26.02.1985
Sameinað þing: 54. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3253 í B-deild Alþingistíðinda. (2730)

301. mál, vegur undir Ólafsvíkurrenni

Fyrirspurnin er þannig:

1. Hver var talinn kostnaður við gerð vegar undir Ólafsvíkurenni samkvæmt áætlun Vegagerðar ríkisins?

2. Hvert var tilboðsverð Hagvirkis hf. í gerð vegarins?

3. Hver var heildarkostnaður við vegagerðina:

a) samkvæmt tilboði Hagvirkis hf.,

b) við aukaverk, unnin af Hagvirki hf., ófyrirséð í tilboðslýsingu,

c) við aukaverk, umfram tilboð, unnin af Hagvirki hf. eða öðrum,

d) við eftirlit Vegagerðar ríkisins og stjórn,

e) við aðkeypt eftirlit,

f) við aðra kostnaðarþætti? Upphæðir tilgreinist á sama verðlagi.

Svar:

Áður en vikið er að einstökum liðum fyrirspurnarinnar verður að gera stutta grein fyrir verkinu í heild. Verk af þessu tagi er háð fáum en stórum óvissuþáttum. Þótti ekki annað tiltækilegt en að hefja tilraunavinnslu á grjótnámi, skurð- og grjótvörn á vegfyllingu í fjöru áður en unnt væri að bjóða verkið út. Var þetta unnið af Vegagerð ríkisins árið 1982 og fengust þar með betri forsendur fyrir útboðsgögn. Slík tilraunavinnsla, sem miðar að því að draga úr óvissuþáttum, er mjög til þess fallin að lækka tilboðsverð. Þá þurfti að styrkja og endurbæta flutningsleiðir sem nota átti við framkvæmdina.

Snemma árs 1983 var síðan boðinn út meiri hluti vegfyllingar ásamt grjótvörn. Stærð þessa útboðs takmarkaðist af fjárveitingu til verksins, en vegfylling ásamt grjótvörn hins vegar komin það hátt yfir sjó að ekki átti að vera mikil hætta á skemmdum af völdum sjávargangs. Þegar hið lága tilboð Hagvirkis hf. lá fyrir var þegar við gerð verksamnings ákveðið að það lyki við alla grjótvörnina.

Frágangi vegar með bundnu slitlagi var síðan lokið árið 1984. Tvö verktakafyrirtæki önnuðust þann þátt, Völur hf. sem sá um efnisvinnslu og Hagvirki sem lauk vegagerð og lagði bundið slitlag.

Vegagerð ríkisins sá um efniskaup af ýmsu tagi til framkvæmdarinnar. Hún hafði með höndum hönnun vegar og undirbúning allan, svo og yfirumsjón með verkinu. Daglegt eftirlit með verktökum var í höndum Verkfræðistofu Sigurðar Thoroddsen hf.

Verður þá vikið að einstökum liðum fyrirspurnarinnar í þeirri röð sem þeir eru settir fram. Allar tölur eru á verðlagi í mars 1983, en á því verðlagi var verksamningur við Hagvirki hf. gerður.

1. Heildarkostnaður við gerð vegar undir Ólafsvíkurenni var áætlaður af Vegagerð ríkisins 93,7 m. kr. Sá áfangi, sem boðinn var út, átti að kosta 69,5 m. kr. skv. sömu áætlun.

2. Tilboð Hagvirkis hf. í þann áfanga var 36,8 m. kr.

3a. Svo sem fyrr var getið var þegar við gerð verksamnings bætt við verkið á einingarverði tilboðs, og var upphæð verksamnings við Hagvirki hf. 40,3 m. kr. Kostnaðaráætlun fyrir sama áfanga var 75,5 m. kr.

3b. Hækkun á verksamningi vegna magnbreytinga, breyttra forsendna í klapparskurði og annarra ófyrirséðra atriða var 1,1 m. kr. eða 2,7% af samningsupphæð. Heildarkostnaður við útboðinn verkáfanga varð því 41,4 m. kr.

3c. Kostnaður við að ljúka vegagerð og leggja bundið slitlag varð 2,0 m. kr. og önnuðust Hagvirki hf. og Völur hf. þau verk.

3d. Kostnaður Vegagerðar ríkisins vegna hönnunar, stjórnar o.þ.h. varð 4,9 m. kr.

3e. Kostnaður við aðkeypt eftirlit varð 2,4 m. kr.

3f. Aðrir kostnaðarþættir en þegar eru taldir eru einkum tveir, þ.e. tilraunavinnsla árið 1982 9,2 m. kr. og efniskaup ásamt nokkrum frágangsverkefnum 2,9 m. kr.

Alls nema þessir kostnaðarþættir því 12,2 m. kr. og annaðist Vegagerð ríkisins þá. Heildarkostnaður við vegagerð undir Ólafsvíkurenni á verðlagi í mars 1983 varð því 62,9 m. kr.