12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3483 í B-deild Alþingistíðinda. (2817)
318. mál, framtíðarflugvallarstæði fyrir Ísafjörð
Heilbr.- og trmrh. (Matthías Bjarnason):
Herra forseti. Ég hef heyrt getið um þessar uppástungur. Þetta eru hugmyndir sem fram hafa komið. Það mun kosta stórfé að rannsaka það til hlítar og gera kostnaðaráætlanir. Það fjármagn er ekki fyrir hendi miðað við fjárveitingar til flugmála. Ég ætla ekkert að fullyrða um það að um alla framtíð verði þessi leið ekki athuguð frekar, en það sem nær er að gera er að búa betur þá flugvelli sem fyrir eru, eins og í Dýrafirði, og sérstaklega að bæta samgöngur á milli allra þéttbýlisstaðanna frá Þingeyri og til Ísafjarðar. Þar verður um stórfelld framlög að ræða einmitt á sviði vegagerðar, og þá bæði brúa- og jarðgangagerðar, sem ég tel tvímælalaust vera miklu meira aðkallandi en hitt verkið.
Hins vegar vil ég svara fsp. hv. fyrirspyrjanda á þann veg að nú er starfandi nefnd sem vinnur að heildaráætlun í flugmálum og hefur skilað takmarkaðri áfangaskýrslu en að er stefnt að hún skili lokaskýrslu á þessu ári. Allir möguleikar og allar tillögur, sem fram hafa komið, hafa verið kynnt þessari nefnd af flugmálayfirvöldum. Ég held að við verðum að bíða eftir því að endanleg skýrsla nefndarinnar liggi fyrir áður en við getum farið að segja meira hvað þetta sérstaka flugvallarstæði varðar.