12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3488 í B-deild Alþingistíðinda. (2827)
317. mál, meint fjársvik í fasteignasölu
Fyrirspyrjandi (Sighvatur Björgvinsson):
Herra forseti. Það skýtur nokkuð skökku við að á sama tíma og þessir erfiðleikar eru uppi hjá húsbyggjendum og kaupendum fasteigna, sem var verið að ræða um áðan, fjölgar stöðugt auglýsingum í blöðum frá fasteignasölum. Aldrei hefur meira verið auglýst af þeirra hálfu í dagblöðum en gert er nú. Samt sem áður er fullyrt af öllum þeim sem til þekkja að sjaldan hafi kaupendur átt í meiri erfiðleikum en einmitt nú með að kaupa fasteignir og standa í skilum. Þær auglýsingar sem fasteignasalar birta í blöðunum kosta enga smápeninga. Og það er furðulegt að sjá að á sama tíma og viðskiptavinirnir eiga í hvað mestum erfiðleikum virðist, ef marka má auglýsingarnar, þessi atvinnugrein blómstra sem aldrei fyrr. Af einhverju hlýtur þar að vera að taka.
Það gefur auga leið að þegar slíkt árferði er verður ábyrgð þeirra mun meiri sem eru milliliðir milli kaupenda og seljenda fasteigna. Enginn aðili að slíkum viðskiptum veit betur en þeir hvernig staða seljanda eða kaupanda fasteignar er. Hjá aðilum, sem e.t.v. hugsa meira um sinn hag en annarra, getur verið mikil freisting í því fólgin að hafa upplýsingar um erfiða stöðu annarra, t.d. seljenda fasteigna, og geta e.t.v. nýtt sér þær upplýsingar í fjáröflunarskyni fyrir sjálfa sig.
Mikið hefur verið skrifað um þessi mál í blöðum að undanförnu og nefni ég þar t.d. Helgarpóstinn sem skrifað hefur mikið um málefni fasteignasala. Mér er einnig kunnugt um allnokkra, bæði kaupendur og seljendur fasteigna, sem lent hafa í erfiðleikum í viðskiptum sínum við fasteignasala, við þá aðila sem ber öðrum fremur skylda til að tryggja að allt í sambandi við viðskipti með fasteignir gangi löglega og eðlilega fyrir sig. A.m.k. eitt af þeim málum sem lýtur að viðskiptum fasteignasala og fasteignakaupanda varð blaðamál fyrir allmörgum misserum, þar sem talið var að fasteignasali hefði með óleyfilegum hætti haft stórfé út úr saklausum viðskiptamanni sínum með því að beita hann því sem blöðin töldu vera svik. Þetta mál fór að sjálfsögðu rakleiðis til dómstóla, eins og slík mál eiga að gera, og þar er þetta mál enn statt og ekki séð fyrir endann á því enn hvernig málarekstur fer.
Á nokkrum misserum virðast allir aðilar í þjóðfélaginu vera búnir að gleyma þeim einstaklingi sem þarna varð fyrir skaða. Blöðin eru búin að missa áhugann, dómstólarnir draga málið, ég veit ekki hvað yfirmenn dómsmála hafa sinnt því. En á þessum misserum hefur sá sem varð fyrir meintum fjársvikum fasteignasalans tapað stórfé og stendur nú uppi með mörg hundruð þús. kr. skuld á bakinu sem ólöglega var á hann lögð. Málarekstur í þessu tiltekna máli gengur fádæma seint og stirðlega. Eins og ég sagði hefur sá sem á þar um sárt að binda orðið fyrir feikilegum fjárhagslegum skaða og getur ekki leitað réttar síns fyrr en málsniðurstaða í ákærumálinu gegn viðkomandi fasteignasala liggur fyrir. Ég veit um fleiri slík mál í kerfinu. Annað mál er á leiðinni. Þar notfærði fasteignasali sér vitneskju um erfiðar fjárhagsaðstæður manns sem vildi selja fasteign til þess að kaupa hana á verði sem var langt fyrir neðan eðlilegt markaðsverð.
Svona dæmi eru vonandi fá í öllum þeim viðskiptum sem fasteignasalar stunda. En það er hlutverk löggjafans að koma í veg fyrir að svona dæmi geti orðið til.
Það er ekkert launungarmál að þessi dæmi urðu til þess að ég leyfði mér að bera fram ásamt hv. þm. Jóhönnu Sigurðardóttur þá fsp. til hæstv. dómsmrh. á þskj. 502 sem hér er til umr. í dag. Þetta er fsp. í fjórum liðum:
„1. Hvaða mál eru nú fyrir dómstólum sem lúta að meintum fjársvikum fasteignasala í fasteignaviðskiptum. hvar eru þau mál í dómskerfinu og hvernig hefur málarekstur gengið?
2. Hafa einhverjir aðilar. sem telja sig hafa verið svikna af fasteignasölum í fasteignaviðskiptum, leitað aðstoðar dómsmrn. og hvaða hjálp hefur dómsmrn. þá getað veitt?
3. Hvaða aðgerðum er dómsmrh. reiðubúinn að beita sér fyrir til þess að auka eftirlit með fasteignasölu. t.d. þannig að fasteignasalar uppfylli í reynd öll þau skilyrði sem sett eru fyrir slíkri starfsemi?
4. Hvaða breytingar á lögum eða reglugerðum telur dómsmrh. að gera þurfi til þess að tryggja betur en nú er ábyrgð þeirra sem fasteignaviðskipti stunda og réttarstöðu þeirra sem slíkrar þjónustu njóta?“