13.03.1985
Neðri deild: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3533 í B-deild Alþingistíðinda. (2881)

347. mál, aðgerðir til að bæta hag sjómanna

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Eins og hv. þm. er kunnugt lauk nýlega verkfalli sjómanna. Á þeim tíma sem það stóð áttu fulltrúar ríkisstj., fyrst og fremst sjútvrh. en einnig ég og fjmrh., marga fundi með fulltrúum sjómanna, fulltrúum farmanna og fulltrúum útvegsmanna. Í ljós kom að deilan yrði ekki leyst án þess að stjórnvöld legðu þar nokkuð af mörkum. Náðist samkomulag um sjö atriði sem öll eru rakin í almennum athugasemdum við þetta frv. Nokkur þessara atriða koma síðan fram í frumvarpsformi í frv. um Aflatryggingasjóð sem ég mun mæla fyrir síðar á þessum fundi fyrir hönd sjútvrh. Mér þykir þó rétt að gera grein fyrir þessum atriðum í heild sinni. Hygg ég að þannig fáist betri heildarmynd af þeim atriðum sem hér er um að ræða.

Það fyrsta varðar lífeyrisréttindi sjómanna. Sjómenn hafa lengi barist fyrir því að lífeyrisréttindi myndist af öllum launum þeirra. Áhafnir á svokölluðum stórum togurum, sem nú eru aðeins 12 að tölu, hafa lengi haft þau réttindi en hins vegar ekki sjómenn yfirleitt. Þeirra lífeyrisréttindi hafa myndast af tiltölulega lágum föstum greiðslum. Samkomulag náðist þó milli sjómanna og útvegsmanna um það að á næstu tveimur árum hækki stofn lífeyrisgjalds í áföngum upp í heildarlaun sem verði síðan grundvöllur lífeyrisréttinda sjómanna frá 1. janúar 1987. Það var skilyrði fyrir þessu samkomulagi af hálfu útvegsmanna að áhafnadeild Aflatryggingasjóðs legði fram 1% af skiptaverði afla til þess að standa undir hluta af kostnaði við lífeyrisgreiðslur. Ríkisstj. ákvað að styðja þetta mál með því að verja 80 millj. kr. á árinu 1985 af endurgreiðslu söluskatts til sjávarútvegs. sem fé er veitt til á fjárlögum, til að standa straum af þessari greiðslu. Eins og ég sagði áðan þá hefur verið dreift hér á Alþingi frv. til laga um breytingu á lögum um Aflatryggingasjóð þar sem gert er ráð fyrir að festa þetta í lög. Er þessu samkomulagi sjómanna lýst nánar í því frv.

Ég vil lýsa ánægju minni með þennan áfanga í lífeyrismálum sjómanna. Ég tel að þetta sé ákaflega mikilvægt mál. Það hefur lengi verið baráttumál sjómanna. Ég tel þetta réttlætismál og fagna því að samstaða hefur náðst með útvegsmönnum og sjómönnum og tel eðlilegt að ríkissjóður hlaupi nokkuð undir bagga til að stuðla að því að þetta mál komist í höfn.

Í öðrum lið þeirra atriða sem ríkisstj. samþykkti segir að sjútvrh. muni enn fremur gera ráðstafanir til þess. að áhafnadeild geti hækkað fæðispeningagreiðslur til sjómanna sérstaklega um 25% frá 1. mars 1985. En fæðispeningagreiðslur úr áhafnadeild Aflatryggingasjóðs hafa undanfarin tvö ár rýrnað nokkuð í hlutfalli við fæðiskostnað sjómanna. Tekjustofn áhafnadeildar dugir hins vegar að óbreyttu einungis fyrir fæðispeningum eins og þeir eru nú. Sjómenn lögðu mikla áherslu á leiðréttingu á þessum greiðslum og féllst ríkisstj. á að auka fjárveitingu til áhafnadeildar um 50 millj. kr. á árinu 1985 til þess að gera deildinni kleift að hækka fæðispeninga um 25% frá 1. mars. Einnig um þetta er tillaga í frv. til l. um breytingu á lögum um Aflatryggingasjóð sem hér liggur fyrir.

Þá er í þriðja lagi á listanum að fiskimannafrádráttur verði aukinn úr 10% í 12% við álagningu tekjuskatts árið 1985 af tekjum ársins 1984. Þessi aukni skattfrádráttur sjómanna kostar ríkissjóð um 20 millj. kr. Auk þess er í frv. lagt til að slíkur frádráttur gildi einnig fyrir farmenn eins og fjmrh. hafði heitið við lausn kjaradeilu farmanna og skipafélaga. Útvíkkun tekjutengds sjómannafrádráttar er talinn munu kosta ríkissjóð um 30 millj. kr. á þessu ári, þ.e. bæði til fiskimanna og farmanna. Ég vil geta þess að fyrir hinu háa Alþingi mun liggja frv. til laga um breytingu á skattalögum hvað varðar þessa útvíkkun til farmanna. En í frv. því sem hér er flutt er gert ráð fyrir hvoru tveggja og kemur þetta ákvæði frv. því í stað þess sem liggur fyrir Alþingi.

Í fjórða lagi hefur kostnaðarhlutdeild útgerðar utan skipta lengi verið mikið deiluefni. Í frv. er lagt til að kostnaðarhlutur lækki þegar í stað um 2% en það eykur aflahlut sjómanna að sama skapi. Þessi breyting er talin kosta útgerðina um 50 millj. kr. á heilu ári. Tekjuskiptingarmálefni útvegsins eru nú öll í endurskoðun í sérstakri nefnd sem sjútvrh. hefur skipað.

Eins og hv. þm. er kunnugt varð á þessum þætti nokkur breyting eftir að samkomulag útvegsmanna og sjómanna hafði verið fellt. Því hafði verið heitið að þessu yrði breytt í tengslum við endurskoðun á sjóðakerfinu. Gert var ráð fyrir því að það kæmi til framkvæmda fyrir næstu áramót. En við endurtekna samninga féllust útvegsmenn á að þessi kostnaðarhlutdeild kæmi til framkvæmda strax. Rituðu formaður Sjómannasambandsins og formaður Farmanna- og fiskimannasambandsins ríkisstj. bréf þar sem farið var fram á að þessu yrði breytt á þann veg sem nú er gert ráð fyrir í frv. Þetta er því gert að ósk deiluaðila að öllu leyti.

Í fimmta lagi gerir frv. ráð fyrir lækkun á ýmsum kostnaðarliðum sem á olíu falla. Á síðastliðnu sumri ákvað ríkisstj. að fara skyldi fram endurskoðun á skattlagningu á olíuvörum til útvegsins. Með þessu frv. eru lagðar fram ákveðnar tillögur um framkvæmdir í þessu efni sem leiða munu til lækkunar olíuverðs um 2% eða nálægt 50 millj. kr. á heilu ári fyrir útveginn. Aðrir notendur olíu munu einnig njóta þessarar lækkunar. Þessi breyting á olíusköttum mun kosta ríkissjóð um 30 millj. kr. á heilu ári en um 22 millj. kr. á þessu ári þar sem breytingin kemur til framkvæmda frá 1. apríl n.k Niðurfelling landsútsvars mun kosta sveitarfélögin um 60 millj. kr. á næsta ári. 1986, en ekkert á þessu ári. Áhrif niðurfellingar landsútsvars af gasolíu og svartolíu munu hins vegar koma fram í verði á þessum vörum þegar frá 1. apríl n.k Þá hefur viðskrh. lagt fram á Alþingi frv. til l. um flutningsjöfnunarsjóð olíu og bensíns sem væntanlega mun leiða til frekari lækkunar á olíuvörum til útvegsins. Erfitt er að segja nákvæmlega fyrir um hversu mikil sú lækkun verður og er hún því ekki með í þeim tölum sem ég hef hér nefnt um lækkun á olíuverði um 2% eða í þeirri töflu sem birt er í aths. frv.

Hér er ekki um stóra liði að ræða almennt fyrir ríkissjóð og banka. Ég tel eðlilegt að felld séu niður gjöld af olíu, bæði gasolíu og svartolíu, og þannig að því stuðlað að hún geti verið á lægsta verði sem fært er. Þetta er þyngri baggi fyrir sveitarfélögin, það er alveg ljóst, og eðlilegt að athuga hvort ekki megi bæta tekjumissi Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga eftir öðrum leiðum, t.d. með því að fyrirtæki, sem nú greiða ekki landsútsvar en starfa á landsvísu, greiði landsútsvar í Jöfnunarsjóð með breytingum sem gerðar yrðu þá á lögum slíkra fyrirtækja.

Í sjötta lagi. Ríkisstj. hefur þegar haft samband við forustumenn olíufélaganna um það að allra leiða verði leitað til þess að koma í veg fyrir að skammvinn hækkun olíuverðs á Rotterdam-markaði valdi hækkun á olíuverði hér á landi meðan fiskverð er bundið, þ.e. til loka maí. Nú mun væntanlegt til landsins olíuskip með farm á hærra verði en síðast gilti. Hins vegar er ekki talið ólíklegt, og reyndar er því mjög ákveðið spáð af sérfræðingum, að olíuverð lækki með vorinu. Því er hér um það að ræða að brúa u.þ.b. 25 millj. kr. kostnað í mjög skamman tíma. Munu verða gerðar ráðstafanir við viðskiptabankana til þess.

Í sjöunda lagi að lokum er þess getið í þessum atriðum að fyrir Alþingi er nú frv. til siglingalaga þar sem m.a. eru ákvæði um slysatryggingu sjómanna. Nýjum kjarasamningi sjómanna og útvegsmanna fylgdi samkomulag um verulega hækkun bæði örorkubóta og dánarbóta frá því sem er í frv. til siglingalaga. Beina samningsaðilar því til Alþingis að taka þær breytingar inn í frv. í meðförum þingsins. Í þessu felst nær tvöföldun örorkubóta og tæplega 40% hækkun dánarbóta fyrirvinnu. Kostnaðurinn af þessum auknu tryggingum er borinn af útgerðarmönnum. Ég þykist þess fullviss að samgn. Ed., sem hefur siglingalagafrv. nú til meðferðar, muni fúslega taka til greina þessa málaleitun. Samgrh. mun skrifa nefndinni þar að lútandi. Ég vil einnig geta þess að með tilvísun til þeirrar áhættu, sem sannarlega fylgir sjómannsstarfinu og er margstaðfest af slæmum slysum, sýnist mér að hér sé einnig um réttlætismál að ræða og nauðsynlegt að teygja sig eins langt og frekast er unnt, án þess að misræmis gæti við aðrar stéttir.

Þessum aðgerðum fylgir að sjálfsögðu, eins og ég hef nefnt, kostnaður fyrir ríkissjóð og sveitarfélög. Ríkið leggur verulegar fjárhæðir af mörkum til þess að samningar gætu tekist í sjómannadeilunni enda taldi ríkisstj. að mikið væri í húfi. Í heild má segja að fyrir utan þær 80 millj. kr. sem koma af endurgreiðslu söluskatts til sjávarútvegs, sem fé var veitt til á fjárlögum, kosti þessar aðgerðir ríkissjóð um 100 millj. kr. á einu ári en rúmlega 80 millj. kr. á þessu ári. Niðurfelling landsútsvars mun, eins og ég hef áður sagt, rýra tekjur sveitarfélaganna um 60 millj. kr. á árinu 1986 en ekkert á þessu ári. Má segja að það mál komi fyrst til raunverulegra álita við gerð fjárlaga og fjárhagsáætlunar fyrir árið 1986.

Eins og fram kemur í fylgiskjölum með frv., sem sjútvrh. hefur lagt fram um Aflatryggingasjóð, er afkoma útgerðarinnar erfið við ríkjandi skilyrði. Þessi sömu gögn sýna að rekstrarstaða útvegsins er þó til muna skárri nú en hún var 1983. Það ár var tap á botnfiskveiðum sem nam um 10% af tekjum. Nú virðist útlit fyrir tap sem nemi um 4–5% af tekjum. Staða nýjustu togaranna er þó enn afar erfið. Reyndar er staða nýjustu togaranna mjög stór þáttur í þessu tapi sem reiknað er 4–5% af tekjum. Virðist satt að segja lítil von til þess að útgerð þeirra beri sig með þeim afla sem nú er leyft að taka. Afkoma flotans í heild hefur fyrst og fremst skánað vegna þeirra aðgerða sem ríkisstj. hefur gripið til. Vil ég þar nefna sérstaklega greiðslur úr Aflatryggingasjóði til útvegsins sem nema nú 7% af skiptaverðmæti alls afla, auk greiðslna úr verðjöfnunardeild Aflatryggingasjóðs. Undir þessum greiðslum verður m.a. staðið með endurgreiðslu söluskatts til sjávarútvegsins eins og hér hefur verið rætt um við afgreiðslu fjárlaga og gert er ráð fyrir í fjárlögum ársins í ár.

Þá vil ég einnig nefna lengingu lána til útvegsins og lækkun vaxta Fiskveiðasjóðs sem samanlagt mun láta nærri að hafi helmingað greiðslubyrði flotans af vöxtum og atborgunum stofnlána. Mun sú upphæð nema á ársgrundvelli um 1.5 milljörðum kr. Þarna hefur því átt sér stað mjög mikil fjárhagsleg endurskipulagning sjávarútvegsins sem vonir standa til að muni, ásamt vaxandi afla, breyta afkomu hans í náinni framtíð.

Það eru hins vegar, eins og ég sagði áðan, tiltölulega fá skip sem enn glíma við mikinn fjárhagsvanda. Eru þar víðast ekki aðrar leiðir færar en að láta málin ganga sína eðlilegu viðskiptaleið, eins og reyndar er gert ráð fyrir í því uppgjöri sem fram hefur farið á vegum Fiskveiðasjóðs og annarra skuldheimtumanna útgerðarinnar. Við þessar aðstæður er þó augljóst að ekki er unnt að leggja mikið á útgerðina. Í aðgerðum ríkisstj. nú felst þannig ekki íþynging fyrir útgerðina, fremur stuðningur, eins og ég gerði grein fyrir. Ljóst er þó að útgerðin hefur tekið á sig nokkuð aukinn kostnað með hinum nýju samningum. Má áætla mjög lauslega að fyrir utan lækkun kostnaðarhlutdeildar um 2%, sem er nokkurn veginn vegin upp með 2% lækkun olíuverðs, kosti samningarnir útgerðina um 100–120 millj. kr., sem vonandi tekst að kljúfa með aukinni hagkvæmni í rekstri og auknum afla af þeim fisktegundum sem heimilt er að veiða.

Nýgerðir kjarasamningar og þær aðgerðir sem ég hef rakið bæta tvímælalaust kjör sjómanna á ýmsa lund. Þó er dálítið erfitt að meta það til fjár, t.d. stórbættan lífeyrissjóð, tryggingar og önnur mál sem sjómenn leggja mikla áherslu á. En fyrst og fremst vil ég nefna þessi réttindamál sem ekki verða, eins og ég segi, beinlínis talin til launa á líðandi stundu. Þetta eru að mínu mati mikilvægustu þættir samninganna. En samningarnir og aðgerðir þær sem hér er talað fyrir í framhaldi af þeim bæta einnig kjör sjómanna hvað varðar greidd laun á þessu ári. Eftir fiskverðsákvörðunina um áramótin var talið að tekjur sjómanna í hlutfalli við tekjur annarra væru nærri meðallagi síðustu sjö árin. En þar í eru bæði feit og mögur ár. Með þessum samningum hygg ég að tekjur sjómanna borið saman við aðrar stéttir séu a.m.k. fyllilega sambærilegar þótt erfitt sé að meta það í hundraðshluta.

Ég vil að endingu segja að ég tel þetta mjög mikilvæga og nauðsynlega leiðréttingu á kjörum sjómanna. Og mér sýnist að eins og að þessum málum er staðið í gegnum lífeyrissjóðinn og gegnum tryggingamál sjómanna fyrst og fremst, gegnum matarpeninga sjómanna og með hækkun skattfrádráttar, þegar tekið er tillit til fjarveru sjómanna frá sínum heimilum, sé ekki um að ræða fordæmi fyrir aðrar stéttir. Ég tel að viðurkenna verði að sérstaða sjómanna er mikil og fyrst og fremst varða þessi hagsmunamál þá sérstöðu.

Herra forseti. Ég skal ekki lengja ræðu mína um þetta mikilvæga mál. Ég hef kosið að lýsa frv. með því að lýsa þeim sjö atriðum sem ríkisstj. lagði til mála og eru síðan í hinum ýmsu greinum frv. færð í lagaform. Ég legg svo til að að lokinni þessari umr. verði málinu vísað til hv. sjútvn.