27.02.1985
Efri deild: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3353 í B-deild Alþingistíðinda. (2737)
61. mál, átak í dagvistunarmálum
Frsm. 2. minni hl. (Ragnar Arnalds):
Virðulegi forseti. Eins og fram hefur komið í þessari umr. klofnaði hv. fjh.- og viðskn. í þrjá parta við afgreiðslu þessa máls. Við sem skipum 2. minni hl. n. og erum fulltrúar fyrir Alþfl. og Alþb. erum samþykkir þeirri meginstefnu frv. að það beri og sé brýn nauðsyn á að stórauka framlög til byggingar dagvistarheimila. Við létum þessa skoðun okkar koma ótvírætt fram við afgreiðslu fjárlaga í desembermánuði s.l.
Við teljum að það sé mjög alvarlegt mál hvað framlög til dagvistarstofnana hafa lítið hækkað í krónum talið og þar með snarlega lækkað að raungildi í tíð þessarar ríkisstj. Fyrir tveimur árum mun framlag til dagvistarstofnana hafa numið, að því er mig minnir, rétt um 30 millj. kr., en núna, tveimur árum seinna, er framlagið ekki komið nema upp í 35 millj.
Hins vegar erum við ekki með öllu sáttir við að lög séu samþykkt á Alþingi sem bindi framlög til einstakra málaflokka við tiltekið hlutfall af heildarútgjöldum fjárlaga, þ.e. við heildarupphæðir í A-hluta fjárlaganna. A þessu kerfi væru ansi margir meinbugir ef upp væri tekið á mörgum sviðum. Raunar er alls ekki víst að það væri viðkomandi málefni svo mjög til góðs. Ef t.d. yrði um að ræða stórfelldan niðurskurð á framlögum til annarra málefna, t.d. yrðu niðurgreiðslur afnumdar með öllu eða útflutningsuppbætur afnumdar og fjárlög lækkuð um kannske á annað þúsund milljónir eða um yrði að ræða annan stórfelldan niðurskurð, þá sveiflaðist upphæðin í hlutfalli við útgjöld ríkissjóðs og í þessu tilviki snarlega niður á við. Við teljum að eðlilegast sé að ákveða framlög til fjárfestingarmála ríkis og sveitarfélaga í fjárlögum fyrst og fremst en í undantekningartilviki, þar sem ákaflega brýnt er að reyna að móta skýra og ákveðna stefnu og hvika ekki frá henni um skeið, geti verið réttlætanlegt að tilgreina í lögum hver upphæðin eigi að vera að lágmarki. En þá teljum við eðlilegast að um sé að ræða tiltekna upphæð en ekki tiltekna prósentu af heildarútgjöldum fjárlaga.
Við verðum að hafa í huga í þessu sambandi að ekki er við hæfi að láta sér detta í hug hvaða upphæð sem er af hálfu ríkisvaldsins til þessara mála vegna þess að frumkvæði og forusta um byggingu dagvistarheimila er alfarið í höndum sveitarfélaga. Hvað svo sem ríkið vill vera örlátt í þessum efnum og leggja fram mikið fé er ekki víst að það komi að neinu gagni ef sveitarfélögin eru ekki reiðubúin að taka við því og byggja í takt við framlög ríkisins.
Óskir og beiðnir sveitarfélaga til Alþingis í haust voru um framlög af hálfu ríkisins upp á 70 millj. kr. Ég verð að segja alveg hreinskilnislega að mér finnst það dálitið yfirborðsleg till. og verður að flokkast undir yfirboð, þegar sveitarfélögin biðja um 70 millj. kr., að lögbinda þá framlag upp á 200 eða þrisvar sinnum hærri upphæð.
Það er alveg rétt, sem hv. þm. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir sagði áðan, að ef sveitarfélögin vilja ekki þiggja það sem að þeim er rétt í fjárlögum fellur fjárveitingin niður í árslok. Það er alveg rétt að þetta er ekki tapað fé, það rennur ekki í sjóinn. Það er niður fallið að árinu loknu. En auðvitað hljótum við að setja fjárlög saman af einhverju raunsæi og með það í huga hvað í óskum sveitarfélaga felast háar upphæðir. Og þó að vel megi hugsa sér upphæðina nokkuð ríflega finnst mér óneitanlega nokkuð of í lagt að hún sé næstum þrisvar sinnum hærri en óskir sveitarfélaga.
Hv. þm. spyrja kannske hvernig ég fari að því að fá út þessa tölu, 200 millj. kr. Hún er einfaldlega fundin þannig: Fjárlög eru nú hvað útgjöld snertir að upphæð 26 milljarðar 98 millj. 800 þús. Ef við tökum 0.8% af þeirri upphæð fáum við út liðlega 200 millj. kr. eða þrisvar sinnum hærri upphæð en óskir sveitarfélaga voru um.
Við afgreiðslu fjárlaga voru stjórnarandstöðuflokkarnir allir á því að nauðsynlegt væri og óhjákvæmilegt að hækka verulega framlög til dagvistarheimila. Þeir lögðu til að upphæðin yrði hækkuð verulega. Till. þeirra voru á bilinu 50–75 millj. kr. Þannig mun Alþfl. hafa lagt til að upphæðin yrði hækkuð í 50 millj., BJ að upphæðin yrði hækkuð í 50 millj., SK lögðu til að upphæðin yrði hækkuð um 70 millj. kr. og Alþb. lagði til að upphæðin yrði hækkuð í 75 millj. kr.
Við sem skipum 2. minni hl. fjh.- og viðskn., fulltrúar Alþfl. og Alþb., við teljum raunhæfast í ljósi tillögugerðar stjórnarandstöðuflokkanna á þingi í vetur og í ljósi óska sveitarfélaganna í vetur að upphæðin, sem miðað verði við sem lágmarksframlag, verði 75 millj. kr. og síðan bætist við upphæð sem svari til hækkunar byggingarvísitölu frá 1. desember 1984 til 1. desember hvers árs næst á undan nýju fjárlagaári, þannig að unnt verði að reikna út hver talan eigi að vera að lágmarki í fjárlögum áður en þau eru afgreidd.
Það er alveg rétt, sem hv. flm. segir; að það er ekki víst að það sé nóg að liðlega tvöfalda þá upphæð sem gengur til dagvistunarheimila. Ég er alveg sammála því að þörf gæti orðið á því að komast áfram í þessum málum í áföngum, taka annan áfanga á síðara stigi. En þá er ósköp einfalt fyrir okkur að breyta þessum lögum og hækka lágmarksupphæðina. Ég sé engan mun á því og hugsun hv. þm. SK sem hér talaði áðan og var einmitt að vekja athygli á því að þær Kvennalistakonur hefðu lagt til í vetur að fyrsti áfangi yrði tekinn með upphæðinni 70 millj. og svo yrði annar áfangi tekinn á síðara stigi. Við teljum ekki raunhæft að fara öllu hærra með þessa upphæð að sinni, meðan ekki er sýnt að sveitarfélögin noti öllu stærri fjárhæð.
Virðulegi forseti. Ég held ég hafi gert nokkra grein fyrir till. okkar sem skipum 2. minni hl. fjh.- og viðskn. Segja má að hún mótist af því hver er þörfin, að framlag ríkissjóðs sé miðað við framkvæmdavilja þeirra aðila sem hafa forustuaðstöðu í þessu máli. Það finnst okkur raunhæfari og raunsærri viðmiðun en að miða almennt við það hver kynni að vera þörfin í þessum málum, en gera sér þó grein fyrir því að sveitarfélögin eru almennt ekki reiðubúin að uppfylla hana að svo stöddu.