26.02.1985
Sameinað þing: 54. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3239 í B-deild Alþingistíðinda. (2720)

251. mál, fullvinnsla sjávarafla

Stefán Guðmundsson:

Herra forseti. Ég sé ástæðu til þess að koma upp og þakka hv. þm. Guðmundi J. Guðmundssyni fyrir að opna umr. um stórt mál. Það er ekki svo oft sem við gefum okkur tíma til þess að staldra við, ágætir þm., og fjalla um þessi annars svo mikilvægu mál.

Það er orðið nokkuð liðið á dag og ég skal ekki efna til langra umr. í viðbót við það sem þegar er orðið þó að vissulega væri ástæða til þess. Það vildi svo til að þegar ég kom inn á þing sem varamaður eitt sinn flutti ég till., kannske ekki svo mjög ólíka þessari, um bætta nýtingu í sjávarafla og taldi mig þar geta sýnt fram á hvaða árangri mætti ná með því að auka nýtingu þess sjávarfangs sem á land væri dregið. Sú till. var samþykkt seint og um síðir því að þegar ég var kominn hér inn aftur sem þm. endurflutti ég það mál. Það má sjálfsagt deila um það hvort einhver árangur hefur hlotist af þeirri samþykkt eða ekki, um það skal ég ekki segja. Hins vegar er það staðreynd að tækninni hefur fleygt fram og við höfum vissulega náð lengra á þessari braut en menn töldu sig þá sjá og væri raunhæft að tala um. En ég vil taka það skýrt og rækilega fram að ég er sammála nánast flestu eða öllu sem hv. þm. Guðmundur J. Guðmundsson sagði.

Þegar ég var að basla með till. mína kom maður úr þessari atvinnugrein, sem hvað mest hafði skrifað og talað um þessi mál, og taldi að hér væri ekki skynsamlega á málum haldið og mikið væri ofsagt í þeim tölum sem ég nefndi um þann árangur sem þar mætti ná. En ég held að ef ég mundi setjast niður með honum í dag og ræddi við hann yrði hann að viðurkenna fyrir mér að sá árangur hefði náðst og raunverulega miklu meira.

Ég vil einnig taka það skýrt fram að ástæða er til þess enn og aftur að brýna mjög fyrir mönnum að bæta meðferð afla, bæði um borð í fiskiskipunum og ekki síður bæta meðferð aflans eftir að á land er komið. Því er ekki að leyna að það urðu viss þáttaskil, a.m.k. í togaraútgerð, þegar kassavæðingin átti sér stað, en ég dreg þó í efa, og ég þarf ekki að draga það í efa, ég tel mig geta fullyrt það, að menn hafi enn komist upp á lag með að nota þessa kassa eins og efni stóðu til. Svo hlálegt er það.

Ég veit ekki hvort mönnum finnst það smámunasemi að vera að nefna slíkt, en eitt atriði sem vegur mjög þungt í þessu er hvernig aflinn berst um borð og hvernig menn fylgja aflanum eftir með því að dagmerkja kassana. Hvernig halda nú menn að þetta sé gert?

Ég þarf ekki að segja frá því, það er svo einfalt mál, að það hefur nánast engu verið varið til að reyna að finna upp hentugt kerfi til að dagmerkja kassana þannig að það sé augljóst mál og þægilegt að fylgja aflanum eftir í gegnum vinnslurás frystihúsanna. Það er nánast tilviljun ein hvort dagmerkingar á fiskikassa sjást eftir að búið er að taka kassann upp úr veiðiskipi.

Hér var rætt áðan, það gerði hv. þm. sem var að tala á undan mér, um aðstöðuna í landi. Ég held að það hafi verið okkur Íslendingum til mikillar vansæmdar um langt skeið hvernig við höfum búið að því fólki sem hefur viljað og vill enn vinna í þessari undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar. Það hefur verið okkur til háborinnar skammar. Það þarf enginn að vera hissa á því þó að þeim fækki sem núna fást til þess að vinna við sjávarútveg miðað við þann aðbúnað sem fólk hefur mátt þola. Sem betur fer, ef við erum sanngjarnir, verðum við þó að viðurkenna að hér hefur orðið veruleg bót á. Samt er eftir að gera átak víða. Og það vil ég að komi hér skýrt fram að ég vil leggja mitt lóð á þá vogarskál sem mætti verða til þess að létta þar undir og bæta úr svo að það fólk fái mannsæmandi vinnuaðstöðu. Það þarf enginn að vera hissa á því þó að sá sem rekur frystihús í dag missi sína bestu starfskrafta miðað við þá vinnuaðstöðu sem þessu fólki er víða boðið upp á.

Við höfum verið að smíða skip og við höfum verið að endurnýja skip. Núna er í tísku að búa til svokallaða verksmiðjutogara úr eldri skipum okkar. Við setjum vélbúnað um borð og vinnum aflann að nokkru leyti um borð. — Það fellur hreint undir þessa till. Guðmundar J. Guðmundssonar. Ég heyrði því miður ekki — ég var truflaður — upphafsorð hans, en ég held að hann hafi þó ekki komið inn á það að fróðlegt væri að láta skoða það og kanna hvort sé mögulegt að 40%, 50% eða 60% af því sem um borð kemur fari í hafið aftur frá þessum nýju skipum. Þetta eru þó nýjustu og af mörgum talin fullkomnustu veiðiskipin okkar í dag.

Þetta er slík villimennska í veiðiskap að við þetta getum við ekki látið sitja lengur ef þetta er rétt. Einfalt mál er að fá úr þessu skorið. Og ég held að það sé líka ástæða að staldra við vegna þess hver þróunin ætlar að verða. Mér skilst að fjöldi útgerðarmanna sjái þessa leið besta til að bjarga sér úr þeim fjárhagsvanda sem útgerðin er í í dag og ætli að breyta skipum sínum á þennan hátt. Ef við ætlum að fara inn á þá braut að breyta skipunum á þennan hátt er spurning í mínum huga hvort það ætti ekki að vera skilyrði, hreint skilyrði fyrir fyrirgreiðslu vegna slíkra breytinga, að fiskurinn sé fullnýttur um borð og engu sé hent í hafið.

Ég vildi koma því að, þegar við erum að tala um meðferð og nýtingu á sjávarfangi sem úr hafinu er dregið, að við erum á sama tíma að byggja upp aðra atvinnugrein í landinu, eina af þessum nýju búgreinum okkar, sem við tölum um í dag, en það er loðdýraræktin sem er í mínum huga mjög álitlegur atvinnukostur og ég er sannfærður um að hún á eftir að vaxa alveg stórkostlega. Sumar af fóðurstöðvunum sem sjá um fóðuröflun til loðdýrabúa eru í erfiðleikum með hráefni á sama tíma sem við göngum illa um garð í sjávarútvegi.

Ég tek undir það að auðvitað er nauðsynlegt að stórauka fjármagn til að auka og efla fullvinnslu í sjávarútveginum. Ég vil leggja þunga áherslu á að menn átti sig á þeim gífurlegu möguleikum sem við Íslendingar eigum til að efla og nýta meira hefðbundnar atvinnugreinar. Ég held að það sé hollt fyrir menn að reyna að staldra við og átta sig á þeim möguleikum sem þar blasa við ef mönnum er á annað borð gert kleift að framkvæma þá hluti.

Vissulega ber að fagna því sérstaklega að ríkisstj. hefur sett það á oddinn að gera hér myndarlegra átak en nokkru sinni áður hefur verið gert. Þar á ég við m.a. að hún ætlar að veita um 500 millj. kr. til að efla nýgreinar í gegnum þróunarsjóð. Ég held að það sé stærra mál en menn hafa áður látið uppi og er sérstök ástæða til að fagna því alveg sérstaklega.

Úr því að ég er kominn hingað langar mig til að hnykkja á því sem var verið að tala um áðan. Ég held það hafi verið hv. þm. Ólafur Þórðarson sem var að tala um offjárfestinguna í sjávarútveginum. Oft höfum við setið hér og roðnað aðeins í vöngum, framsóknarmenn þegar ákveðnir fulltrúar hafa geyst upp í ræðupúltið og talað um vitlausa fjárfestingu í sjávarútvegi, vitlausa byggðastefnu og allt væri þetta Framsfl. að kenna. Við höfum kannske verið of hógværir til að taka til máls og átt að berja frá okkur í þessum efnum. En ég held að við þolum vel að bíða og það eigi eftir að sannast að hér sé nokkuð mikið sagt og við þurfum ekki að skammast okkar fyrir eitt eða neitt í þessum efnum. Hér hafa fyrst og fremst fjölmiðlamenn riðið húsum og sjálfskipaðir spekingar sem telja sig vita allt um þessa hluti. En skoðum þetta mál nánar og gáum hvar þessi vitleysa er í erlendum skuldum. Er það þá fjárfestingin í íslenskum sjávarútvegi sem er að fara með þessa þjóð? Hlutur sjávarútvegsins er þó ekki nema um 16.2% af erlendum skuldum, en sú atvinnugrein aflar þó til þjóðarbúsins um 70–75% af gjaldeyristekjunum.

Það væri einnig gaman að velta því fyrir sér, það er ekki tími til þess nú en gefst kannske tækifæri til þess síðar, hvar þessi 70–75% af framleiðslunni verða til í landinu. Það minnir líka á allt talið um vitlausa byggðastefnu eða offjárfestingar í sjávarútvegi. Það er nefnilega alveg furðulegt, og kom rækilega fram í ræðu hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar sem ég þakka enn og aftur, og það er verðugt rannsóknarefni hvað það eru undarlega fáir sem geta aflað jafnmikils og raun ber vitni í þjóðarkökuna. Það er líka verðugt umhugsunarefni fyrir okkur hvað þeir fá raunverulega lítið af þessari þjóðarköku sem til hennar hafa svo rækilega aflað.