12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3484 í B-deild Alþingistíðinda. (2821)

313. mál, vanskil vegna húsnæðislána

Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir):

Herra forseti. Ég þakka hæstv. félmrh. þau svör sem hann hefur gefið. Það er ljóst af svörum hæstv. ráðh. að vanskil hjá húsnæðissjóðunum eru mjög mikil og að mjög mikill fjöldi einstaklinga á í erfiðleikum. Við verðum að átta okkur á því að hér er þó aðeins um hluta af vanskilunum að ræða. Ég hef líka lagt fram fsp. fyrir hæstv. viðskrh. til þess að fá fram svör við því hve mikil vanskil séu í bönkunum, en ég hef grun um að þau séu ekki minni en ráðh. hefur hér upplýst vegna þess að þar er um enn erfiðari greiðslukjör að ræða en í húsnæðiskerfinu.

Það er alveg ljóst að neyðaróp og örvænting þeirra sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið er orðin svo mikil að alþm. er ekki stætt á öðru en að taka umsvifalaust á þessu mikla vandamáli og þetta verði þá forgangsverkefni hér á þinginu sem fái úrlausn. Stjórn og stjórnarandstaða verða að taka höndum saman í þessu máli og finna þegar lausn til að leysa þann bráða vanda og greiðsluþrot sem fjöldi heimila um allt land er kominn í. Talan um nauðungaruppboð segir vissulega sína sögu. Á árinu 1984 eru 17 600 beiðnir um nauðungaruppboð sendar frá veðdeild Landsbanka Íslands.

Nú nýverið voru stofnuð samtök áhugamanna um úrbætur í húsnæðismálum. Þau setja í raun fram tvær meginkröfur. Í fyrsta lagi um leiðréttingu á því misvægi sem er milli lánskjara og launa og í annan stað kröfuna um að vextir verði stórlega lækkaðir. Ég vil minna á að fyrir þinginu liggur frv. frá þm. Alþfl. sem tryggja á að greiðslubyrði lána fari ekki fram úr kaupgjaldsþróun á hverjum tíma. Þetta frv. er ekki nýtt af nálinni. Þetta er í annað skipti sem það frv. er lagt fram. Það var lagt fram fyrst 1982 og hlaut þá ekki afgreiðslu hér á hv. Alþingi, því miður. Ég trúi því að staða húsbyggjenda væri önnur og betri nú ef Alþingi hefði borið gæfu til að samþykkja þetta frv.

Hæstv. félmrh. upplýsti í sjónvarpi í gærkvöldi, að mig minnir, að ríkisstj. væri nú einmitt að skoða þessa sömu leið og Alþfl. lagði til fyrir þremur árum. Því ber vissulega að fagna þó seint sé. Þetta frv., sem nú liggur fyrir þinginu, var tekið til umræðu fyrir fimm vikum hér í Nd. Alþingis en hefur þó ekki enn þá verið afgreitt til nefndar. Ég mun auðvitað og minn þingflokkur leggja áherslu á að það fái afgreiðslu hér og nái sem skjótast til nefndar.

Þeir tveir þættir sem ég hef hér nefnt, þ.e. misvægið í lánskjörum og launum og þeir háu vextir sem fólk hefur þurft að búa við, eru verkefni sem stjórnvöld verða umsvifalaust að taka á auk þess að lengja lánstímann og hækka lánahlutfallið. Það gengur auðvitað ekki lengur. sem húsbyggjendur og þeir sem eru að koma sér þaki yfir höfuðið hafa þurft að búa við, að heiðarlegt fólk sé í raun gert að vanskilamönnum vegna vanefnda og síendurtekinna svika stjórnvalda í þessum málum.

Ég vænti þess að á þessu máli verði þegar tekið á Alþingi og þetta mál fái hér forgang öðrum málum fremur. Svo stórt er þetta vandamál.