12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3487 í B-deild Alþingistíðinda. (2825)
313. mál, vanskil vegna húsnæðislána
Guðmundur J. Guðmundsson:
Herra forseti. Það kom fram í könnun hjá fyrirtæki, sem að vísu er þekki fyrir að vera óábyggilegasta skoðanakönnunarstofnun í landinu, Hagvangi hf., að Íslendingar muni vera hamingjusamasta þjóð í heimi. Hver sem niðurstaðan úr þessari könnun hefur verið kemur mér ákaflega á óvart ef þeir sem eru í vanskilum við húsnæðismálakerfið hafa verið í þessum hamingjusama hópi. Og sannleikurinn er sá að ég er ekki einn um þá skoðun. Það eru ábyggilega allir þm. sem hér eru í salnum og einnig þeir sem ekki eru í salnum — sumir kannske ekki í salnum vegna þess að til þeirra leita tugir og hundruð manna í angist og örvæntingu yfir því að ekkert sé nema myrkur og uppgjör fram undan.
Ég er ekki forsvarsmaður hæstv. félmrh. Ég efast um að einhver brigslyrði og skammir um hann séu aðalinntakið í þessu máli. Inntakið í því er misræmið milli lána sem bundin eru lánskjaravísitölu og kaupgjalds eða launa meðan vísitala er ekki á kaup. Bilið breikkar í sífellu, skuldirnar vaxa mun hraðar en kaupið og þetta gerir skilamenn að vanskilamönnum. Það er þetta kerfi sem verður að afnema. Meðan það er ekki gert breytir hins vegar engu hver er félmrh. og hvort menn skamma hæstv. félmrh. eins og þeim sýnist. Ég er ekki forsvarsmaður þess. En þegar vísitalan á kaupið var tekin úr sambandi bauð það dauðanum heim.
Ég var að kanna lauslega stöðuna hjá lífeyrissjóði verkamannafélagsins Dagsbrúnar og verkakvennafélagsins Framsóknar. (Forseti hringir.) Ég skal ljúka máli mínu, herra forseti. Þar kom upp úr kafinu að umsóknir um lífeyrissjóðslán eru nú þegar þrisvar sinnum fleiri en á árinu 1984. Ég hugsaði: Þetta getur bara hreinlega ekki verið — og fór að skoða þessar umsóknir. Viti menn. Verulegur hluti umsækjenda var eldra fólk. Ég spurði í barnaskap mínum: Ætlar þetta eldra fólk að fara að byggja? Mér sýnist það eiga íbúð, sumir a.m.k. Svarið var: Nei, það er að bjarga börnum sínum. Og sumt af þessu fólki, sem hefur verið að gera þetta undanfarin ár, er líka að missa íbúðir sínar.
Ég held að kerfið sem við búum við sé algerlega vonlaust. Og það á ekki einungis við um húsbyggjendur. Það eru líka þeir sem eru að kaupa íbúð og skulda of fjár, fyrst og fremst í bönkum en einnig í lífeyrissjóðum. Þetta ástand endar með þvílíkri skelfingu að ég treysti því að ríkisstj. taki nú verulega til hendinni í þessum málum og það snarlega, áður en meiri ógæfa ríður yfir en orðin er.