12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3467 í B-deild Alþingistíðinda. (2794)

196. mál, skattar verslunarinnar

Fyrirspyrjandi (Svavar Gestsson):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir svörin sem hann gaf. Þau voru auðvitað takmörkuð að tvennu leyti. Í fyrsta lagi gaf hann ekki upplýsingar um sundurliðun eftir bönkum og bar fyrir sig ákvæði skattalaga. Nú liggja þessar upplýsingar væntanlega fyrir í opinberum gögnum frá þessum aðilum, þannig að það er ekki fullt samræmi annars vegar milli laga og hins vegar þess, sem tíðkað er, að þessi fyrirtæki gefa yfirleitt út sína reikninga. Í rauninni skiptir það ekki heldur öllu máli í sambandi við þessa fsp. hvort einstakir bankar eru teknir. Aðalatriðið er að fá heildartöluna.

Það var einnig athyglisvert, sem fram kom hjá hæstv. fjmrh., að það var mjög erfitt, virðist vera, að svara spurningum um raunverulegan hagnað fyrirtækja fyrir „skattalegar ráðstafanir“. Það er greinilegt að skattyfirvöld hafa ekki aðgang að þeirri tölu í vélrænni vinnslu á skattframtölum fyrirtækja. Þess vegna er sú tala sem hér er gefin upp um fyrirtækin aðeins upplýsingar um nettóhagnað eftir að fyrirtækin eru búin að draga frá allt það sem þau geta. Menn í þessum sal þekkja hvað það er sem fyrirtæki geta dregið frá áður en kemur að svokölluðum nettóhagnaði. Það er ekkert lítið. Það er t.d. 10% fyrning vörubirgða sem á að draga beint frá áður en skattstofn er fundinn. Þar er um að ræða 5% fyrningu á útistandandi kröfum sem öll fyrirtæki geta dregið frá sínum skattstofni. Og þar er um að ræða 40% í fjárfestingarsjóð eða 20% í varasjóð. Sú tala sem kemur út í svari hæstv. fjmrh. er því útkoman þegar búið er að draga frá öll þessi atriði. Þess vegna segir talan ekki hver hagnaður er af rekstri. Hún segir aðeins hver hagnaðurinn er eftir að búið er að nota allar frádráttarheimildir sem þessi fyrirtæki hafa í sköttum, en þær heimildir hafa verið auknar stórkostlega eins og kunnugt er í tíð núverandi ríkisstj.

En það sem ég vil vekja athygli á er í fyrsta lagi hagnaður bankanna í þessu sambandi. Það kemur í ljós að hagnaður bankanna á árinu 1983 var hvorki meira né minna en 534 millj. kr., en þegar bankarnir voru búnir að nota sér allar heimildir í skattalögum til frádráttar var þessi tala ekki 534 millj., heldur 220 millj. kr. Það voru m.ö.o. um það bil 310 millj. af þessum 530 sem bankarnir gátu dregið frá áður en kom að skattalegum ákvörðunum í sambandi við tekjuskatt bankanna. Þessi tala um bankana, sem hæstv. fjmrh. rakti mjög ítarlega, sýnir hvernig þetta er hjá hinum aðilunum sem ég spurði um áðan. Tökum t.d. skattalögaðila með heildverslun. Það kemur fram að þeir hafa í hagnað 231 millj. kr. Ef sömu heimildir hefðu verið notaðar og hjá bönkunum hefði hagnaður heildverslunar á árinu 1983 ekki verið 231 millj. kr., heldur væntanlega eitthvað á 6. hundrað millj. kr.

Menn sjá af þessu að skattaárið sem hér er verið að spyrja um hefur verið mikið gróða- og veltiár hjá þessum aðilum, en vegna margvíslegra frádráttarreglna hafa þeir sloppið við að greiða til samneyslunnar í landinu. Þess vegna er það sem margir, þ. á m. þingflokkur Alþb., hafa lagt til að reynt verði að taka fé af þessum aðilum til samneyslunnar með veltusköttum þar sem er mjög erfitt fyrir þessa aðila að skjóta undan í skattstofni eins og hér er gert.

Ég vek einnig athygli á því að brúttóhagnaður skipafélaganna einna á árinu 1983 var 324 millj. kr., þannig að bara skipafélögin og bankarnir höfðu í hagnað á árinu 1983 858 millj. kr. Ef við tökum laun Dagsbrúnarverkamanns á árinu 1983 jafngildir það sennilega árslaunum 6–7 þús. Dagsbrúnarverkamanna á venjulegum kauptaxta Dagsbrúnar sem þessi fyrirtæki hafa haft í brúttóhagnað á árinu 1983. Menn sjá líka af þessum tölum hvar fjármunirnir eru í þjóðfélaginu.

Ég vil rifja það upp, herra forseti, að þegar ég spurði hæstv. félmrh. um aðstöðugjaldsstofn fyrirtækja kom í ljós að smásöluverslunin var með um 16 milljarða, heildverslunin með 13.7 og skipafélögin með 2.7 milljarða eða samtals voru þessi fyrirtæki með 30 milljarða veltu 1983. Ég dró þá ályktun í umr. um fsp. á sínum tíma og hef farið nánar ofan í það, að velta þessara aðila á árinu 1985 væri sennilega í kringum 50 milljarðar kr. Skv. ákvörðunum ríkisstj. í verðlagsmálum hafa smásöluverslunin og heildverslunin heimild til að taka hvað sem þeim sýnist fyrir sína þjónustu. (Forseti hringir.) Ég er að ljúka máli mínu, herra forseti. — Meðan verið er að eltast við smáupphæðir hjá einstaklingum út og suður í okkar kerfi dansar þessi hluti hagkerfisins, 50 milljarðar kr. 1985, í rauninni alveg laus eftir þær ákvarðanir sem ríkisstj. hefur tekið í verðlagsmálum, og vegna þeirra ákvarðana sem hún hefur tekið í skattamálum borga þessi fyrirtæki lægri hluta af sínum hagnaði í skatta en nokkurn tíma hefur verið.