13.03.1985
Efri deild: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3519 í B-deild Alþingistíðinda. (2864)
307. mál, fjárfestingarsjóður launamanna
Flm. (Ragnar Arnalds):
Virðulegi forseti. Við flytjum hér þrír þm. Alþb., auk mín Helgi Seljan og Skúli Alexandersson, frv. til l. um fjárfestingarsjóð launamanna. Segja má um stofnun þessa sjóðs að með henni er ætlunin að slá þrjár flugur í einu höggi. Í fyrsta lagi er ætlunin að draga úr erlendum lántökum þjóðarinnar og stuðla að innlendum sparnaði. Í öðru lagi er ætlunin að efla atvinnuvegi landsmanna með fjárfestingarframlögum í atvinnulífi. En í þriðja lagi er með frv. þessu stefnt að því að auka eignaraðild launamanna í atvinnurekstri og ávaxta inneignir þeirra í fjárfestingarsjóði. Því er ekki að leyna að þetta þriðja og seinasta atriði, sem ég nú nefndi, er raunveruleg frumrót þess að frv. þetta er flutt. Hugmyndir af þessu tagi hafa verið til umr. hér á landi sem í mörgum nálægum löndum.
Í þjóðfélagi okkar tíðkast ýmiss konar rekstrarform. Við höfum hér ríkisrekstur, samvinnurekstur og ýmiss konar sameignarrekstur en langalgengasta rekstrar- og eignarformið í fyrirtækjum er að atvinnufyrirtæki sé í eigu eins eða fárra manna. Þessu frv. er fyrst og fremst ætlað að breyta þessu.
Fyrir langa löngu var svo ástatt að konungar áttu lönd og ríki og stjórnuðu þeim með einræðisvaldi. Nú þykir þetta harla einkennilegt fyrirkomulag í okkar landi og mörgum öðrum nálægum löndum, eitthvað sem tilheyrir liðinni tíð. Ég hygg að eftir nokkra áratugi þyki það einkennilegt sögulegt fyrirbrigði að svo hafi verið ástatt í okkar þjóðfélagi að einn maður hafi átt stórfyrirtæki kannske með hundruðum eða þúsundum manna í vinnu hjá sér og að öllum beri saman um að slíkt hljóti að heyra liðinni tíð til.
Þessu frv. er sem sagt ætlað að stuðla að því að breyting verði í þessum efnum. Með starfsemi sinni yrði fjárfestingarsjóður launamanna stórfelldur eignaraðili í atvinnurekstri með tíð og tíma. Sjóðurinn getur vissulega ávaxtað fé sitt með ýmsum hætti. Hann getur veitt fyrirtækjum lán, en þó er það megintilgangur sjóðsins að hann verði eignaraðili í atvinnulífi og leggi fé sitt fram sem áhættufjármagn, sem eigið fjármagn.
Þó eru það ekki forstjórar sjóðsins eða stjórnendur sem fá með þessum hætti stjórnunaraðild að fyrirtækjum vítt og breitt um þjóðfélagið. Á það verður að leggja sérstaka áherslu að hér er verið að gera tillögu um að starfsmenn í viðkomandi fyrirtæki fari með þann rétt sem fylgir hlutabréfaeign eða annarri eignaraðild að rekstri fyrir hönd fjárfestingarsjóðsins sem er þó hinn formlegi eigandi. Hver starfsmaður, sem inneign á í fjárfestingarsjóðnum, hefur eitt atkvæði á fundi starfsmanna þar sem fjallað er um mál er varða eignaraðild sjóðsins eða lánveitingar til viðkomandi fyrirtækis og reyndar óháð því hve mikil inneignin er eða hjá hverjum þeir störfuðu þegar inneignin myndaðist. Það eru sem sagt starfsmannafélögin sem fara með stjórnunaraðildina en hin formlega eignaraðild verður í höndum fjárfestingarsjóðsins.
Ég vík nú að því hvernig áformað er að sjóðurinn hagi starfsemi sinni. Gert er ráð fyrir því í 3. gr. frv. að í öllum atvinnurekstri verði greitt framlag til fjárfestingarsjóðs launamanna og verði það fjórðungur úr prósenti af heildarlaunum starfsmanna á árinu 1986. Síðan hækki framlagið um fjórðung úr prósenti á ári hverju þar til það er orðið 2%.
Í 4. gr. er skýrt tekið fram að greiðsla frá atvinnurekstri til fjárfestingarsjóðsins skuli færð á reikning viðkomandi launamanns og teljist inneign hans hjá sjóðnum og eignaraðild hans lýsi sér í því að að átta árum liðnum fær starfsmaðurinn hálfa upphæðina endurgreidda en alla upphæðina að tólf árum liðnum. Þá skulu endurgreiðslurnar færðar til gildandi verðlags í samræmi við breytingar á lánskjaravísitölu. Hins vegar er hér ekki gert ráð fyrir að vextir séu greiddir af þessari innstæðu.
Um inneignina eru nánari ákvæði í 5. gr. þar sem sérstaklega er tekið fram að sá, sem eigi inneign hjá fjárfestingarsjóði en hættir vinnu vegna örorku eða aldurs áður en þessu átta eða tólf ára tímabili lýkur, skuli fá eða eigi rétt á að fá eign sína greidda út.
Í 2. gr. eru ákvæði um yfirstjórn fjárfestingarsjóðsins. Gert er ráð fyrir því að yfirstjórnin sé í höndum fulltrúaráðs sem skipað er 45 fulltrúum verkalýðsfélaga og samtaka launamanna og sé fjöldi fulltrúa frá hverju félagi ákveðinn af félmrn. í samræmi við félagatölu og að höfðu samráði við samtök launafólks. Fulltrúaráð þetta á svo að koma saman til fundar eigi sjaldnar en þrisvar á hverju ári og er hin formlega æðsta stjórn sjóðsins. Fulltrúaráðið markar fjárfestingarstefnu sjóðsins í meginatriðum. Hins vegar er gert ráð fyrir því að fulltrúaráðið kjósi sex menn í stjórn sjóðsins og almannavaldið, í þessu tilviki Alþingi, kjósi þrjá fulltrúa þar á móti og að þessi níu manna stjórn hafi með höndum ákvarðanir um fjárfestingar og lánveitingar sjóðsins í samræmi við þá stefnu sem fulltrúaráðið hefur markað.
Eins og ég hef þegar tekið fram er ráð fyrir því gert að fjármagn sjóðsins sé lagt í arðbæran atvinnurekstur sem stofnfé í nýjum rekstri og þá til að auka fjárfestingar í þegar starfandi fyrirtækjum eða koma nýjum fyrirtækjum af stað. Sjóðurinn getur lagt fram fé. hvort heldur með kaupum á hlutabréfum með umsaminni eignaraðild þegar ekki er um hlutafélag að ræða eða með öðrum hætti. Ég hef þegar lagt á það áherslu að þetta væri megintilgangur sjóðsins en hins vegar er gert ráð fyrir því að sjóðurinn geti líka veitt lán gegn þeim tryggingum sem stjórn sjóðsins metur gildar.
Í þessu sambandi er rétt að vekja sérstaka athygli á 3. mgr. 7. gr. þar sem lögð er sú lína í lögunum sjálfum að atvinnurekandi skuli eiga rétt á því að fá 50% af greiðslum fyrirtækisins til sjóðsins til síns fyrirtækis, annaðhvort í formi eignarframlags, ef hann ákveður það og þiggur það, eða sem lán. Hann er sem sagt ekki skuldbundinn á neinn hátt til að fallast á það að aðrir verði eignaraðilar að fyrirtæki hans en hann sjálfur. Þetta er sem sagt ekki frv. sem leggur þá kvöð á atvinnurekendur að þeir verði að taka sjóðinn með sem meðeiganda. Það gera þeir því aðeins að þeir fallist á það sjálfir og þeir telji það henta sinni starfsemi og sínum fyrirætlunum en ella eiga þeir kost á því að fá lán hjá sjóðnum. Í báðum tilvikum er um að ræða að helmingurinn af greiðslum fyrirtækisins til sjóðsins komi til baka með þessu lagi.
En það skilyrði er sett í 3. mgr. 7. gr. að fyrir liggi að starfsmenn fyrirtækisins hafi verið hafðir með í ráðum um ráðstöfun þessa fjár og meiri hluti þeirra hafi veitt samþykki sitt til ráðstöfunar fjárins. Það má sem sagt hugsa sér að starfsmenn öðlist áhrif á stjórn fyrirtækisins og rekstur þess eftir tveimur leiðum skv. þessu frv. Í fyrsta lagi getur verið um það að ræða að starfsmenn fái aðild að stjórn í framhaldi af eignaraðild fjárfestingarsjóðsins að viðkomandi fyrirtæki, en eins er hugsanlegt að það sé fyrst og fremst tengt ráðstöfun þess fjár, sem kemur til baka til fyrirtækisins, annaðhvort sem eignarframlag eða lán, að starfsmannahópurinn fær íhlutunarrétt um ráðstöfun á fjárfestingarfé hjá fyrirtækinu.
Ég gat þess í upphafi að með samþykki þessa frv. væri verið að slá þrjár flugur í einu höggi, tilgangurinn væri þríþættur. Ég ætla þá að lokum að víkja að þeim tveim meginatriðum sem teljast meðal markmiða þessa frv. auk þess að auka eignaraðild launamanna í fyrirtækjum, þ.e., eins og ég nefndi áður, að stuðla að innlendum sparnaði og auka fjárfestingar í atvinnulífi.
Vaxandi skuldasöfnun Íslendinga erlendis er mikið áhyggjuefni. En þegar lög þessi, sem hér er gerð till. um. væru komin til framkvæmda endanlega og fyrirtækin væru farin að greiða 2% af launum til fjárfestingarsjóðsins væri þar með verið að standa fyrir og stuðla að árlegum innlendum sparnaði til fjárfestingar sem næmi hvorki meira né minna en 800 millj. kr. miðað við áætlaðar launagreiðslur á þessu ári.
Það þarf tæpast að brýna hv. alþm. á því að íslenskir atvinnuvegir þarfnast aukinnar tæknivæðingar og hagræðingar til að bæta samkeppnisstöðu þeirra gagnvart erlendum atvinnurekstri og til að gera þeim kleift að greiða hærri laun en þau sem nú eru greidd. En það vantar býsna mikið á að nægilegt átak hafi verið gert í þessa átt. Fjárfestingarsjóður launamanna opnar fyrirtækjum leið að verulegu fjármagni til þess að efla og bæta reksturinn.
Ekki er að efa að þetta fjármagn gæti orðið til að stuðla að verulega auknum fjárfestingum í atvinnulífi og þar með skapa mörg ný atvinnutækifæri, eins og það er nú nefnt á máli sérfræðinga.
Í þessu sambandi má velta því fyrir sér hvort ekki sé verið að leggja þunga byrði á atvinnureksturinn. Ég tel að svo sé ekki. Í fyrsta lagi er ljóst að helmingurinn af greiðslunni kemur til baka til viðkomandi fyrirtækis. annaðhvort í formi láns eða í formi eignarframlags, eftir því hvort eigandinn heldur kýs. Í raun má segja að þessi greiðsla komi fyrst og fremst frá atvinnurekendum, en það verður að hafa í huga að hún kemur til frádráttar í bókhaldi rekstrarins og væri því í mörgum tilvikum fyrst og fremst greidd af neytendum auk þess sem greiðslan kæmi hvorki til skatts hjá launagreiðanda né launamanni og væri þess vegna í raun greidd af skattgreiðendum, sbr. 6. gr. frv. Það er því ljóst að fjármunir sjóðsins eru ekki fengnir einhliða frá atvinnurekendum. Þeir eru miklu frekar teknir af landsmönnum öllum, neytendum og skattgreiðendum. launamönnum og atvinnurekendum. Þessir aðilar allir eru að leggja til hliðar fjármagn sem nyti sérstakra fríðinda. en atvinnufyrirtækin fengju endanlega að ráðstafa.
Fríðindi í þágu atvinnurekstrar í íslenskri löggjöf eru æði mikil og þykir mörgum nóg um. Á það einkum við um margháttuð skattfríðindi. Hér væri sem sagt leitað jafnvægis á þann hátt að launamenn yrðu formlegir eigendur þessa fjármagns sem atvinnureksturinn nyti þó góðs af með beinum eða óbeinum hætti. Jafnframt væri þá að því stefnt að starfsmenn fyrirtækja yrðu hafðir með í ráðum um fjárfestingu og uppbyggingu í fyrirtækjum.
Sjálfsagt er að geta þess að þessi hugmynd er ekki alíslensk. Hún er upphaflega orðin til í ýmsum nálægum löndum þar sem hliðstæðar hugmyndir hafa verið mjög til umr. Alþýðusamböndin í Danmörku og Svíþjóð hafa haft mikið frumkvæði í umr. um þessi mál, en ég hygg að atvinnurekendur hafi líka lagt talsvert af mörkum í þessari umr. Benda má á að í Svíþjóð hafa verið samþykkt lög um launþegasjóði eða um sjóði launamanna, eins og mér finnst eðlilegra að nefna þá á íslensku. Ég vil þó taka fram að þetta frv. er á margan hátt frábrugðið sænsku lögunum og það í ýmsum mikilvægum atriðum. Ég tel að lögin væru einfaldari í framkvæmd og vissulega yrði eignarhlutdeild launamanna miklu persónubundnari þar sem gert er ráð fyrir því að launamenn eigi þessa inneign hjá sjóðnum á sérstökum reikningi og geti fengið hana endurgreidda að nokkrum tíma liðnum. Ekki er gert ráð fyrir því í sænsku lögunum þar sem sjóðurinn er þar raunverulega í aðalhlutverki. Það er einmitt þetta atriði sem mjög hefur verið gagnrýnt af andstæðingum launamannasjóða í Svíþjóð.
Loks er rétt að geta þess hér að þessi mál hafa verið nokkuð til umr. innan Alþýðusambands Íslands og á nýlegu Alþýðusambandsþingi var gerð ályktun um atvinnulýðræði þar sem m.a. er mjög hvatt til þess að stofnaðir verði launamannasjóðir. Mér er ekki kunnugt um að ágreiningur hafi verið á Alþýðusambandsþingi um þessa hvatningu og ályktun um stofnun launamannasjóða. En ályktun Alþýðusambandsins er birt í þskj. sem fskj.
Virðulegi forseti. Ég sé svo ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um þetta mál. Ég minni á að málið er náskylt því sem nefnt hefur verið atvinnulýðræði, en þó alls ekki sama málið. Atvinnulýðræði snýst fyrst og fremst um að gera starfsmenn fyrirtækja aðila með einum eða öðrum hætti að stjórnum fyrirtækja, annaðhvort með samkomulagi eða með löggjöf. En hérna er meira um að ræða eignaraðild launamanna að fyrirtækjum og sú hlið málsins hefur oft verið nefnd efnahagslegt lýðræði. En vissulega getur stjórnunaraðild síðan fylgt í kjölfarið og fer þá eftir eignaraðild í hverju tilviki.
Ég tel engu minni þörf á því að samkomulag yrði gert um verulegt átak í átt til atvinnulýðræðis en um það fjallar sem sagt ekki þetta frv. Hins vegar hef ég flutt hér á Alþingi nokkrum sinnum till. um þá hlið málsins. Þessu vildi ég bæta við til að gera málið skýrara í heild sinni.
Virðulegi forseti. Ég legg svo til að að lokinni þessari umr. verði þessu frv. vísað til hv. fjh.- og viðskn. og 2. umr.