12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3475 í B-deild Alþingistíðinda. (2808)
302. mál, framkvæmd iðnaðarstefnu
Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):
Herra forseti. Þann 3. maí 1982 samþykki Alþingi samhljóða þáltill. um iðnaðarstefnu þar sem kveðið var á um að stuðla bæri að framkvæmd iðnaðarstefnu með tilliti til líklegra breytinga í atvinnulífi landsmanna á næstu árum og vaxandi hlutdeildar iðnaðar í atvinnuöryggi og lífskjörum þjóðarinnar. Upphaf þessa máls var að í tíð ríkisstjórnar Ólafs Jóhannessonar vorið 1979 var fyrst flutt þáltill. um þetta efni sem kom nokkrum sinnum fyrir Alþingi áður en þessi till. loks var samþykkt.
Texti þál. skiptist í þrjá meginkafla eða þætti. Í fyrsta lagi eru þar nefnd sjö tölusett meginmarkmið iðnaðarstefnu. Í öðru lagi er fjallað um leiðir til að ná þessum markmiðum, m.a. með áætlunum er taki til einstakra iðngreina og verkefna í nýiðnaði, svo og með margháttuðum opinberum aðgerðum og bættum starfsskilyrðum fyrir iðnrekstur. Í þriðja lagi er kveðið á um framkvæmd á þessari stefnumörkun Alþingis sem er hin fyrsta sem varðar heilan atvinnuveg í landinu. Um þetta atriði segir orðrétt í þessari þál. Alþingis, með leyfi forseta:
„Við framkvæmd þeirra fjölþættu verkefna, sem þál. gerir ráð fyrir, þurfa stjórnvöld, samtök iðnaðarins og aðrir aðilar að stilla saman krafta sína. Iðnrn. hafi forustu um að samræma aðgerðir og áætlanir til að greiða fyrir framgangi þessarar stefnu. Í þessum tilgangi verði sett á fót „samstarfsnefnd um framkvæmd iðnaðarstefnu“, sem í eigi sæti skv. tilnefningu: einn fulltrúi frá viðskrn., fjmrn., Félagi ísl. iðnrekenda, Sambandi ísl. samvinnufélaga, Landssambandi iðnaðarmanna, Landssambandi iðnverkafólks, Alþýðusambandi Íslands og fulltrúi iðnrn., sem jafnframt verði formaður nefndarinnar.“
Þessi samstarfsnefnd um framkvæmd iðnaðarstefnu var skipuð skömmu eftir samþykkt þessarar till. Starfaði nefndin ötullega a.m.k. til vors 1983 og gerði ýmsar tillögur til rn. um iðnaðarmálefni með hliðsjón af stefnumörkun Alþingis. Mér er ekki kunnugt um störf þessarar framkvæmdanefndar um iðnaðarstefnu eftir stjórnarskiptin vorið 1983 og leyfi mér því að spyrja hæstv. iðnrh.: Hvernig hefur verið háttað í tíð núverandi ríkisstjórnar vinnu „samstarfsnefndar um framkvæmd iðnaðarstefnu“ sem sett var á fót skv. ályktun Alþingis frá 3. maí 1982?