13.03.1985
Efri deild: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3531 í B-deild Alþingistíðinda. (2872)
342. mál, verslunaratvinna
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir:
Virðulegi forseti. Þetta er hið ágætasta mál, en ég rek augun í það í ákvæði til bráðabirgða að veita skuli leyfi þótt viðkomandi aðilar fullnægi ekki kröfum 4. gr. laganna að öllu leyti. Mig langar til að spyrja hæstv. ráðh.: Hvað þýðir þetta „að öllu leyti“ þarna? Um hvað er verið að tala? Hvers lags undanþágur eru hugsaðar þarna ef það er þá meiningin? Hvar á þá að slaka á með leyfisveitinguna?