24.10.1984
Neðri deild: 6. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 471 í B-deild Alþingistíðinda. (292)
30. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja
Flm. (Jón Baldvin Hannibalsson):
Herra forseti. Ég mæli hér með frv. til laga um breytingu á lögum um kjarasamninga Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, nr. 29 frá árinu 1976, með síðari breytingum. Meðflm. minn í þessu máli er hv. þm. Guðmundur Einarsson. Hæstv. iðnrh. skaut því að mér, um leið og hann heyrði að nú ætti að setja lög á Bandalag starfsmanna ríkis og bæja, að það væri ekki meiningin að binda með þessu endi með lögum á kjaradeilur heldur að stuðla að því að samkomulag náist um framkvæmd og verklag í vinnudeilum af þessu tagi og til þess m.a. að verkföll dragist ekki á langinn vegna ágreinings um vinnubrögð og formsatriði.
Í yfirstandandi kjaradeilu hefur mikið verið rætt um kjaradeilunefnd og verksvið hennar. Um það er fjallað í 26. gr. laga um Bandalag starfsmanna ríkis og bæja og kjarasamninga þess, en þar segir, með leyfi forseta:
„Þótt löglegt verkfall sé hafið er starfsmönnum, sem í verkfalli eru, skylt að starfa svo að haldið verði uppi nauðsynlegri öryggisvörslu og heilsugæslu. Kjaradeilunefnd ákveður hvaða einstakir menn skuli vinna í verkfalli og hún skiptir vinnuskyldu á milli manna. Um laun og kjör þessara manna á meðan á verkfalli stendur skal fara eftir þeim kjarasamningi sem gerður verður að loknu verkfalli“.
Í yfirstandandi deilum og reyndar að nokkru leyti einnig árið 1977 hefur þessi lagagrein orðið allumdeild. Það mál sem við hér flytjum er að við 26. gr. bætist tvær nýjar mgr. er orðist svo:
„Rísi ágreiningur vegna úrskurðar kjaradeilunefndar geta deiluaðilar, annar hvor eða báðir, kært úrskurðinn til Hæstaréttar er kveði tafarlaust upp fullnaðarúrskurð. Framkvæmd á úrskurði kjaradeilunefndar frestist uns dómur Hæstaréttar er fallinn.
Kæru um vanhæfi nefndarmanna í kjaradeilunefnd í einstökum málum ber að skjóta með sama hætti til fullnaðarúrskurðar Hæstaréttar.“
Síðan segir þar að lög þessi öðlist þegar gildi. Herra forseti. Þetta mál er mjög brýnt mál. Þær deilur sem nú standa yfir í þjóðfélaginu valda því að mjög æskilegt væri að þetta mál fengi skjóta afgreiðslu í meðförum þings. Ég skora á hv. alþm. að kynna sér málið og greiða fyrir því, hver með sínum hætti, að það gæti fengið skjóta afgreiðslu.
Rökin fyrir því að þetta sé æskileg breyting eru m.a. þessi:
Í þeim lögum sem ég hef nú vitnað til er ekki að finna neitt ákvæði er kveði á um að unnt sé að áfrýja úrskurðum kjaradeilunefndar. Í yfirstandandi kjaradeilu hefur berlega komið í ljós að mínu mati að þetta er missmíði á lögunum. Sérstaklega er þetta tilfinnanlegt þegar ágreiningur rís um verksvið nefndarinnar eða vanhæfi einstakra nefndarmanna til að fjalla um viðkvæm deilumál vegna beinna tengsla við hagsmunaaðila.
Ég minni á að Bandalag starfsmanna ríkis og bæja mótmælti hástöfum á sínum tíma slíkum hagsmunatengslum formanns og ef ég man rétt einnig varaformanns kjaradeilunefndar að því er varðaði deilur um framkvæmd verkfalls og verkfallsvörslu í sambandi við millilandaflug. Þetta gerði bandalagið með þeim rökum að formaður kjaradeilunefndar væri um leið löggiltur endurskoðandi Flugleiða og varaformaður hefði gegnt fundarstjórastörfum á aðalfundum Flugleiða. Þarna væri því um bein hagsmunatengsl að ræða og eðlileg réttarvenja ætti að vera sú í dómstólum af þessu tagi að þeir vikju úr sæti þegar um þessi mál var fjallað. Þessum mótmælum var hins vegar eiginlega ekki hægt að sinna með neinum lögformlegum hætti. Í slíkum málum er ekki annarra kosta völ en að höfða mál, t.d. fyrir bæjarþingi. Það tekur hins vegar mörg ár að höfða vefengingarmál fyrir dómstólum og væntanlega er það ekki vilji löggjafans að draga lausn slíkra deilna á langinn eða hindra að samkomulag geti tekist um verklag og vinnubrögð af þessu tagi.
Augljóst virðist að þær deilur, sem nú hafa risið um einstaka úrskurði kjaradeilunefndar sem og vanhæfi einstakra nefndarmanna vegna tengsla við hagsmunaaðila, hafi átt sinn þátt í að tefja samningaviðræður um efnisatriði kjaradeilunnar. Málskotsréttur vegna slíkra deilna gæti þess vegna orðið til þess að greiða fyrir samningaviðræðum og flýta lausn kjaradeilna. Þá er á það að líta að skv. stjórnarskrá lýðveldisins er það m.a. hlutverk Hæstaréttar að úrskurða um valdsvið stjórnvalda og takmarka verksvið embættismanna. Þess vegna er þessi brtt. um áfrýjun á úrskurði kjaradeilunefndar til Hæstaréttar flutt.
Skv. þingtíðindum var það sjónarmið ráðandi í umr. á Alþingi 1976, þegar þessi lög voru sett, að ákvæði 26. gr. um verksvið kjaradeilunefndar bæri að túlka þröngt. Þannig talar þáv. fjmrh., sem nú er hæstv. viðskrh. og hafði framsögu í málinu, um nauðsynlega öryggis- og heilsugæsluþjónustu. Núv. hæstv. sjútvrh. Halldór Ásgrímsson, sem nú vill túlka hafrannsóknir sem öryggisgæslu, sagði í umr. 1976, með leyfi virðulegs forseta:
„Það er því ljóst að fyrir því er séð að nauðsynlegar undanþágur verði veittar til að sinna öryggis-, slysa- og sjúkraþjónustu.“ Af ummælum hv. þm. verður ekki séð að nokkur ágreiningur hafi verið uppi um þetta efni. Með hliðsjón af orðalagi 26. gr. og ummæla frsm. og einstakra þm. skv. þingtíðindum virðist flm. að BSRB hafi mikið til síns máls þegar það nú vefengir einstaka úrskurði kjaradeilunefndar með þeim rökum að nefndin fari út fyrir verksvið sitt.
Sem dæmi um slíkan úrskurð má nefna að 25 tollverðir á Keflavíkurflugvelli voru skyldaðar til starfa í krafti orðalagsins um öryggis- og heilsugæslu. Þessir tollverðir fengu fyrirmæli um að starfa við vopnaleit og eiturefnaleit, en áttu hins vegar ekki skv. fyrirmælum að sinna öðrum skyldustörfum við tollskoðun og tolleftirlit. Það leiddi til þess að þeir söfnuðu undirskriftum í mótmælaskyni við þennan úrskurð, m.a. á þeim forsendum að þeim væri ætlað að horfa aðgerðarlaust á að lög um tollskoðun og tolleftirlit væru brotin í mörgum greinum, m.ö.o. þeim væri gert að hylma yfir smygl. Ég vek athygli hv. þm. á að skv. fréttum þessa dagana var haldið fram fullum fetum að smygl væri stundað í stórum stíl. M.a. var forsíðufrétt í blaði, sem ekki er leyfilegt að kalla óopinbert málgagn hæstv. forsrh., þ.e. blaði sem heitir TNT og á ekkert skylt við sprengiefni, þar sem því var haldið fram fullum fetum að eiturlyfjasmygl ætti sér stað þessa daga í stórum stíl og yfirvöld hefðu sýnilega ekki gert sér grein fyrir því hve fljótir þeir aðilar sem þá glæpastarfsemi stunda væru að nýta sér einmitt þennan úrskurð.
Ég persónulega og áreiðanlega flestir þm. hér inni höfðum mikla samúð með því sjónarmiði hæstv. sjútvrh. að hafrannsóknir og leit að loðnu sé öryggismál íslensku þjóðarinnar. Mér þótti skemmtilegt að heyra röksemdafærslu hæstv. ráðh. fyrir því að eignavarsla réttlæti það sjónarmið. Ef við eigum eignarrétt í loðnustofninum er hann með verðmætari eignum þjóðarinnar. Mig minnir reyndar að hæstv. ráðh. hafi talið hann verðmætari en handritin, en skal þó ekki fullyrða um það. Þetta er auðvitað gott og gilt sjónarmið hæstv. ráðh. og allir vitum við að loðnuleit og loðnuveiðar eru geysilegt hagsmunamál ekki aðeins sjómanna og útgerðar heldur allrar þjóðarinnar. Enginn maður mundi mæla því mót að góð loðnuvertíð bætir þjóðarhag og er því innlegg í kjaradeilu. Engu að síður verður hún með engu móti út frá einhverju lögfræðilegu sjónarmiði út frá orðalagi 26. gr. flokkuð undir öryggisvörslu og heilsugæslu. Og ef það er rétt að þessi ákvæði hafi átt að túlka þröngt, sbr. umr. sem ég hef vitnað til áður, mundi það sennilega ekki vera auðunnið mál út frá lögfræðilegum bókstaf.
Það gætu komið upp fleiri skondin mál. Hér í landi er eins og kunnugt er varnarlið og á að sinna hér öryggisvörslu í þröngum skilningi, þ.e. vera til varnar ef á landið er ráðist. Rök mætti færa fyrir því að hindrun á aðföngum til varnarliðsins gæti því varðað öryggisvörslu þjóðarinnar í þessum skilningi, en þó mundi það kannske vefjast fyrir einhverjum að túlka það svo.
Það er að lokum spurning, sem margir launþegar spyrja sig, hvort ríkisvaldið geti í krafti þessara ákvæða um kjaradeilunefnd dregið verkfall opinberra starfsmanna endalaust á langinn með því að veita allar mögulegar og ómögulegar undanþágur langt umfram það sem til var stofnað með lagasetningunni upphaflega, þ.e. með því að kalla alla hluti í víðtækasta skilningi eins konar öryggis- eða heilsugæsluþjónustu. Ég vil vekja athygli á því að verkföll byggjast á neyðarrétti. Verkföll eru seinasta nauðvörn launþega í kjaradeilum. Taumlausar undanþágur fyrir einstaklinga og starfshópa eftir að verkfall er skollið á eru einatt til þess líklegar að draga verkföll á langinn. Harðvítugar deilur um verklag og vinnubrögð hindra deiluaðila í að setjast í alvöru að samningaborði til að ná samkomulagi um efnisleg ágreiningsefni. Á þetta hefur reynt ítrekað í þessari kjaradeilu. Þá nefni ég aðeins, til þess að stikla á stóru, deilurnar sem urðu um millilandaflugið, deilur sem urðu um hafrannsóknir, deilur um afgreiðslu skipa o.s.frv. o.s.frv. Slíkar deilur verður að vera unnt að setja niður með eðlilegum hætti, fá úrskurði í þeim og einmitt til þess að koma í veg fyrir að harðvítugar deilur hagsmunaaðila út af framkvæmd verkfalla verði ekki til þess að torvelda það að alvarlegar umræður fari fram um það sem kjaradeilur eiga að snúast um, þ.e. um kaup og kjör. Ég tel það mikinn galla ef ekki er önnur leið til þess að leysa slík ágreiningsefni en sú að höfða mál fyrir dómstólum þegar vitað er að sú leið tekur mörg ár og getur þar af leiðandi engan veginn staðist. Þetta frv. er þess vegna flutt til að greiða fyrir því að lögformleg leið finnist til þess að kveða upp úrskurði í slíkum deilumálum, báðum aðilum væntanlega til hagsbóta.
Herra forseti. Ég sé ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um þetta. Ég vek athygli á því að þetta mál er í brennidepli þessa stundina. Það er brýnt að taka afstöðu til þess og ég mun eindregið mælast til þess að málið fái gaumgæfilega athugun og eins skjóta afgreiðslu á hv. Alþingi og unnt er. (Forseti: Ég vil spyrja hv. þm. hvort hann sé með tillögu um nefnd.) Ég bið velvirðingar á því. Mér láðist að geta þess að ég tel eðlilegt að þessu frv. verði vísað til félmn.