12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3479 í B-deild Alþingistíðinda. (2812)

302. mál, framkvæmd iðnaðarstefnu

Fyrirspyrjandi (Hjörleifur Guttormsson):

Herra forseti. Hér talaði hæstv. ráðh. og þm. sem hefur tíðkað það mjög úr þessum ræðustól að reyna að flengja samþingsmenn sína og einkum ráðh. á hverjum tíma fyrir það að standa ekki við samþykktir Alþingis. Ég vitnaði hér til orða hans áðan þar sem hann sagði: „Að fengnu samþykki Alþingis á framkvæmdavaldið engra annarra kosta völ en hlýða og framkvæma eða að leita ásjár Alþingis á nýjan leik um breytingu og niðurfellingu mála.“

Þetta var mælt 4. maí 1982. Ég beindi hér einfaldri fsp. til ráðh. og gerði síðan svarið að umtalsefni, eingöngu þann þátt. Hæstv. ráðh. reynir hér að bregða blæju yfir þann gjörning sinn að leggja af í reynd þá nefnd, sem Alþingi ályktaði 1982 að frumkvæði þingflokks Sjálfstfl. að sett yrði á laggirnar, að leggja hana af án þess að gera nokkurn tíma grein fyrir því opinberlega. Síðan kemur hæstv. ráðh. hér og segir: Ja, ég hef bara hagað þessu öðruvísi. Ég hef hérna þriggja manna innanhússnefnd undir forustu hv. þm. Friðriks Sophussonar. — Hverjir eru hinir tveir? Hvar eru þeir fulltrúar frá Alþýðusambandi Íslands og Landssambandi iðnverkafólks sem kveðið var á um að ættu að hlutast til um framkvæmd iðnaðarstefnu skv. samþykkt Alþingis vorið 1982?