12.03.1985
Sameinað þing: 57. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3490 í B-deild Alþingistíðinda. (2828)
317. mál, meint fjársvik í fasteignasölu
Landbrh. (Jón Helgason):
Herra forseti. Á þskj. 502 hefur hv. 3. þm. Vestf. borið fram fsp. til mín í fjórum liðum sem ég vil gefa eftirfarandi svör við:
Í fyrsta lagi er spurt: „Hvaða mál eru nú fyrir dómstólum sem lúta að meintum fjársvikum fasteignasala í fasteignaviðskiptum, hvar eru þau mál í dómskerfinu og hvernig hefur málarekstur gengið?“
Leitað hefur verið upplýsinga hjá ríkissaksóknara vegna þessa liðar. Í bréfi hans. dags. 26. febr. s.l., segir að eftir því sem næst verði komist séu tvö mál fyrir sakadómi Reykjavíkur sem kynnu að falla undir framanlýst ákæruefni og hér verður nánar getið.
Er þar í fyrsta lagi um að ræða ákæruvaldsmálið nr. 1570/83. Mál þetta barst embætti ríkissaksóknara með bréfi skiptaráðandans í Reykjavík. dags. 27. júní 1983. Málið var framsent Rannsóknarlögreglu ríkisins með bréfi, dags. 29. sama mánaðar, og barst embættinu að nýju þann 10. ágúst 1983. Ákærði var þegar hér var komið undir meðferð skiptaréttar Reykjavíkur sem gjaldþrota. Kæruefnið var að ákærði hefði með sviksamlegum hætti náð eignarhaldi á fimm íbúðum í Reykjavík og nágrenni og endurselt þær jafnharðan og hagnýtt sér andvirði þeirra að hluta án þess að skeyta um skyldu sína sem kaupandi gagnvart hinum upphaflegu seljendum. Ákærði rak um tíma fasteignasölu hér í borg á ábyrgð viðskiptafræðings, en hafði að mestu hætt þeim rekstri þegar greindir atburðir áttu sér stað. Íbúðirnar keypti hann gegnum aðrar fasteignasölur. Dráttur varð á útgáfu ákæru í málinu vegna reksturs riftunarmála fyrir skiptarétti í Reykjavík. Ákæra var gefin út í málinu 6. nóv. 1984, þ.e. á s.l. hausti, og er málið rekið fyrir sakadómi Reykjavíkur.
Í öðru lagi er um að ræða ákæruvaldsmálið 2403/83. Mál þetta barst embætti ríkissaksóknara með bréfi Rannsóknarlögreglu ríkisins, dags. 23. sept. 1983. Ákæra var gefin út í málinu 23. nóv. 1983 og var málinu stefnt fyrir sakadóm Reykjavíkur. Með dómi sakadóms Reykjavíkur frá 9. jan. 1984 var ákæru málsins vísað frá dómi. Dómur þessi var kærður til Hæstaréttar og þar gekk dómur 2. mars 1984 á þann veg að frávísunardómurinn var úr gildi felldur og lagt fyrir sakadómarann að taka málið til dómsmeðferðar.
Ákærði rak þá er atburðir þessir gerðust fasteignasölu hér í borg á ábyrgð tilgreinds lögmanns og annaðist sölu þeirrar fasteignar sem mál þetta er sprottið af.
Til viðbótar því sem hér hefur verið rakið eftir fyrrnefndu bréfi ríkissaksóknara er þess að geta að fyrra málið var þingfest 25. febr. s.l. Var þá skipaður verjandi, en málið kemur næst fyrir 29. mars.
Síðara málið var fyrst tekið fyrir 18. maí 1984, en þá hafði um hríð ekki tekist að ná til ákærða. Það var tekið fyrir aftur í des. s.l. Voru þá teknar skýrslur fyrir dómi. Verjandi var skipaður 3. jan. s.l. og honum gefinn frestur til 22. febr. til að leggja fram skriflega málsvörn. Verjandi bar þá fram beiðni um frest vegna nýrrar gagnaöflunar og var honum veittur lokafrestur til 4. mars. Hann hefur nú skilað vörn og málið hefur verið dómtekið.
Fsp. lýtur að málum fyrir dómstólum vegna meintra fjársvika. Fsp. er skilin þannig að með fjársvikum sé átt við opinber mál, þ.e. refsimál, en ekki almenn einkamál vegna fasteignaviðskipta, vanskila eða galla og hefur eigi verið aflað upplýsinga um slík mál. Ekki er heldur spurt um mál til rannsóknar hjá lögreglu, en hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins er talið að einungis sé eitt nýlegt mál til meðferðar sem fallið gæti undir þann flokk brota sem hér ræðir um.
Í 2. lið fsp. er að því spurt hvort einhverjir aðilar sem telja sig hafa verið svikna af fasteignasölum og í fasteignaviðskipum hafi leitað aðstoðar dómsmrn. og hvaða hjálp dómsmrn. hafi þá getað veitt.
Dæmi eru um að menn leiti til rn. af slíku tilefni. Er oftast um munnlegt erindi að ræða í síma eða í viðtali á skrifstofu. Ekki er til skrá um slík erindi. Úrlausn slíkra mála er naumast á færi rn. sjálfs með öðrum hætti en að vísa aðila á að leita til rannsóknarlögreglu og óska eftir rannsókn eða leita til lögmanns um aðstoð. Þegar slíkir aðilar hafa fjallað um málin að einhverju leyti reynir rn., eftir því sem efni standa til, að kynna sér þá umfjöllun þannig að verða megi að liði ef unnt er. Get ég fullyrt að allmiklum tíma hefur oft verið eytt í slíkt af hendi rn.
Í 3. lið fsp. segir: „Hvaða aðgerðum er dómsmrh. reiðubúinn að beita sér fyrir til þess að auka eftirlit með fasteignasölu, t.d. þannig að fasteignasalar uppfylli í reynd öll þau skilyrði sem sett eru fyrir slíkri starfsemi?“
Enn fremur segir í 4. lið fsp.:
„Hvaða breytingar á lögum eða reglugerðum telur dómsmrh. að gera þurfi til þess að tryggja betur en nú er ábyrgð þeirra sem fasteignaviðskipti stunda og réttarstöðu þeirra sem slíkrar þjónustu njóta?“
Undir lok síðasta þings var lagt fram stjfrv. til nýrra laga um fasteigna- og skipasölu. Frv. var samið af prófnefnd fasteignasala. Var í því gert ráð fyrir ýmsum breytingum frá gildandi lögum sem eru frá árinu 1938. Frv. kom eigi til umr. á því þingi. Þetta frv. verður lagt fram aftur innan skamms á Alþingi, en nokkrar breytingar hefur verið talið æskilegt að gera á því áður en það verður gert.
Nokkrar helstu breytingar skv. frv. voru:
Hert er á kröfum um menntun sem skilyrði fyrir löggildingu fasteignasala. Heimild er til að kveða á um starfsþjálfun. Heimild er til að stofna til námskeiðs fyrir þá sem vilja þreyta próf til löggildingarinnar. Ákvæði er um að fasteignasalar hafi réttindi og beri skyldur sem opinberir sýslunarmenn, þ. á m. varðandi brot í starfi, starfsvernd, æruvernd og þagnarskyldu. Ákvæði er um að fasteignasalar skuli í hvívetna haga störfum í samræmi við góðar viðskiptavenjur. Ákvæði er um að fasteignasali skuli tryggja sér ótvírætt umboð. Rækilegri ákvæði eru en nú um þær upplýsingar sem fasteignasali skal afla og um greinargerð sem honum ber að semja um eign. Ákvæði er um að fasteignasali skuli sjálfur annast samningu skjala í ríkara mæli en nú er. Nýmæli er varða missi skilyrða til að stunda fasteignasölu. Ákvæði er um félag fasteignasala og um eftirlit og úrskurðarvald stjórnar þess félags, en það atriði verður tekið til nánari skoðunar.
Ég tel brýnt að Alþingi gefist færi á að fjalla um þessar tillögur og aðrar sem til bóta geta horft. Ég tel einnig brýnt að þannig sé um hnúta búið að einungis ábyrgir og hæfir menn annist þessa þýðingarmiklu miðlunarstarfsemi. Þarf að stuðla að því að þeir sem þess óska eigi jafnan kost á að afla sér tilskilinna réttinda að uppfylltum skilyrðum um menntun o.fl. og þeir þurfi þá eigi að standa í skjóli annarra. Koma tíðari próf, en með nægum undirbúningi, t.d. námskeiði, hér til álita, en slíkum námskeiðum mun ekki hafa verið til að dreifa.
Í grg. áðurnefnds frv. segir m.a.:
„Ljóst er að margir menn starfa að fasteigna- og skipasölu sem svonefndir „sölumenn“ án þess að hafa fengið leyfi til að starfa sem fasteigna- og skipasalar, en jafnan mun þó vera forstöðumaður skrifstofu með réttindum að lögum. Sjálfsagt er hér pottur brotinn, en illt að koma í veg fyrir það, enda fasteigna- og skipasölum að sjálfsögðu heimilt og oft nauðsynlegt að hafa starfsliði á að skipa í umsýslu sinni. Er því ekki að leyna að oft heyrist að hér sé farið í kringum lögin og forstaða skrifstofu lítið annað en orðin tóm. Er það mál sem ástæða er til að gefa gaum.“
Ég vil undirstrika að þessi orð eru fyllilega réttmæt. Eins og ég gat um áður ber að vinna að því að fasteignasala sé eingöngu stunduð af ábyrgum aðilum sem til þess hafa þekkingu og réttindi. Teldi ég heppilegra, eins og málum er nú komið, að ný og skýrari löggjöf taki gildi um þetta efni frekar en að við núverandi aðstæður verði stofnað til lögreglurannsóknar meðal fasteignasala um það hvernig að þessum viðskiptum er staðið í reynd.
Rétt er að taka fram að talið hefur verið að firma eða félagi sé heimilt að reka fasteignasölu ef forstöðumaður þeirrar starfsemi fullnægir skilyrðum laga um fasteignasölu. Hefur þá jafnframt verið gengið út frá því að sá maður vinni að og fylgist með samningagerðum og öðru sem firmað annast í því sambandi. Ekki er kunnugt um að dómstólar hafi fengið til meðferðar mál þar sem á þessi atriði hefur reynt.