26.02.1985
Sameinað þing: 54. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3221 í B-deild Alþingistíðinda. (2715)
251. mál, fullvinnsla sjávarafla
Flm. (Guðmundur J. Guðmundsson):
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um fullvinnslu sjávarafla á þskj. 429. Þessi till. til þál. er mjög stutt:
„Alþingi ályktar að skora á ríkisstj. að beita sér fyrir sérstökum ráðstöfunum til að efla fullvinnsluiðnað sjávarafla, m.a. með því að beina til hans auknu lánsfé og auka rannsóknir og efla markaðsleit fyrir sjávarafurðir.“
Ærið oft heyrist það í seinni tíð að möguleikar íslensks sjávarútvegs fari þverrandi vegna takmarkaðs afla og sjávarútvegurinn muni egna æ minna hlutverki í íslenskri þjóðarframleiðslu. Ég er á annarri skoðun. Ekki vegna þess að ég sé andvígur aukinni þróun í íslenskum iðnaði og öðrum atvinnugreinum, öðru nær, heldur vegna hins, að það er trúa mín og vissa að við getum stóraukið gjaldeyristekjur okkar af íslenskum sjávarútvegi og fjölgað atvinnutækifærum með aukinni vinnslu sjávarafla.
Ég er þeirrar skoðunar að þjóðin ætti að setja sér þau markmið að auka hlutfallslegt verðmæti íslensks sjávarafla um a.m.k. 1/3 á næstu fimm árum. Gjaldeyristekjur af íslenskum sjávarútvegi 1984 voru 16 milljarðar 331 millj. 600 þús. Þriðjungshækkun mundi þýða gjaldeyrisaukningu upp á rösklega 5.4 milljarða. Þá hef ég trú á að ef verulega vel væri að verki staðið mætti auka þessi verðmæti enn meira. Ég skal síðar í máli mínu renna stoðum undir þessar fullyrðingar, en eins og segir í grg. þál. er það frumskilyrði að uppfyllt séu fjögur grunnatriði:
1. Aukið fé til uppbyggingar vinnslustöðva.
2. Hagstæðari afurðalán.
3. Auknar rannsóknir og þróunarstarsemi.
4. Stórefld markaðsleit.
Allir þessir þættir verða að haldast í hendur og verður varla í sundur greint hver þeirra er mikilvægastur, svo samtengdir eru þeir.
Vöruskiptajöfnuðurinn 1984 varð óhagstæður um 3 milljarða. Útfluttar vörur voru 23 milljarðar 760 millj., en innfluttar vörur 26 milljarðar 744 millj. Finnst mönnum markmiðið að auka útflutningsverðmæti sjávarafla um a.m.k. 1/3 ekki vera knýjandi í ljósi þessara talna?
Nú mundi einhver spyrja hvort ég væri að leggja til áætlunarbúskap. Nei, svo er ekki. En þó vil ég minna á að eitt merkasta starf sem unnið hefur verið fyrir íslenskan sjávarútveg var unnið af skipulagsnefnd atvinnumála sem sett var á laggirnar 1934, hafði viðurnefnið Rauðka, hvar í var formaður Héðinn Valdimarsson og síðar tók við hans störfum Finnbogi Rútur Valdimarsson. Einnig má nefna störf fiskimálanefndar, sér í lagi frá 1935–1938. Þessar nefndir lögðu grunninn að íslenskum frystiiðnaði, skreiðarverkun, markaðsleit og svo mætti lengi upp telja, t.d. tillögur fiskimálanefndar í lagmetismálum. Sannleikurinn er sá að þessar nefndir unnu svo ótrúleg brautryðjenda- og framfarastörf að ég efast um að í aðra tíð hafi verið unnin öllu jákvæðari störf fyrir íslenskt atvinnulíf.
Nú held ég að þessi störf verði ekki leyst með nefnd þótt það kunni að vera nauðsynlegt til að hafa betri heildarsýn. Ég held að sölusamtök, einstök fyrirtæki og einstaklingar þurfi að einhenda sér í þessi störf og þá sé hægt að ná þessum markmiðum.
Í grg. með þáltill. er vakin athygli á nokkrum dæmum um aukna vinnslumöguleika. Þarna er ekki um tæmandi upptalningu að ræða. Svo verður ekki heldur í ræðu minni hér, en þó skal ég koma með fleiri dæmi til áhersluauka og gæti þulið enn lengur.
Í grg. minni er minnst á grásleppuhrogn. Við höfum yfirleitt saltað í 12–20 þús. tunnur á ári. Til loka októbermánaðar á síðasta ári, 1984, fluttum við út röskar 16 þús. tunnur að verðmæti tæpar 130 millj. Stærsti hluti þessa magns fór til Danmerkur, en stór hluti framleiðslunnar hefur verið seldur þangað um árabil. Í Danmörku er framleiddur kavíar úr hrognunum og honum pakkað í litlar neytendaumbúðir. Vinnsla þessi er einföld. Hrognin eru tekin úr tunnunum frá Íslandi, lituð og blönduð rotvarnarefnum og er meginvinnslan fólgin í þessu.
Athyglisvert er að þetta er ekki gert fyrir danskan heimamarkað, heldur flytja Danir þessa vöru úr landi. Verksvið þeirra er framhaldsvinnsla og verslun. Danski kavíarinn frá Íslandi er fluttur sem lúxusvara til ýmissa landa, en stærsta markaðslandið er Frakkland. Stærstu kaupendur eru hótel og verslunarhringar í þessum löndum.
Íslendingar hafa framleitt lítils háttar kavíar, úr 1–3 þús. tunnum á ári. Framleiðslan er þetta frá 12–20 þús. tunnur, en við fullvinnum sjálfir um 1–3 þús. Útflutningsverðmætið tvö- til þrefaldast við þessa vinnslu. Hins vegar er vitað að Danir hafa komist inn á dýrari markað en við sem þýðir að verðmætisaukningin hjá þeim er mun meiri. Í ljósi þess að 60% heimsframleiðslunnar af grásleppuhrognum koma frá Íslandi og bestu hrognin á heimsmarkaði eru héðan er ljóst að við Íslendingar ættum að hafa markaðinn í hendi okkar. Hvað mundi gerast ef við hættum að leggja Dönum til þetta hráefni?
En áfram halda Íslendingar að salta grásleppuhrogn í tunnur.
Tökum þorskhrogn. Það er af nægu að taka. Álitið er að Íslendingar framleiði allt að 50% af þorskhrognum á heimsmarkaði, svona um 3 þús. tonn á ári. Nær allir togarar henda hrognum í sjóinn svo framleiðslan gæti verið töluvert meiri ef hráefnið væri nýtt.
Meiri hluti þorskhrogna er saltaður. Árið 1984 framleiddum við 1026 tonn af sykursöltuðum þorskhrognum að verðmæti 41 millj. 116 þús. sem gera um 40 þús. fyrir tonnið, 193 tonn frystra matarhrogna fyrir 11 millj. 890 þús. kr., þ.e: 61 þús. 450 kr. á tonnið, 734.6 tonn iðnaðarhrogna fyrir 13 millj. 606 þús. eða 18 500 kr. á hvert tonn og 295 tonn niðursoðinna hrogna fyrir 55 millj. 682 þús: eða á 185 þús. 237 á tonnið. Svokölluð iðnaðarhrogn eru hrogn þar sem hrognasekkurinn hefur rifnað. Þau seljum við til Danmerkur fyrir röskar 18 þús. kr. á tonnið. Danir sjóða þessi hrogn niður og selja út um heim. M.a. er mjög auðvelt að fá þau í verslunum á Íslandi. Við sjóðum niður tæpan helming af því sem við seljum Dönum sem iðnaðarhrogn og flytjum mest af því út til Frakklands og Bandaríkjanna. Verðið er röskar 185 þús. kr. tonnið eða tífalt það verð sem fæst fyrir hrognin sem við seljum Dönum til niðursuðu. Bestu hrognin seljum við sykursöltuð til Svíþjóðar og lítils háttar til Grikklands. Fyrir það fáum við 40 þús. kr. tonnið á móti 185 ef við sjóðum þau sjálfir niður eða rösklega 1/3 af því verði sem við fáum fyrir okkar eigin niðursuðu. Svíar breyta miklu af þessum hrognum í kavíar, setja í neytendaumbúðir, svo sem túpur, með alls konar bragðefnum. Þessi vara er seld á sælkeramarkaði í Svíþjóð og í öðrum löndum. Það er t.d. hægt að fá hana hér í verslunum. Við seljum 310 tonn af grófsöltuðum hrognum til Grikklands og fáum fyrir það 27 400 kr. á tonnið. Ég fæ þær upplýsingar frá bækistöð Sölumiðstöðvarinnar í Grimsby að bæði Bretar og Frakkar séu sífellt að biðja um hrogn sem Bretar steikja en Frakkar reykja m.a., en okkar svar er: Við eigum engin hrogn til að selja.
Við hendum hluta af hrognunum sem til falla. Okkar eigin niðursuða gefur tífalt verð á móti því hráefni sem við seljum Dönum. Var einhver að segja að íslenska þjóðin ætti í gjaldeyriserfiðleikum?
Lifur. Sú lifur sem nýtt er hér á landi er einkum úr fiski sem landað er óslægðum, þ.e. úr afla dagróðrabáta. Hún er einkum brædd til lýsisframleiðslu, en lítils háttar er þó soðið niður. Svo til allri lifur sem til fellur á togurum er fleygt í sjóinn til múkkafóðurs. Sovétríkin hafa í tvennum síðustu viðskiptasamningum óskað eftir að kaupa helmingi meira magn af niðursoðinni lifur en við höfum getað afgreitt. Við framleiðum árlega um 1.5 millj. dósa, en getum auðveldlega tvöfaldað það magn af þeirri lifur sem til fellur nú þegar. Vestmanneyingar eru manna ötulastir í niðursuðu á lifur. Gjaldeyristekjur af niðursoðinni lifur eru u.þ.b. fimmfaldar miðað við brædda lifur. Ekki er að sjá af þessu að gjaldeyrisöflunin sé mikið atriði fyrir íslenskt þjóðfélag.
Völsum örlítið meira um. Sjólax er framleiddur úr söltuðum ufsaflökum. Fiskurinn er skorinn í lengjur, beinhreinsaður og skorinn í sneiðar, litaður og rotvarður og líkist þá laxi. Sjólaxinn er oft soðinn niður. Söltuð ufsaflök sem við seljum til Þýskalands eru notuð til sjólaxframleiðslu þar í landi. Aðrir markaðir fyrir sjólax eru í Tékkóslóvakíu og Frakklandi. Gjaldeyristekjur eru mun meiri fyrir sjólax en saltaðan ufsa, en ýmsir þeirra sem aðstöðu hafa til slíkrar framleiðslu hér á landi segja og það er athyglisvert og það á eftir að koma hér fram oftar, að þeir hafi ekki vinnuafl til þessarar vinnslu. Einnig munu tollamál valda þarna nokkru um. Áður var nokkur framleiðsla á sjólaxi hér á landi, en undanfarin ár hefur hún að mestu legið niðri. Sagt var að Norðmenn hefðu undirboðið okkur á þessum mörkuðum.
Gífurleg aukning hefur orðið á rækjuveiðum síðustu árin og stafar það fyrst og fremst af veiðum á úthafsrækju. Rækjan er fryst að hluta, að hluta heilfryst en mikill meiri hlutinn er þó pillaður. Talsverð niðursuða er einnig á rækju. Leggja þarf áherslu á báðar þessar vinnslugreinar þar sem verðsveiflur á mörkuðum eru nokkrar, en falla ekki saman á niðursoðinni rækju og frystri. Áraskipti eru á því hvor vinnslugreinin er hagstæðari. Stór hluti af frystu rækjunni er fluttur út í 10 kg. pakkningum, en erlendis, t.d. í verksmiðjum SH í Grimsby er henni pakkað í smærri umbúðir — slíkar umbúðir eru 250 gr., 400, 450 o.s.frv. — þ.e. í svokallaðar neytendaumbúðir. Margir rækjuframleiðendur telja sig ekki hafa vinnuafl til að annast smærri pakkningar, þannig að þó nokkur atvinna flyst úr landi af þessum sökum og að sjálfsögðu nokkur gjaldeyrir.
Vitað er að hér við land eru ýmsar skelja- og krabbategundir sem lítið eða ekkert eru nýttar. Verið er að kanna útbreiðslu á krabbategundum og skeljum á vegum Hafrannsóknastofnunar og þyrfti að auka þær rannsóknir og veita í þær meira fjármagni þar sem fjárskortur háir þeim. Af skeljum er hörpudiskurinn mest veiddur hér við land og raunar eins mikið og þekking á veiðisvæðum leyfir. Gegna veiðar hans mikilvægu hlutverki í atvinnumálum ýmissa byggðarlaga og gera hreint útslag á afkomu þeirra. Kúskel er hér við land mjög útbreitt skeldýr að margra áliti. Sérstaka veiðitækni þarf að nota við veiðar á kúskel, svokallaða dæluplóga. Gengið hefur illa fram til þessa að fá viðunandi verð á markaðinn fyrir kúfiskinn, en nú fer fram nokkuð ítarleg rannsókn á meðferð og vinnslu þessa hráefnis og gefur vissar vonir þótt ekkert sé hægt að fullyrða hver niðurstaðan verði. En verði niðurstaðan jákvæð yrði um mjög mikla framleiðslu að ræða.
Ýmsar aðrar skeljategundir eru hér við land sem kanna þyrfti möguleika á veiðum og vinnslu á.
Víða erlendis eru veiðar og vinnsla á ýmsum krabbategundum stundaðar með góðum árangri. Til mikils er að vinna í þessu sambandi þar sem afurðir af kröbbum eru einhverjar dýrustu sjávarafurðir sem þekkjast. Krabbaveiðar hafa farið vaxandi víða um heim og má í því sambandi benda á að krabbaveiðar við Atlantshafsströnd Kanada hafa ekki verið stundaðar að marki fyrr en núna síðustu árin að mikill vöxtur hefur hlaupið í þær. Krabbinn er veiddur í gildrur og haldið lifandi um borð í skipum. Það sem einkum er nýtt er fiskurinn og klóin og notaðar sérstakar vélar til þess að ná kjötinu úr klónum. Lögð er á það megináhersla að kjötið skaddist sem minnst og haldi upprunalegri lögun þar sem langhæsta verðið fæst fyrir stykki sem ekki hafa skaddast. Kjötið er bæði fryst og soðið niður o.fl. Mikil gróska er í þessari grein í Kanada og er talið að þetta sé arðvænlegasta grein í sjávarútvegi þar í landi. Sömu sögu mætti segja víða frá, að lögð er áhersla á krabbaveiðar.
Þau krabbadýr sem veidd eru við Ísland eru humar og rækja, en það eru einmitt dýrustu sjávarafurðir sem við framleiðum.
Hér við land eru nokkrar krabbategundir sem til greina gæti komið að veiða og standa nú yfir tilraunir með veiðar og vinnslu. Það er langt mál upp að telja tegundir. Þarna þarf aukið fé líka. Sem dæmi um tegundir eru trjónukrabbi, bogakrabbi, gaddakrabbi, stóri og litli tröllakrabbi. Góðir markaðir eru fyrir þessar afurðir t.d. í Frakklandi.
Það hefur háð íslenskum sjávarútvegi í gegnum tíðina að hér hefur aldrei tekist að ná góðum tökum á lagmetisiðnaði, þrátt fyrir að við höfum að mörgu leyti bestu skilyrði þar sem er úrvalshráefni. Orsökina fyrir þessu getur verið nokkuð erfitt að skýra, en þarna virðast vera margir samverkandi þættir, Þetta má kannske skýra best þannig að danskt lagmeti úr aðfluttu íslensku hráefni virðist oft vera betri vara en tilsvarandi íslenskt lagmeti. Hér á landi virðist því vanta faglega þekkingu og árvekni og við virðumst vera ákaflega fjarri hinni heimsfrægu matargerðarlist Dana. Við stæðum öðruvísi að vígi ef við kæmumst nær henni. Einnig kann það að vera þáttur í þessu að við leggjum svo mikið kapp á aflamagn frekar en að sérhæfa okkur í fullvinnsluiðnaði. Til skamms tíma var fullt eins mikið keypt af erlendu lagmeti hér á landi og innlendu, ef fiskibollur og fiskbúðingur eru frátalin.
Eitt af því sem háði lagmetisiðnaði hér á landi var að margir smáir aðilar fluttu það úr landi. Með tilkomu Sölustofnunar lagmetis var ráðin bót á þessum þætti. En þótt um nokkra aukningu hafi verið að ræða á framleiðslu og sölu verður að telja að starfsemi Sölustofnunar lagmetis hafi ekki skilað þeim árangri sem vænst var við stofnun hennar. T.d. eru ekki nema nokkur ár síðan minnstu munaði að við legðum stærsta markað okkar fyrir niðurlagða síld, Sovétmarkaðinn, í rúst vegna forkastanlegra vinnubragða. Á þessu hefur nú verið ráðin bót og vaxandi sala er á niðurlagðri síld til Sovétríkjanna sem býður upp á enn meiri möguleika ef vel er á haldið. Því ber hins vegar ekki að neita að nú allra síðustu árin virðast hafa orðið framfarir í þessum efnum. Útflutningur lagmetis hefur aukist, en fyrst og fremst í gaffalbitum og rækjum. Þrátt fyrir nokkra aukningu í útflutningi er lagmetisiðnaðurinn ekki í hópi stærri vinnslugreina.
Eitt af skilyrðum þess að um verulega verðmætisaukningu verði að ræða í íslenskum sjávarútvegi er að við náum tökum á lagmetisiðnaðinum t.d. með fjölbreyttari framleiðslu. Því ekki að reyna einhverja séríslenska rétti, niðursoðið heilagfiski, rauðmaga? Svona mætti telja endalaust. Við skulum ekkert fullyrða um hvað væri heppilegast þarna. Það eru uppi margar skoðanir, enda möguleikarnir svo margir.
Langstærsta vinnslugreinin í íslenskum sjávarútvegi er frystiiðnaðurinn. Helstu kaupendur okkar eru Bandaríkjamenn, eins og allir vita, en í Bandaríkjunum er langstærsti markaðurinn og verðmesti, þá Bretland og Sovétríkin. Í frystiiðnaðinum hefur orðið mikil þróun síðustu 30 árin. Áður fyrr seldum við mest af frystum fiski til Bretlands, ýsu fyrst og fremst. En þegar löndunarbann var sett á íslenskan fisk í Bretlandi vegna stækkunar landhelginnar í 4 mílur árið 1952 tókst okkur að gera mjög stóra samninga um sölu á frystum fiski til sovétríkjanna. Bretum hefði sennilega tekist að kúga Íslendinga til hlýðni í landhelgismálum hefðu þessir samningar ekki náðst við Sovétríkin. En sennilega hafa Bretar gert okkur stóran greiða. Þetta varð til þess að við fórum að snúa okkur að vinnslu sjávarafla í mun stærri stíl en hafði verið áður. Á síðari árum hefur salan til Sovétríkjanna minnkað og er nú að mestu bundin við karfaflök og heilfrystan fisk.
Ein happasælasta aðgerð sem framkvæmd hefur verið í markaðsmálum íslenskrar fiskvinnslusögu er þegar Jón Gunnarsson, forstjóri Coldwater í Bandaríkjunum, lét reisa fiskverksmiðju þar í landi og braust inn á bandarískan fiskmarkað. Upphaflega var aðeins um fiskblokkir að ræða, en síðan í vaxandi mæli fisk í flaka- og svokallaðar neytendapakkningar. Þessi markaður greiðir langhæsta verð fyrir frystan fisk.
Það er athyglisvert að fjölmargir frystihúsaeigendur hér á landi hafa sagt mér að þeir hafi ekki mannafla í frystihúsum til að vinna dýrustu pakkningarnar vegna þess hvað þær séu mannfrekar. Ég held að það væri rétt að þm. hefðu þetta í huga þegar hagsmunamál fiskvinnslufólks ber hér á góma á næstunni.
Frekari möguleikar á hinum bandaríska markaði byggjast á því að við getum nýtt til fullnustu framleiðslu og sölu á dýrustu pakkningum. Því nær sem við komumst matardiskum neytandans, því örari verður verðhækkunin á vörunni. Fyrir 15–20 árum hefði verið talið útilokað að við gætum selt jafnmikið magn í dýrum neytendaumbúðum og við gerum nú. Enginn skal halda að það séu ekki fyrir hendi í Bandaríkjunum enn frekari og dýrari vinnslu- og sölumöguleikar en nú eru. Frekari vinnsla á frystum fiskafurðum okkar er leiðin að aukinni verðmætasköpun. Ef við erum vakandi fyrir gæðum, vöruvöndun, hugkvæmni og sölutækni getum við enn aukið verðmæti frystra fiskafurða á Bandaríkjamarkaði.
Íslendingur, sem er búsettur í Bandaríkjunum og er þrautkunnugur sölu á íslenskum frystum fiski þar í landi, segir mér að það veki oft undrun sína hve mikið af fiski sé í frystum blokkum og það af góðum fiski, en verð á þeim er mikið lægra en á fiski í svokölluðum neytendapakkningum. Þegar hann spyr hvað þessu valdi er jafnan svarað í höfuðstöðvum íslenskra söluaðila að ekki sé vinnuafl til að vinna í vinnslufrekari neytendaumbúðir. Þá segir hann mér einnig að svokallaðar neytendapakkningar séu minnst í 5 punda öskjum. Þetta séu fyrst og fremst pakkningar fyrir hótel, alls konar mötuneyti o.s.frv. Hins vegar séu sérfrystar minni pakkningar, t.d. 1 punds, ófáanlegar, en þær væri hægt að selja í kjörbúðum um öll Bandaríkin og komast þannig nær hinum almenna neytanda. Það sé nær óþekkt. Kanadamenn hafi verið fljótari á ferðinni með slíkar pakkningar, en sannfæring þessa manns er sú að hægt sé að stórauka sölu á Bandaríkjamarkaði á slíkum pakkningum. Þá segir hann mér einnig að hægt sé að stórauka sölu á grálúðu í minni og dýrari pakkningum en nú tíðkast. Grálúðan sé að vinna á á Bandaríkjamarkaði. Var einhver að tala um að ameríski markaðurinn væri gjörnýttur?
Áður en Bretar misstu fiskimiðin við Ísland, Færeyjar og Noreg fiskuðu þeir um 1 millj. tonna af bolfiski og flatfiski. Eftir að þeir töpuðu þessum miðum fiska þeir um 500 þús. tonn tæp af þessum fisktegundum. Minnkaði afli þeirra um rösklegan helming. Þeir flytja inn um 400 þús. tonn af bolfiski og flatfiski. Þarna höfðum við möguleika á aukinni sölu á frystum fiski. Hins vegar hefur gengi enska pundsins verið mjög lágt og fer sífellt lækkandi. Það orsakar að þessi markaður hefur ekki verið hagstæður, en hafa verður í huga að markaðurinn er stór því Bretar eru ef ég man rétt, um 56 millj. og miklir fiskneytendur.
Við seljum Bretum fyrst og fremst blokkir. Hluti af þeirri framleiðslu er skorinn niður í litlar sneiðar og þær seldar sem fiskborgarar, „Seaburgers“. Niðurskurður í blokkirnar fer að miklu leyti fram í fiskverksmiðju SH í Grimsby og síðan meiri tilheyrandi vinnslu. Í fiskverksmiðju SH í Grimsby vinna um 200 manns við niðurskurð á fiskblokk, steikingu og frekari vinnslu og við pökkun á íslenskri rækju.
Athyglisvert er að bæði Dönum og Norðmönnum hefur tekist að framleiða og selja í Evrópu fullunna fiskrétti og þar gildir lögmálið sem ég gat um áðan: Því nær matardisknum sjálfum, því örari verðmyndun. Þarna sitjum við Íslendingar algerlega eftir. Ég veit ekki til að neinar tilraunir að ráði hafi farið fram í þessum efnum. Við höfum komist einna lengst í framleiðslu á fiskibollum og seljum þær alla leið til Ástralíu. Enn kemur aftur skortur á tilraunum, lítil matargerðarlist og sölutækni á lágu stigi. Það væri fróðlegt fyrir þm. að skoða danskar umbúðir á matvörum. Skoðið þið danskar lagmetisumbúðir í verslunum hér á landi utan um vöru sem selst vel. Þarna bíða okkar miklir möguleikar.
Því er haldið fram að tollmúrar Efnahagsbandalagslandanna hindri að slíkir hlutir séu framkvæmanlegir. Má ég þá benda á að Norðmenn eru ekki í Efnahagsbandalaginu og kaup er helmingi lægra hér en í Danmörku og Noregi og fiskverð upp úr sjó lægra hér. Þarna er miklu meiri munur en sem nemur tollunum.
Það er athyglisvert að með hafréttarsáttmálanum um 200 mílna fiskveiðilögsögu hafa ýmsar fjölmennustu fiskneysluþjóðir misst mikla möguleika til fiskveiða. Það má nefna Sovétríkin með um 300 millj. íbúa, Japan með um 120 millj., Bretland og Þýskaland með samanlagða íbúatölu yfir 100 millj. og fleiri þjóðir mætti nefna. Þetta eykur mjög á möguleikana fyrir fiskveiðiþjóðir. Gott dæmi er útflutningurinn á frystum karfa til Japans sem er ein mesta fiskneysluþjóð í heimi. Þessi sala gefur mikil fyrirheit. Viðbrögð okkar við þessari þróun verða því að vera bæði snögg og markviss.
Söltun hefur verið önnur stærsta vinnslugrein í íslenskum sjávarútvegi. Útflutningur á saltfiski hefur numið 35–60 þús. tonnum árlega að undanförnu. Nær allur saltfiskur er fluttur úr landi blautverkaður gagnstætt því sem áður var. Fram yfir heimsstyrjöldina síðari var hins vegar nær allur saltfiskur fluttur út þurrkaður. Athyglisvert er að aðrir helstu framleiðendur saltfisks, Norðmenn og Kanadamenn, þurrka megnið af framleiðslu sinni. T.d. nam útflutningur saltfisks frá Noregi um 69 þús. tonnum árið 1982. Þar af voru 53 þús. tonn af þurrkuðum fiski og tæp 16 þús. tonn af blautfiski. Saltfiskur léttist um rúmlega þriðjung við þurrkunina, misjafnlega þó, og samsvarar megnið af útfluttum þurrfiski því um 71 þús. tonnum af blautverkuðum fiski eða um 80%. Í Noregi er óheimilt að flytja blautverkaðan fisk úr landi nema fá til þess sérstakt leyfi þjóðbankans.
Á Íslandi nam útflutningur á blautverkuðum saltfiski rúmum 56 þús. tonnum árið 1982, en á þurrkuðum fiski tæpum 1500 tonnum eða 3–4%. Árið 1983 nam útflutningur blautverkaðs saltfisks á Íslandi um 45 þús. tonnum, en þurrfisks um 2800 tonnum. Hvernig stendur á þessum gífurlega mismun á verkunaraðferðum á Íslandi annars vegar og í Noregi og Kanada hins vegar?
Norðmenn og Kanadamenn telja sig fá meiri gjaldeyrisverðmæti með því að flytja út þurrkaðan saltfisk. Þess vegna þarf sérstakt leyfi í Noregi til að flytja út fiskinn blautverkaðan.
Hagstætt ætti að vera að þurrka fisk á Íslandi þar sem jarðhita er að finna við hin ýmsu framleiðslusvæði. Aðrir kostnaðarliðir eru rafmagn og vinnuafl. Hluti af umbúðakostnaði er erlendur og reyndar enginn í sumum verkunartegundum í seinni tíð. En að öðru leyti er um innlendan kostnað að ræða. Meiri hluti þess blautverkaða saltfisks sem við flytjum út er þurrkaður í kaupendalöndunum. Sá fiskur sem þurrkaður er á Íslandi er einkum ódýrari fisktegundir, svo sem ufsi, keila, langa svo og smáfiskur og fiskur í lægstu gæðaflokkum, 3. og 4. gæðaflokki, jafnvel úrkast. Af þessum ástæðum er óraunhæft að bera saman meðalverð á útfluttum tonnum af þurrkuðum og blautverkuðum fiski.
Talið er að meginástæðan fyrir því að íslenski saltfiskurinn er fluttur út blautverkaður sé sú að hægt sé að afskipa honum þannig mun fyrr og spara með því mjög óhagstæð afurðalán. Gjaldeyrislega er þetta hins vegar óhagkvæmt að dómi Norðmanna og Kanadamanna.
Nú mundi einhver segja: Er það að þurrka saltfiskinn ekki byggðastefna til að skapa atvinnu í Norður-Noregi? Þetta gæti virst trúleg skýring. Ef betur er að gáð er megnið af þeim afla sem fer í saltfiskverkun landað og saltað í Norður-Noregi. En þá kemur það furðulega. Saltfiskurinn er fluttur blautverkaður til Sunnmæris, aðallega Álasunds, og þar er hann þurrkaður. 75% af norskri saltfiskþurrkun fer fram í Álasundi og miðað við héraðið allt, Sunnmæri, þurrka þeir þar um 90% af allri saltfiskframleiðslu Norðmanna. Einungis 5% af saltfiskinum er þurrkað í Norður-Noregi. — Vilji einhver halda því fram að Sunnmæri eða Álasund sé í Norður-Noregi skal sá hinn sami lesa gömlu landafræðina sína úr barnaskóla eða líta á landakort. — Mér er nær að halda að Norður-Noregur sé þarna að styðja Suður- eða Mið-Noreg. Það er fróðlegt að geta þess fyrir íslenskt fiskverkunarfólk að kaup er helmingi hærra í Álasundi en á Íslandi.
Ég vil geta þess til fróðleiks — það er af svo mörgu að taka — að það kom hér fram hjá hv. 5. þm. Norðurl. e. að Norðmenn fiskuðu mjög svipað og Íslendingar ef frá væri talin loðnan. Þetta er rétt. Við erum með mun meiri þorskafla en þeir, við erum með minni loðnuafla, við erum með minni rækjuafla. En til þess að fiska þetta — ég hef hér tölur úr Árbók Norðurlanda 1981 sem ég hef ekki tíma til að þylja, eru íslenskir
fiskimenn, þeir sem hafa meginframfærslu sína af fiskveiðum, 6038. En Norðmenn með ekki ósvipaðan afla, hvað eru þeir með marga fiskimenn? 25289 eða rösklega fjórfalt. Ef teknir eru sjómenn sem starfa hluta ársins, sennilega minni hlutann af árinu eru þeir á Íslandi 992, en í Noregi rösk 10 þús. Það er 1:5 og þó eru okkar sjómenn í verkfalli. Þetta var nú útúrdúr, en það er býsna fróðlegt ef maður fer að glugga í þessi efni.
Það er fleira athyglisvert við saltfiskverkun Norðmanna. Þeir selja þurrkaðan saltfisk til a.m.k. 25 landa. Þar er nú s.l. ár í fyrsta sinn stærsti kaupandinn Portúgal sem keypti 13 þús. tonn 1984. Brasilía, sem hefur verið stærsti kaupandinn, er með svipað magn, en örlítið lægra. En Ísland selur til helmingi færri landa. Norðmenn eru með rösklega 25 lönd. Við náum varla helmingnum fyrir okkar markað á saltfiski. En þar af seljum við röskan helming til eins lands, Portúgals. En það sem er nýtt er að Portúgal er orðinn jafnstór kaupandi og Brasilía á þurrkuðum saltfiski Norðmanna og Norðmenn virðast leggja óhemjuáherslu á að komast inn á markað í Portúgal. Þeir hafa nýlega gert nýjan samning við Portúgal fyrir árið 1985 um kaup á 10 þús. tonnum af þurrkuðum saltfiski og 9 þús. tonnum af blautverkuðum fiski. Þeir hafa ekki selt blautverkaðan saltfisk til Portúgals um árabil. Portúgal er hins vegar langstærsta markaðsland okkar fyrir saltfisk. Á s.l. ári keyptu þeir 25 þús. tonn. Norðmenn eru þá bara með hliðstæða sölu og við til Portúgals. Hvað Norðmenn einhenda sér á viðskipti við Portúgal án þess að það verð sem þeir fá sé nokkuð sérstakt umfram aðra staðfestir aðeins þann grun og reyndar vissu að þeir leggja sig fram um að bola hættulegum keppinautum, og ekki síst Íslendingum, út af mörkuðum.
Það er einnig fróðlegt, þótt á öðru sviði sé, að íslenskir saltfiskframleiðendur segja að þeir hafi ekki vinnuafl til saltfiskverkunar hér á landi. Aftur kemur þetta í sífellu: Það er ekki til vinnuafl. Ég veit það og þekki að það að liggja með birgðir á afurðalánum með vöxtum sem á þeim eru er þarna ein meginorsök.
Æskilegt væri að ítarleg rannsókn færi fram á þjóðhagslegri hagkvæmni þess að þurrka stærri hluta saltfiskframleiðslunnar í landinu. Þarna er ég ekki að ásaka einn eða neinn. Ég vil taka það skýrt fram. Ég er aðeins að óska eftir því að þjóðhagsleg hagkvæmni væri athuguð varðandi þurrkun á saltfiski.
Ýmsir möguleikar virðast vera til fjölbreyttari framleiðslu á söltuðum afurðum þó e.t.v. sé ekki í stórum stíl. Í Bandaríkjunum er þó nokkur neysla á saltfiski. Innflytjendur frá Ítalíu, Spáni, Portúgal og eyríkjum í Karabíska hafinu og niðjar þeirra neyta saltfisks. Saltfiskur þessi er yfirleitt seldur í kjörbúðum í litlum neytendaumbúðum. Ekki er vitað til að við höfum nokkru sinni reynt í alvöru að komast inn á þennan markað þó verð sé áberandi hærra en í hefðbundnum markaðslöndum okkar. Fiskur þessi kemur að mestu leyti frá Kanada, þó eitthvað frá Norðmönnum. Þeir selja þangað um 800 tonn af þurrkuðum saltfiski.
Minna má á, ef mönnum finnst þetta fráleitt, að nýlega er upplýst að við höfum selt að undanförnu 1–2 gáma á mánuði af niðursagaðri skreið í litlum plastumbúðum. Hver hefði trúað þessu fyrir svona ári? Þetta er að vísu ekki mikið magn, en þetta sýnir inn á þá ótal möguleika, sem við höfum.
Fyrir eru í landinu skreiðarbirgðir fyrir 1.6 milljarða, að ætlað er. Það er öllum kunnugt hvað mikið er í húfi að við getum selt þessar skreiðarbirgðir. Þarna er um að ræða Afríkuskreið sem eingöngu er hægt að selja í Nígeríu. Meginuppistaðan af þessum fiski er þorskur. En í þessu sambandi hlýtur að vakna sú spurning: Hvers vegna í ósköpunum fórum við að framleiða Afríkuskreið í jafnstórum mæli og gert hefur verið úr þorski, mikilvægustu fisktegundinni sem hægt er að vinna á mun dýrari markað í öðru formi? Gjaldeyrislega er þetta hreint brjálæði. Við verðum að standa þannig að fiskmeðferð að við séum ekki háðir Afríkumarkaði, ekki háðir framleiðslu á Afríkuskreið svo að nokkru nemi. Fyrir getur komið að fiskur verði lélegur af óviðráðanlegum orsökum, t.d. netafiskur í miklum ógæftum. Það eitt ættum við að framleiða af Afríkuskreið. Ef við erum háð þessum markaði að einhverju marki liggur sökin hjá okkur sjálfum og hjá okkur einum að öllu leyti.
Loðnan er sá fiskur sem við veiðum hvað mest af og afli hefur verið sveiflukenndur eins og allir þekkja, en s.l. ár og það sem af er þessu ári hefur afli verið góður. Afkoma þessara veiða fer gífurlega mikið eftir því hvort við þurfum að setja allt í bræðslu eða hvort við getum gert stóran sölusamning við Japan um frysta loðnu og loðnuhrogn. Ef það tekst eru gjaldeyristekjur allt aðrar og meiri. Hrognafrysting úr loðnu er nokkuð vandasöm. Gæta þarf fyllsta hreinlætis í hrognafrystingu og meðferð allri. Þar hafa okkur orðið á nokkur mistök, enda Japanir mjög kröfuharðir um gæði og heilnæmi vörunnar. En okkur ætti að vera auðvelt að uppfylla þær kröfur.
Meginhlutinn af loðnunni er bræddur. Loðnuverksmiðjur á Íslandi eru að ýmsu leyti sæmilega búnar. Þó hafa þær ekki fylgt þeirri þróun sem átt hefur sér stað erlendis. Mætti þar nefna að hráefnisgeymslur eru víða ekki fullnægjandi og svo hitt, að við höfum ekki tekið upp gufuþurrkun á mjölinu eins og nágranna- og samkeppnisþjóðir okkar hafa gert. Við notum enn þá nær eingöngu eldþurrkara þar sem eldgosunum er blásið á pressukökuna til að þurrka hana. Ekki nóg með það að ýmiss konar mengandi efni geta komist í mjölið, heldur verður nýting á mjöli lægri og næringargildi þess minna en við gufuþurrkun. Þá mætti benda á að mengun frá loðnuverksmiðjum hefur verið mjög á dagskrá undanfarin ár, en mengunarvandamál eru mun auðleystari þar sem gufuþurrkun er viðhöfð. Að skipta yfir í gufuþurrkun í öllum loðnuverksmiðjum á Íslandi kostar stórfé og við getum ekki ráðist í það í öllum verksmiðjum í einu, en að þessu ber að vinna. Árangurinn verður betri nýting, betra mjöl, minni mengun.
Frá því um aldamót og fram til ársins 1968 voru síldveiðar og síldarvinnsla einn veigamesti þátturinn í íslenskum sjávarútvegi. Eins og allir vita gilti um síldina frekar en aðrar fisktegundir: Svipull er sjávarafli. Ekki ætla ég hér að fara að rekja sögu íslenskra síldveiða, en hún var ýmist hin gjöfulasta atvinnugrein eða tími vonbrigða og aflabrests. Ég get ekki stillt mig um að minnast á að þegar síldin varð mest á Austfjarðamiðum á áratugnum 1960–1970, árið 1966 t.d., fengust 44% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar fyrir síldarafurðir. Aðeins 3% þjóðarinnar veiddu þetta og verkuðu á þremur mánuðum. Ég efast um að nokkra hliðstæðu sé hægt að finna í veröldinni.
Allir vita hvernig fór með norsk-íslenska og íslensku síldarstofnana sem voru mjög hætt komnir, en með vísindalegum friðunaraðgerðum tókst okkur að ná upp íslenska síldarstofninum, þ.e. sumargotsíldinni, sem síldveiðar Íslendinga byggjast nú á.
Síldveiðar og síldarvinnsla eru nú orðin snar þáttur í íslenskri þjóðarframleiðslu og er síldin fyrst og fremst nýtt til söltunar. Söltun hefur farið vaxandi og nemur 220–240 þús. tunnum, eitthvað um það bil. Aðalmarkaðslandið fyrir saltsíld er Sovétríkin og kaupa þau allt að 80% af saltsíldarframleiðslunni. Næststærsti kaupandinn er Svíþjóð sem hefur mjög fullkominn síldariðnað. Aðrir kaupendur eru smáir; Finnland, Danmörk, Þýskaland, Bandaríkin.
Markaðir fyrir saltsíld eru mjög þröngir og takmarkast að mestu við þau lönd er liggja að Eystrasalti. Áður fyrr var stór kaupandi á íslenskri saltsíld Pólland, en síld er mjög eftirsóknarverð í því landi. En vegna þeirra efnahagsörðugleika sem það land hefur átt í hefur salan þangað nú dottið niður, en íbúar Póllands eru milli 35 og 40 millj.
Það sem skiptir sköpum um afkomu saltsíldariðnaðarins er salan til Sovétríkjanna. Án markaðar í Sovétríkjunum væri þarna um að ræða litla atvinnugrein. Við seljum allt að 200 þús. tunnur til Sovétríkjanna. Eftirspurn meðal neytenda þar í landi er mun meiri en þessu magni nemur. Neysla saltsíldar, einkum í vesturhluta Sovétríkjanna, er mikil og þrátt fyrir að Sovétmenn salti töluvert magn sjálfir, einkum af síld frá Kyrrahafsströndinni í seinni tíð, er síldin það eftirsótt fæðutegund og nýtur slíkra vinsælda þar í landi að möguleikar ættu að vera á enn meiri sölu þangað.
Þarna eigum við í harðri samkeppni við Norðmenn. Þau sölusamtök íslensk sem tvímælalaust mest trausts njóta, bæði innan lands og utan, eru síldarútvegsnefnd. Hún hefur staðið sig frábærlega vel í sölu á afurðum og lagt gífurlega áherslu á vöruvöndun.
Þrátt fyrir að við höfum ekki lengur besta hráefnið til síldarsöltunar, sem við höfðum með Norðurlandssíldinni, framleiðum við bestu saltsíld sem er á mörkuðum. Hvers vegna?
Verkmenning við söltun, verkun og síldarmat er hér á hærra stigi en í nokkru öðru landi. Þetta, ásamt góðri sölumennsku og samningatækni, hefur tryggt okkur sovéska markaðinn.
Úr ákveðnum hópum heyrast stundum þær raddir að við höfum of mikil viðskipti við Sovétríkin sem vestrænt land. Þess vegna vil ég endurtaka að án sovéska markaðarins mundi saltsíldarsalan hrynja. En það spaugilega er — og þó er það kannske ekki mjög spaugilegt — að Norðmenn, sem hafa tekið undir í þessum kór í fordæmingu á sovétviðskiptum, hafa sjálfir gert ítarlegar tilraunir til að komast inn á sovéska markaðinn. Þegar síldarsölusamningar voru að hefjast í haust buðu Norðmenn 30% lægra verð en Ísland og þegar samningar voru u.þ.b. að takast kom frá þeim tilboð til Sovétríkjanna um 40% lægra verð en Íslendingar voru að semja um. Ja, þetta er sovésk fordæming í lagi hjá þeim Norðmönnum.
sjálfsagt er það fróm ósk, en sú ósk er byggð á eftirsókn sovéskra borgara eftir íslenskri síld, en ef við gætum aukið síldarsölu okkar þangað, t.d. um 100 þúsund tunnur, mundum við treysta mjög afkomu íslenska bátaflotans, tekjur sjómanna og síldarverkunarfólks og gjaldeyristekjur vaxa um u. þ. b. 400 millj. á ári.
Ég er alinn upp á heimili togarasjómanns. Alltaf þegar karl faðir minn kom af sjónum gat hann ekki fyrst um aflann, heldur hversu margar tunnur af lifur hefðu verið í túrnum. Aðalhlutur togarasjómanna fyrir stríð var lifrarhlutur, en þá var lifrarlýsið verðmætt og eftirsótt, enda einn helsti vítamíngjafi og mikilsverður vítamíngjafi vítt um heim. Með tilkomnum verksmiðjuframleiddum vítamínum lækkaði verðið á lýsi og hafði þá ekki neitt svipað gildi og áður var.
Nýlegar rannsóknir á vegum Lýsis hf. og Raunvísindastofnunar Háskólans gefa tilefni til bjartsýni með fjölþættari og verðmætari vinnslu úr lýsi. Framtak þetta er virðingarvert og dæmi um þá möguleika sem eru á vinnslu úr íslenskum sjávarafurðum.
E.t.v. finnst mörgum að ég sé orðinn langorður og skal ég draga mál mitt saman þótt ég eigi mjög margt ósagt. Ég hef verið að reyna að benda á nokkra þætti til aukinnar verðmætasköpunar í íslenskum sjávarútvegi, en það er aðeins fátt eitt talið. Möguleikarnir í íslenska sjávarútveginum eru miklu meiri og á hinum ótrúlegustu sviðum. Spurningin er aðeins sú hvort við höfum framsýni og hyggindi til að hagnýta okkur þá eða ekki.
Ég legg áherslu á að það getur enginn atvinnuvegur borið sig á þeim vaxtakjörum sem íslenskur sjávarútvegur býr nú við ef við ætlum að byggja upp íslenskan fiskiðnað enn frekar. Þá kynnu einhverjir að spyrja: Hvar á að fá fé til þess að byggja frekar upp íslenskan fiskiðnað? Svar mitt er eitt og aðeins eitt: Ef það verður ekki gert verður ekkert fé til í þessu landi.
Við verðum að gera okkur grein fyrir að við þurfum stóraukið fé til fiskirannsókna og við komum ekki upp fiskiðnaði án verulegrar eflingar rannsókna og þróunarstarfsemi. Engu fé er jafnvel varið og til slíkra rannsókna. Það gengur ekki lengur að við verjum minnsta fé hlutfallslega miðað við aðrar nágrannaþjóðir til rannsóknastarfsemi. Þróaður fiskiðnaður rís ekki án öflugrar rannsóknarstarfsemi. Þetta gildir jafnt um ríki og fyrirtæki. Það eru ekki síður fyrirtækin sem þyrftu að athuga sinn gang í þessu.
Í markaðsleit og vöruþróun þurfum við að umbylta öllum okkar vinnubrögðum. Við þurfum fyrst að framleiða fjölbreyttari vöru og við þurfum síðan að kynna hana með öflugri kynningarstarfsemi og fylgjast vel með vöruþróun á hinum ýmsu mörkuðum í heiminum. Við þurfum hóp sérfræðinga, jafnöfluga í úfflutningsstarfsemi þeim sem nú starfa í innflutningsstarfsemi. — Getum við ekkert lært af Dönum í umbúðatækni? Við eigum hóp af góðum listamönnum, við eigum prýðilega hæfar auglýsingastofur. Af hverju ekki að nýta þetta fólk í þágu útflutnings og gjaldeyrisöflunar? Það er ekki nóg að auglýsa innanlands vátryggingar og kaffisölu.
Boðorð dagsins er: Meiri kraft í útflutninginn, meiri kraft í sölutækni á íslenskum afurðum, kynna sér betur vöruþróun í hinum fjölmörgu ónýttu og vannýttu markaðslöndum, meiri matargerðarlist í íslenskan sjávarútveg og svo mætti lengi telja.
Ég sagði í upphafi að ég teldi að hægt væri að auka verðmæti íslensks sjávarafla um 1/3 á fimm árum. Ég er sannfærður um að þetta er vel framkvæmanlegt og þótt hærra væri stefnt. I dag flýr fólk úr íslenskum sjávarútvegi. Hvert stefnir sú þjóð þar sem fólkið flýr grunnframleiðsluna vegna lélegra launa eða óvissrar atvinnu?
Að lokum vil ég undirstrika þann boðskap sem hv. 4. þm. Norðurl. v. Eyjólfur Konráð Jónsson hefur boðað manna mest hér á landi og á þakklæti og virðingu skilið fyrir, en það er fiskirækt, sér í lagi laxarækt. Að mati Eyjólfs og annarra kunnugra getum við á fimm árum ræktað af laxi ýmist með hafbeit eða eldi, um 25 þúsund tonn. Það mundi gefa í gjaldeyri 7 milljarða á ári. Við höfum óvenjulega hagstæða aðstöðu umfram flestar aðrar þjóðir: ómengað vatn og sjó, heitt vatn og möguleika á innlendri ódýrri fóðuröflun, loðnu, loðnumjöli og alls konar fiskimjöli, rækjuskel o.fl. Heita vatnið eykur vaxtarhraðann.
Ég flyt ekki lengra mál um laxarækt. Það hefur einn brautryðjandi okkar á þessu sviði, Eyjólfur Konráð Jónsson, gert bæði hér á Alþingi og í fjölmiðlum og sýnt það í verki í laxaræktunarstöðvum, sem hann er þátttakandi í, hvers við erum megnungir. En með þessum tillögum, 5.5 milljarða í aukningu á verðmæti sjávarafla á næstu fimm árum, 7 milljarða eingöngu á laxarækt það er fleiri fiskirækt til — eru komnar þarna hátt í 13 milljarða gjaldeyristekjur á ári. Erum við í svo miklum vandræðum að við sjáum ekki hvaða möguleikum við stöndum frammi fyrir? Við höfum gleymt hvar við búum. Þetta er síður en svo sagt til þess að gera lítið úr öðrum atvinnugreinum eða draga úr gildi þeirra.
Herra forseti. Ég skal ekkert um það segja hvaða afgreiðslu þessi stutta þáltill. mín fær hér á Alþingi. Kannske verður henni vísað frá, kannske svæfð í nefnd, kannske samþykkt og látin rykfalla í stjórnarráðinu. En hver sem afdrif hennar verða, þá brennur á þessu þjóðfélagi hvort það ætlar að nýta þá möguleika sem fullvinnsla sjávarafurða býður og það verður ekki svæft.