13.03.1985
Neðri deild: 47. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3547 í B-deild Alþingistíðinda. (2894)

50. mál, ríkisábyrgð á launum

Félmrh. (Alexander Stefánsson):

Herra forseti. Hér er um að ræða frv. til l. um ríkisábyrgð á launum sem flutt var í Ed. á þskj. 50. Ed. hefur fjallað um málið og gert á því eina breytingu frá frv. sem er talsvert veigamikil. Til að stytta umr. tel ég ekki ástæðu til að endurtaka ítarlega framsögu fyrir málinu í hv. Ed. þar sem ég flutti framsöguræðu fyrir þessu frv. á síðasta þingi en þá náði frv. ekki fram að ganga.

Þetta frv. er fyrst og fremst flutt til að lagfæra ýmsa vankanta sem verið hafa á framkvæmd laga um ríkisábyrgð á launum. Það er samið af valinkunnum mönnum sem til þess voru kjörnir í nefnd 1981. Í nefndinni áttu sæti Hólmfríður Snæbjörnsdóttir deildarstjóri í félmrn., og var hún formaður nefndarinnar, Egill Sigurgeirsson hæstaréttarlögmaður, tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands, Einar Árnason lögfræðingur, tilnefndur af Vinnuveitendasambandi Íslands, Gunnlaugur Claessen deildarstjóri í fjmrn. og Markús Sigurbjörnsson fulltrúi yfirborgarfógeta í Reykjavík.

Helstu breytingar frá gildandi lögum sem í þessu frv. felast eru í fyrsta lagi í III. kafla frv. þar sem eru reglur um meðferð greiðslukröfu á hendur ríkissjóði, en fyrirmæli þar um eru ekki ítarleg í gildandi lögum. Reglur þessar miða að því að hraða málsmeðferð og gera hana einfaldari í framkvæmd, auk þess sem þær samræma betur skiptameðferð bús en núgildandi lög gera. Í því sambandi er bent á ákvæði 7. gr. frv. en þar er að finna upptalningu á þeim upplýsingum og gögnum sem launþegi þarf að láta fylgja kröfu sinni til rn. Þá er enn fremur í 8. gr. tilgreint hverra upplýsinga rn. þurfi að afla frá skiptaráðanda um kröfuna.

Í 9. gr. er sérregla um gagnaöflun launþega og rn. í þeim tilvikum sem gögnin eru ekki gefin út fyrir skiptameðferð í búi vinnuveitanda.

Í 11. gr. eru fyrirmæli um ákvarðanatöku í rn. um það hvort kröfu skuli greiða úr ríkissjóði og jafnframt fyrirmæli um hvernig leysa skuli úr ágreiningi um hvort krafa njóti ríkisábyrgðar.

Loks eru í 13. gr. fyrirmæli um tilkynningar o. fl. varðandi yfirtöku ríkissjóðs á kröfu.

Ríkisábyrgðin nær skv. 1. gr. frv. til kröfu launþega á hendur skuldafrágöngubúi látins vinnuveitanda auk þess að ná til kröfu á hendur gjaldþrota vinnuveitanda eins og núgildandi lög mæla fyrir um.

Skv. d-lið 4. gr. frv. er fjölgað þeim aðilum sem krafið geta ríkissjóð um dánarbótakröfu á hendur vinnuveitanda.

Í b-lið 5. gr. frv. eru fyrirmæli um 5% hámarks hlutafjáreign sem launþegi má eiga í gjaldþrota hlutafélagi til þess að hann njóti ríkisábyrgðar á kröfum sínum. Núgildandi reglugerðarákvæði þar að lútandi eru 2%.

Í 8. gr. 2. mgr. er heimild til að taka greiðslukröfu á hendur ríkissjóði til afgreiðslu fyrr en núgildandi lög mæla beinlínis fyrir um.

Í 2. mgr. 11. gr. frv. er heimild til veitingar gjafsóknarleyfis til handa launþega í ágreiningsmálum um hvort ríkisábyrgð fylgi kröfu.

Í þriðja lagi gerir frv. í b-lið 4. gr. ráð fyrir að ríkisábyrgð nái ekki til orlofsfjárkrafna eins og núgildandi lög gera ráð fyrir nema í þeim tilvikum sem launþegi fer sjálfur með fyrirsvar fyrir kröfu sinni.

Í a-lið 4. gr. er sett hámark á það tímabil sem launþegi getur fengið greiðslu launakröfu úr ríkissjóði fyrir. Það ákvæði kemur í staðinn fyrir 5. mgr. 2. gr. núgildandi laga sem reynst hafa mjög óljós og torveld að fylgja í framkvæmd.

Þá vil ég taka fram að í 3. gr. frv. eru skilgreind grundvallarhugtök varðandi framkvæmd laganna sem nær með öllu vantar í núgildandi lög. Á ég þar við hugtökin „vinnulaun“ og „launþegi“.

Eins og ég áður sagði, herra forseti, tel ég ekki ástæðu til að fara ítarlega í frv. við þessa umr. Ég vil aðeins geta þess að það var gerð veigamikil breyting í hv. Ed. þar sem gengið er til móts við óskir launþegahreyfinga um það að taka inn í ríkisábyrgðina kröfu viðurkenndra lífeyrissjóða vegna vangoldinna lífeyrissjóðsiðgjalda, bæði iðgjaldahluta launþega og vinnuveitenda, að því leyti sem það tímabil fellur innan tímamarka þeirra sem kröfunni fylgir forgangsréttur í búið. Þetta er ákaflega mikilvægt atriði og launþegasamtökin lögðu mikla áherslu á að fá þetta inn í frv. Í hv. Ed. var algjört samkomulag um að taka þetta inn í frv. og hef ég að sjálfsögðu ekkert við það að athuga.

Ég vil svo að lokinni þessari umr. mælast til þess að frv. verði vísað til 2. umr. og hv. félmn. Ég legg mikla áherslu á að hv. alþm. geti sameinast um að láta þetta frv. verða að lögum á þessu þingi.