13.03.1985
Neðri deild: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3541 í B-deild Alþingistíðinda. (2886)
347. mál, aðgerðir til að bæta hag sjómanna
Svavar Gestsson:
Herra forseti. Hæstv. forsrh. hefur sennilega misskilið spurningu mína. Hún gekk út á það að gert er ráð fyrir að fella niður landsútsvör. Þar af leiðandi verður dregið nokkuð úr tekjum sveitarfélaganna eða um 60 millj. kr. á árinu 1986 eins og hæstv. ráðh. upplýsti í framsöguræðu sinni. Hann gat þess jafnframt að meiningin væri að leggja útsvör á einhver fyrirtæki sem ekki bæru útsvör núna. Ég spyr hæstv. ráðh.: Hvaða fyrirtæki eru það sem hann hefur í huga? Ég held það væri mjög fróðlegt að fá um það upplýsingar.
Í öðru lagi segir hann að söluskattur muni skila mun meiri tekjum á árinu 1985 en gert hafði verið ráð fyrir og dregur þá þá ályktun að þar af leiðandi fari þeim mun meira í jöfnunarsjóðinn. Þetta hlýtur að vera misskilningur hjá hæstv. ráðh. vegna þess að fyrir Ed. liggur frv. til lánsfjárlaga sem gerir ráð fyrir að takmarka söluskattsgreiðslur í Jöfnunarsjóð sveitarfélaga á árinu 1985 við ákveðna upphæð. Það hlýtur þá að vera ætlunin hjá hæstv. ríkisstj. að breyta þeirri upphæð sem liggur fyrir í frv. til lánsfjárlaga og verið er að fjalla um nú í Ed.
Ég vildi leyfa mér að inna hæstv. ráðh. nánar eftir þessu tvennu.