Til kjaradeilunefndar höfum við leitað og við þá skýringu vil ég halda fast að skynsamleg framkvæmd þessara laga velti á því að rétt sé farið að að þessu leyti.

Þegar talað er um lagatúlkun hlýt ég að víkja að því hvernig margir hv. þm. úr stjórnarandstöðuflokkunum hafa rætt um lagareglur í sambandi við útvarpsrekstur svo og um ýmis önnur lög. Mjög hefur komið til umræðu hvort menn hafi brotið eða brotið ekki lög um þessar mundir. Þannig er mál með vexti að ummæli mín við fréttastofu Ríkisútvarpsins s.l. laugardagskvöld fengu rangtúlkun hjá þremur stjórnarandstöðuþingmönnum í röð í fréttum Ríkisútvarpsins í hádeginu á sunnudaginn. Sú túlkun var flutt af fréttamönnum. Til mín var ekki leitað um þetta. Ég hlýt að taka þetta fram vegna þess hve mönnum hefur orðið tíðrætt um það og jafnan notað túlkun annarra en mína eigin. Hér er byggt á miklum misskilningi og að ýmsu leyti rangfærslum.

Það sem ég sagði í Ríkisútvarpinu var þetta, að mörg lagabrot hefðu verið framin þessa dagana, að skoða yrði þau öll í heild. Þetta kusu hv. stjórnarandstæðingar að leggja út á þann veg að allt væri í lagi með lagabrot eða eitthvað á þann veg nefndu þeir það í dag. Mönnum hugsaðist það ekki að hér væri átt við að allir væru jafnir fyrir lögunum. Það er það sem skiptir máli í þessu, alveg eins í verkfalli eins og á öðrum tímum í þjóðfélaginu. Í okkar ríki eiga allir að vera jafnir fyrir lögunum og það er ekki sérstakur hópur manna, hvort sem manni líkar betur við hann eða verr, sem er undanþeginn lögum og ekki heldur sérstakur hópur manna, hvort sem manni líkar hann betur eða verr, sem á að sæta lögsókn. Það sem máli skiptir eru lögin sjálf og hvort þau eru haldin, en ekki hver það er sem framkvæmir lögin eða brýtur þau.

Ég vil skýra frá því að í gær bárust mér umsóknir um leyfi til rekstrar tveggja útvarpsstöðva sem tóku til starfa eftir að starfsmenn Ríkisútvarpsins lögðu fyrirvaralaust niður starfsemi sína mánudaginn 1. október með ólögmætur: hætti. Um ólögmæti þess blandast víst engum hugur. Hér skal ósagt um það látið hvort starfsmönnum sjálfum hefur verið þetta ljóst, en nokkuð var það að sá meiri hluti sem þarna kúgaði starfsmenn Ríkisútvarpsins til þessarar gerðar fór ekki að lögum. Þetta olli því að landið var algerlega fjölmiðlalaust. Það var sambandslaust við umheiminn að því er fjölmiðlun varðaði. Það voru engar póstsamgöngur, það var þegar ljóst að svo yrði, og síminn var víða illa virkur, engin blöð og útvarp ríkisins var þagnað. Á næstu dögum eftir þetta hófu nokkrir einstaklingar rekstur útvarpsstöðva og báru fyrir sig neyðarrétt. Nú er það svo að álit á því hvort um neyðarrétt var að ræða kann að vera umdeilt, en um það fella dómstólar úrskurð. En neyðarréttur getur gert athöfn lögmæta sem ella hefði verið talin ólögmæt. Efnisdómur hefur ekki verið lagður á þetta enn.

Þegar Ríkisútvarpið hafði verið lokað í nokkra daga og þessar útvarpsstöðvar voru teknar til starfa, miðluðu landsmönnum fréttum og störfuðu að öðru leyti eftir því sem menn bera ábyrgð á birtu efni, þá gerðist það 5. október að útvarpsstjóri kærði til ríkissaksóknara tvær þessara stöðva, tvær tilteknar stöðvar. Nokkrar fleiri höfðu þó verið opnaðar og það liggur fyrir að margar kapalsjónvarpsstöðvar eru reknar í byggðarlögum víða um landið þrátt fyrir einkaréttarákvæði útvarpslaga. Ég taldi nauðsynlegt, þegar ég fékk umsókn um undanþágu, að leita upplýsinga um það hvernig viðbrögð Ríkisútvarpsins hafa verið við þessum stöðvum yfirleitt sem reknar hafa verið, annaðhvort sjónvarpsstöðvum eða hljóðvarpsstöðvum. Mér virðast gildandi lög ekki heimila ráðh. að veita undanþágu frá þessu ákvæði. Þess vegna hef ég ekki veitt slíka undanþágu. Þó að ég sé þeirrar skoðunar og hafi lengi verið að það beri að breyta löggjöfinni svo að hún heimili frjálst útvarp geri ég mér ljóst að lögin takmarka þær heimildir sem við höfum, bæði heimildir ráðh. og annarra stjórnenda. Við verðum að fara að lögum. Það eina sem við getum gert er að beita okkur fyrir því af alefli að full mannréttindi að þessu leyti verði lögleidd í landi okkar. Ég tel að eins og löggjöfinni er nú háttað og eins og tækninni í veröldinni er nú háttað gildi ekki fullt tjáningarfrelsi á landi okkar að þessu leyti. Þetta verðum við því miður að horfast í augu við og átta okkur á hvernig við ætlum að leysa. Því var það ekki lítið undrunarefni að heyra þá annars skynsömu konu, hv. 11. þm. Reykv., segja í dag í ræðu sinni að frjálst útvarp væri eiginlega öfugmæli, að það væri útvarp ofbeldis. Ég hef aldrei heyrt skringilegri skilgreiningu á frelsi að ætla það að frjáls tjáning í útvarpi sé ofbeldi. (SDK: Það sagði ég ekki.) Ég vona að mér hafi misheyrst, en ég ritaði þetta niður um leið eftir hv. þm. Það hlaut að vera að um mismæli hafi verið að ræða því þetta var afar skringileg niðurstaða og það er gott að heyra að hér hafi verið annaðhvort um misskilning minn að ræða eða mismæli hv. þm. Þá mun ég ekki eyða fleiri orðum í það atriði, svo fráleitt sem það var.

Það er auðvitað ljóst að heimild til frjáls útvarps verður að vera háð þeirri ábyrgð og þeim takmörkunum sem almennt frelsi manna hefur, þ.e. að þessu leyti er frelsi til að tjá sig með þeim hætti að það skerði ekki mannréttindi annars fólks. Það eru þær takmarkanir, sem við viljum sætta okkur við og sem eru eðlilegar, að það skerði ekki mannréttindi annars fólks. Að því marki eru það sjálfsögð mannréttindi að hafa tjáningarfrelsi. Þegar það er farið að skerða mannréttindi annarra er það ofbeldi. Skerðing á sjálfsögðum mannréttindum á ekki að vera lögheimil á okkar landi. Ég vona að allir séu sammála um það.

Ég skýrði frá því að ég hefði ekki getað samþykkt beiðni um undanþágu frá útvarpslögunum til rekstrar frjáls útvarps þó að ég sé hlynnt því að frjálst útvarp sé lögleitt. Sama gildir um umsóknir sem mér hafa borist frá fimm kapalsjónvarpsstöðvum sem hafa starfað í landinu án lagaheimildar. Ég hef ekki getað samþykkt umsóknir neinna þessara stöðva vegna skorts á lagaheimild. Mér er hins vegar ljóst, og það hafa sagt mér m.a. þm. þeirra kjördæma sem þessar stöðvar hafa starfað í um árabil, að þær séu fólkinu þar mikils virði og ég held að þeir séu upp til hópa samþykkir því að það beri að lögheimila slíka starfsemi. Allar þessar umsóknir, sem borist hafa, hef ég beðið starfsmenn rn. að senda Ríkisútvarpinu sjálfu til umfjöllunar, en Ríkisútvarpið er sú stofnun sem samkvæmt lögum hefur einkarétt til útvarps.

Það hefur komið berlega í ljós að einkaréttur útvarpsins veldur þjóðinni miklu öryggisleysi og grundvallarréttindi manna til þess að hafa frelsi til að tjá sig án þess að það skerði mannréttindi annarra eru í raun og veru skert með þessum gildandi lögum. Kærur Ríkisútvarpsins á hendur stöðvunum sem það sagði vera ólöglegar, — ég fullyrði ekki um það fyrr en úrskurður dómstóla liggur fyrir, þá sættir maður sig auðvitað við þá niðurstöðu, — fengu þá meðferð að í gær var tveimur stöðvum lokað samkvæmt dómsúrskurði en efnisdómur hefur ekki verið lagður á lögmæti starfseminnar. Þess er að geta að Ríkisútvarpið sjálft hefur stundum í samráði við Póst- og símamálastofnunina heimilað tímabundinn rekstur svæðisbundinna útvarpsstöðva, t.d. sá Ríkisútvarpið Póst- og símamálastofnunin ekkert því til fyrirstöðu að svonefnt „kántrý-útvarp“ væri starfræki tímabundið í sumar og fleiri takmörkuð leyfi hafa verið veitt. Innanhússútvarp og kapalkerfi innan stofnana hafa af Ríkisútvarpinu verið talin lögleg. En hins vegar er ljóst að það verður að gera upp þetta dæmi í heild og ég tel að það verði ekki gert með viðunandi hætti án lagabreytingar.

Í gær, þegar tvær af öllum þessum stöðvum höfðu verið stöðvaðar, ákvað ég að fara á fund Samtaka um frjálsan útvarpsrekstur. Þar voru hundruð manna sem ætla að undirbúa það að standa að rekstri útvarps þegar það verður lögleitt. Þetta fólk vill berjast fyrir þeim mannréttindum að lög heimili rekstur þessa forms tjáningar í landinu. Ég sagði þessum hópi að ég vildi berjast fyrir því eins og ég hef áður gert að frelsi til útvarpsrekstrar verði lögleitt í landinu. Ég sagðist vonast til þess að slíkt frelsi verði lögleitt sem fyrst og helst mjög snemma á þessu þingi. Ég vonast til þess að í þessum mánuði beri Alþingi gæfu til þess að standa saman um slíka lagabreytingu. Mál hafa verið þrautrædd að þessu leyti og ég hygg að í hjarta sínu séu þm. sammála um að breyta þurfi þessum lögum. Vel má vera að við náum ekki öllu því fram sem við gjarnan vildum í slíkri löggjöf, en við verðum að létta af einkarétti Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið þarf að hafa svigrúm til að starfa, að reka nauðsynlega starfsemi sína, en það á ekki að hafa einkarétt.

Þriðjudaginn 1. október reifaði ég í ríkisstj. þá hugmynd að heimila með brbl. frjálst útvarp vegna hinnar nýju stöðu sem upp kom þegar ekkert útvarp var í fjölmiðlalausu landi. Sú hugmynd fékk ekki fylgi innan ríkisstj. þegar af þeirri ástæðu að svo skammt var til þingbyrjunar, en hins vegar vildi ríkisstj. standa að því að afgreiða sem fyrst lög um breytingu á því fyrirkomulagi sem nú gildir og létta af einkarétti Ríkisútvarpsins. Ég vona að af þessu verði hið fyrsta og vona líka að ég hafi skýrt það fyrir hv. þm. sem fyrir bæði mér og ég vona allri ríkisstj. og meiri hluta þingheims vakir að þessu leyti. Ég þykist þess fullviss að menn vilji raunverulega breyta þarna um.

Ég vil, herra forseti, víkja dálítið að einu mjög mikilvægu máli, sem mjög er uppi núna í sambandi við yfirstandandi kjaradeilu, og ég sé mér til gleði að ég hef fengið bandamenn í því efni. Kjör kennara hafa mjög verið til umræðu á undanförnum árum. Við vitum það öll að það er við mikinn vanda að etja. Það er alveg ljóst að í uppbyggingu skólakerfis á næstu árum eru kjör kennara eitt af mjög mikilvægum atriðum, bæði það atriði hvernig staða þeirra, hvernig kjör þeirra eru nú í dag og hitt atriðið hvernig stöðu þeirra er háttað innan launakerfisins í heild. Þessi atriði eru mjög til umfjöllunar hjá ríkisstj. og það hefur þegar verið borið fram af ríkisstj. og túlkaður sá vilji að stöðu kennara innan launakerfisins verði að endurskoða. Inn í þetta dæmi þarf líka, þegar við lítum til framtíðarinnar, að taka hvernig við getum best staðið að því að meta menntun kennara, en menntun kennara og kjör þeirra eiga að haldast í hendur. Þetta tvennt þarf að vera í hinu ágætasta horfi til þess að tryggt sé að hið ágætasta fólk fáist til þessara starfa og að litið sé á starfið í samræmi við þá ábyrgð sem því fylgir. Þessi atriði lét ég koma fram í ræðu minni á þingi Kennarasambandsins s.l. vor. Það liggur fyrir, og jafnt nú eins og þá, að með þessu er ég ekki að hvetja til almennra launahækkana eða lofa almennum launahækkunum. Ég vil einungis láta liggja ljóst fyrir að það er mikill vilji fyrir því að bæta úr því sem þarna óneitanlega skýtur skökku við.

Ég held, herra forseti, þótt mörg mál séu vissulega þess eðlis að vert væri að fara sérstaklega út í þau, að ég geri það ekki. Þetta eru orðnar langar umræður. Ég vil einungis ljúka máli mínu á því að segja þetta: Ég vona af heilum hug að það takist að leiða þessa kjaradeilu til lykta með þeim hætti að báðir aðilar, bæði starfsmenn ríkisins og raunar allir aðilar, líka þeir launþegar sem ekki ern innan ríkiskerfisins, svo og ríkið sjálft, geti staðið við þau markmið sín að halda góðum lífskjörum, að bæta lífskjör þeirra sem verst eru settir og að halda því meginmarkmiði ríkisstjórnarinnar, sem er mikið kjaramál alls almennings í landinu, en það er, að missa ekki á nýjan leik verðbólguna lausa. Það skiptir gífurlegu máli að það takist og mér er það fulljóst að þeir sem nú standa í kjarabaráttu leggja mikið upp úr því að verðþróunin taki ekki aftur það skrið sem var hér áður en ríkisstj. tók við. Það skiptir ekki einungis máli fyrir þá aðila, heldur fyrir alla framtíð okkar ríkisbúskapar að okkur takist að koma efnahagsmálunum til frambúðar í viðunanlegt horf. Það reynir á þolinmæðina, en með samstilltu átaki okkar allra held ég að það takist.