13.03.1985
Neðri deild: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3541 í B-deild Alþingistíðinda. (2888)

347. mál, aðgerðir til að bæta hag sjómanna

Forsrh. (Steingrímur Hermannsson):

Herra forseti. Þessari spurningu hv. þm. er vandsvarað. Ég vil hins vegar halda því fram að íslenskir útvegsmenn hafi haft mjög mikið frelsi til eigin ákvarðana. Ef útvegsmaður kaupir skip er ríkisvaldinu að vísu venjulega kennt um, en ég hygg að það sé oftast útgerðarmaðurinn sjálfur sem ákveður að kaupa skipið. Hann verður að fá lán í Fiskveiðasjóði, hann verður að ganga fyrir stjórn Fiskveiðasjóðs og fá þar sitt mál afgreitt, en Fiskveiðasjóður er ekki undir stjórn ríkisstj. Að vísu gilda ákveðnar reglur um Fiskveiðasjóð sem Alþingi hefur sett og reglugerðir sem sjútvrh. hefur sett á grundvelli þeirra laga, en innan þess ramma starfar stjórn Fiskveiðasjóðs. Sama gildir um fiskverkendur.

Ég hygg að ef hægt er að tala um takmarkað frelsi útvegsmanna og fiskverkenda sé það fyrst og fremst vegna fjármagnsskorts. Ef útvegsmaður hefur fjármagn bannar honum enginn að fara í endurbætur á sínu frystihúsi eða sínu skipi. Þetta hefur að vísu breyst nýlega með kvótakerfinu, sem setur miklu meiri hömlur á útvegsmenn þannig að jafnvel þó útvegsmaður hafi fjármagn hefur hann enga tryggingu fyrir því, ef hann kaupir skip, að hann fái leyfi til að veiða. Að því leyti hefur á þessu orðið mikil breyting nú. Ég lít svo á að hún hafi orðið af illri nauðsyn til þess að takmarka heildaraflann við það magn sem talið er óhætt að taka.

Ég skal ekki segja hvort meira frelsi fyrir útvegsmenn og auðveldari aðgangur að fjármagni leiddi til betri afkomu útvegsins og fiskvinnslunnar. Ég hygg að afkoma þjóðarbúsins í heild væri betri ef fjármagn væri hér ekki af svo skornum skammti því vitanlega er það okkar erfiðasti þröskuldur í dag. Það er því margt sem þessu tengist.

Hv. þm. Svavar Gestsson ítrekaði spurningar til mín. Ég tel mig hafa svarað fyrri spurningunni, en mér láðist að svara þeirri síðari. Í sambandi við þá fyrri er rétt hjá hv. þm. að lánsfjárlagafrv. liggur fyrir Ed., en hefur ekki verið afgreitt. Fjmrh. mun leggja til nauðsynlegar breytingar á því þannig að Jöfnunarsjóður sveitarfélaga beri ekki tjón af þessari breytingu í ár.

Varðandi önnur fyrirtæki sem greiða ættu landsútsvar vil ég segja að sú hugmynd var nefnd við afgreiðslu þessa máls og hefur alls ekki verið afgreidd í ríkisstj. Það sem ég segi um það hér eru því eingöngu vangaveltur mínar. Ég nefndi t.d. sementsverksmiðju sem mér er tjáð að greiði ekki landsútsvar. Vel kæmi til greina að hún greiddi landsútsvar. Ég vil ekki, vegna ókunnugleika á því hvaða fyrirtæki greiða landsútsvar eða ekki, fara að telja upp fyrirtæki almennt. En á þetta hefur félmrh. minnst og reyndar fleiri ráðh. og það verður skoðað.