12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3480 í B-deild Alþingistíðinda. (2814)
318. mál, framtíðarflugvallarstæði fyrir Ísafjörð
Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Ásamt Akureyrarflugvelli og Egilsstaðaflugvelli er Ísafjarðarflugvöllur í hópi þriggja stærstu innanlandsflugvallanna, ef mælt er í fjölda farþega og magni flutnings sem um völlinn fer. Hér er ekki aðeins um að ræða flugvöll fyrir Ísafjörð, heldur fyrir alla norðurfirði Vestfjarða þar sem meginmannfjöldi Vestfjarða er búsettur.
Auk samgangna við Reykjavík er Ísafjarðarflugvöllur einnig miðstöð flugs um Vestfirði, en þaðan er rekið flugfélagið Ernir sem annast allt sjúkraflug vestur á fjörðum. Þessi flugvöllur hefur þá sérstöðu umfram hina tvo stóru innanlandsflugvellina að um er að ræða einu samgönguleið Vestfirðinga á norðanverðum Vestfjörðum stóran hluta ársins. Allt frá því um miðjan september og þangað til að vori er ekki um aðrar samgönguleiðir að ræða nema þá á sjó og sjósamgöngum hefur stórlega hrakað á undanförnum árum.
Eins og þeir vita, sem komið hafa til Ísafjarðar, er flugvallarsvæðið innarlega í Skutulsfirði þar sem þröngt og erfitt er um aðflug og aðeins möguleiki á að byggja eina flugbraut. Margir flugdagar falla því niður á ári hverju, sérstaklega að vetri til, og lítið er við því hægt að gera. Þær lagfæringar, sem enn á eftir að gera á Ísafjarðarflugvelli, munu ekki auka öryggi hans hvað varðar flugdaga á ári. Þess vegna fóru menn snemma að huga að því að fá flugvallarstæði annars staðar en það er nú og ýmsir staðir þar tilnefndir sem frumathuganir hafa verið gerðar á.
Sá staður sem einna næst liggur kaupstöðunum Ísafirði og Bolungarvík af þeim sem til athugunar hafa verið er flugvallarstæði við Arnarnes utarlega í Skutulsfirði og hefur komið fram m.a. í bæjarstjórn Ísafjarðar áhugi á því að athuga nánar um flugvallarstæði þar. Því hef ég leyft mér, herra forseti, að beina svofelldri fsp. til hæstv. samgrh. um framtíðarflugvallarstæði við Ísafjörð:
„Er samgrh. reiðubúinn til þess að láta fara fram frekari athugun á nýju flugvallarstæði fyrir Ísafjörð við Arnarnes?“