26.02.1985
Sameinað þing: 54. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3251 í B-deild Alþingistíðinda. (2728)
319. mál, orkufrekur iðnaður á Suðurlandi
Eggert Haukdal:
Herra forseti. Ég vil þakka hv. 3. þm. Suðurl. fyrir að flytja þá till. sem hér er til umr. Stóriðja er sannarlega ekki allra meina bót, en jafnframt að efla þá atvinnuvegi sem fyrir eru þarf hún að koma til. Og hér var áðan einmitt rædd stórmerk till. hv. þm. Guðmundar J. Guðmundssonar varðandi sjávarútveginn, okkar höfuðatvinnuveg.
Ekki væri óeðlilegt markmið að eitt stóriðjufyrirtæki risi í hverjum landsfjórðungi auk stór-Reykjavíkursvæðisins og þá ekki síst í þeim fjórðungi þar sem meginhluti orkunnar verður til. Fyrrv. iðnrh. hrinti um of frá okkur orkukaupendum, því miður. Nú hefur dæminu verið snúið við í þessum efnum hjá hæstv. núv. iðnrh., en það er erfitt að vinna upp það sem miður fór. Með tækni nútímans er hægt að byggja stórskipahöfn á suðurströndinni en ýmsir telja að hana hafi vantað til að Suðurland væri inni í myndinni þegar rætt er um staðárval stóriðju. Fyrir forgöngu þm. Suðurlands hefur iðnrh. tekið þetta mál upp við staðarvalsnefnd og stóriðjunefnd. Vonandi nást sem fyrst hagstæðir orkusölusamningar um stækkun álversins í Straumsvík og í framhaldi af því samningar um áframhaldandi uppbyggingu stóriðju hér á landi sem m.a. leiði af sér að iðjuver rísi á Suðurlandi.