14.03.1985
Sameinað þing: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3573 í B-deild Alþingistíðinda. (2921)
Umræður utan dagskrár
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég hef kvatt mér hljóðs utan dagskrár til að fjalla um það alvarlega ástand sem ríkt hefur í framhaldsskólum í landinu nú um tveggja vikna skeið og sem horfur eru á, miðað við óbreytt ástand, að ríkja muni í nokkrar vikur til viðbótar til óbætanlegs tjóns fyrir skólahald í landinu á yfirstandandi skólaári og raunar til miklu lengri tíma litið. Ég mun beina fyrirspurnum til ráðh. í sambandi við þetta mál. Hæstv. forsrh. hefur fallist á að svara fsp. um málið svo og hæstv. menntmrh. Hæstv. fjmrh. hefur hins vegar neitað þm. um það að svara fsp. frá þeim um þetta mál, sem undir hann hefur heyrt um langt skeið sem kunnugt er, en engu að síður hljótum við að óska eftir áliti fjmrh. og afstöðu í þessu máli.
Það ástand, sem ríkir í skólum landsins og varðandi kjaramál kennarastéttarinnar, er dregið fram í ályktun sem gerð var á kjaramálafundi nokkurra sambanda kennara í gær og ég vil leyfa mér að vitna til í upphafi máls míns, með leyfi forseta:
„Fundur um kjaramál kennara, haldinn í Borgartúni 6 13. mars. vekur athygli á því ófremdarástandi sem nú ríkir í skólamálum vegna sofandaháttar ríkisvaldsins. Kennarar hafa á undanförnum árum margbent á að kröfur til þeirra. bæði hvað starfsálag og menntun snertir, hafa stóraukist á sama tíma og þeir hafa dregist aftur úr í launum. Ríkisvaldið hefur skellt við þessu skollaeyrum. Þess vegna eru málin komin í þann hnút sem þau eru nú í. Ný skýrsla menntmrn. um endurmat á störfum kennara staðfestir að kennarar hafa haft rétt fyrir sér í öll þessi ár. Það ófremdarástand sem nú ríkir í skólamálum og afleiðingar þess eru því alfarið á ábyrgð ríkisvaldsins. Sama ábyrgðarleysið og lítilsvirðingin á störfum kennara kemur enn einu sinni fram í samningaviðræðunum við Hið íslenska kennarafélag þótt viðurkenning menntmrn. á gjörbreyttu starfi liggi fyrir.
Fundurinn lýsir yfir fullum stuðningi við baráttu Hins íslenska kennarafélags fyrir bættum kjörum kennara. Jafnframt skorar fundurinn á fjmrh. að ganga nú þegar að sanngjörnum kröfum Hins íslenska kennarafélags.“
Þetta var samþykkt frá kjaramálafundi sem boðað var til af stjórn Kennarasambands Íslands, Sambandi sérskóla, Kennarafélagi Reykjavíkur, Kennarafélagi KSK og Kennarafélagi Reykjaness og haldinn var í gær.
Sú deila, sem nú stendur yfir við Bandalag háskólamanna og kennara alveg sérstaklega sem sagt hafa störfum sínum lausum og hætt störfum í framhaldsskólum landsins, er aðeins angi af því stríði sem geisað hefur milli núverandi hæstv. ríkisstj. og vinnustéttanna í landinu. Tilefni þessa stríðs er mönnum kunnugt. Það er hin gífurlega tilfærsla fjármuna frá launafólki til milliliða og gróðaafla í þjóðfélaginu sem núv. ríkisstj. hefur beitt sér fyrir. Sú gífurlega tilfærsla birtist einnig í því að fjármunir eru fluttir frá framleiðsluatvinnuvegum í landinu sem mergsognir eru m.a. með hávaxtastefnu. Og það er ekki aðeins launafólk í þrengri skilningi sem berst í bökkum, einnig bændur landsins eru margir hverjir á heljarþröm og í greiðsluþroti. Það hefur nýlega verið upplýst að á síðustu tveimur árum hafi eiginfjárstaða aðalatvinnuvegar þjóðarinnar, sjávarútvegsins, rýrnað um ekki minna en 6 000 millj. kr. Það hafa sogast 6 milljarðar kr. frá sjávarútveginum á undanförnum tveimur.árum til gróðaafla í þjóðfélaginu, milliliða og þeirra sem ríkisstj. ber fyrir brjósti. Og sjómenn hafa sem kunnugt er alveg nýlega þurft að heyja verkfall til þess að fá leiðrétt kjör sín.
Það hefur ríkt látlaus ófriður að heita má á vinnumarkaði undanfarna sex mánuði eftir mikið langlundargeð samtaka launafólks gagnvart kjararáni ríkisstj. Allir muna eftir margra vikna verkfalli opinberra starfsmanna s.l. haust sem olli ekki aðeins þeim heldur þjóðarbúinu á þeim tíma miklu tjóni og gaf engan veginn þá uppskeru sem vænst var af þeim sem háðu þá kjarabaráttu. Og nú blasa við fjöldauppsagnir kennara, kennara sem eiga aðild að Bandalagi háskólamanna, sem hefur átt í samningaþófi við ríkisvaldið um langt skeið, sem hefur fengið skv. samningum samanburð á kjörum sínum við kjör sambærilegra hópa á hinum almenna vinnumarkaði, en sem þó ekki hefur nægt til þess að samið væri við þessa hópa. Kjaradómur í máli BHM gekk þann 16. febr. s.l. og eins og menn muna skapaði hann aðeins ramma sem ekki hefur verið fyllt út í með sérkjarasamningum.
Barátta kennara fyrir leiðréttingu á sínum kjörum er hins vegar alveg sérstök í þessu samhengi. Ég rifja það upp hér að á þingum kennarasambandanna, Hins íslenska kennarafélags og Kennarasambands Íslands, í júní s.l. var ákveðið að kanna þá nauðvarnaraðgerð, til þess að fá sanngjarna leiðréttingu á kjörum kennara, að þeir sameinuðust um fjöldauppsagnir. Þessi sambönd gerðu könnun á vilja félagsmanna sinna á árinu 1984 sem birt var niðurstaða af í nóvember s.l. Þá lá það fyrir að rúmlega 50% grunnskólakennara innan Kennarasambands Íslands voru reiðubúin að segja starfi sínu lausu frá 1. mars 1985 og um 2/s framhaldsskólakennara innan Hins íslenska kennarafélags.
Fulltrúaráð Kennarasambands Íslands, sem fyrst og fremst mælir fyrir grunnskólakennara, ákvað hins vegar að leggja uppsagnir ekki fram í bili og vildi, eins og það hét í ályktun fulltrúaráðsins, gefa stjórnvöldum enn eitt tækifæri til að leiðrétta kjör stéttarinnar með því að standa við fyrirheit sem gefin hafa verið. Kennarasamband Íslands gerði síðan sérkjarasamning þann 3. janúar s.l. sem fól í sér, að ég hygg, um þriggja launaflokka leiðréttingu. Ég vil ekki staðhæfa nákvæmlega hvað í sérkjarasamningnum fólst, en ég hygg að þetta hafi verið meginniðurstaða úr þeim sérkjarasamningi. Hins vegar var skv. honum gefin heimild til endurskoðunar á þessum samningi frá 1. mars 1985 í ljósi niðurstaðna endurmatsnefndar menntmrn. sem svo hefur verið kölluð. Sú nefnd skilaði áliti síðla febrúar 1985 eða raunar undir mánaðamótin síðustu. Skv. því áliti telja kennarar og aðrir sem þetta endurmat hafa skoðað, að í því felist mjög veigamikil viðurkenning á því að kjör kennara hafi ekki verið í neinu samræmi við þá aðila sem eðlilegt er að bera þá saman við svo og vaxandi ábyrgð kennarastarfsins og aukið starfsálag á kennara.
Stjórn Kennarasambands Íslands ákvað svo á fundi sínum þann 4. mars s.l. að óska eftir endurskoðun sérkjarasamninga með tilliti til álits endurmatsnefndarinnar. Nú nýlega fór einnig fram könnun á viðhorfum meðlima félaga innan Kennarasambands Íslands til þess að halda áfram störfum. Í þessari könnun, sem tók til 485 grunnskólakennara var leitt í ljós að tæp 13% þeirra væru þegar ráðnir í því að segja starfi sínu lausn frá lokum yfirstandandi skólaárs og 40% þeirra væru óráðnir í því hvort þeir héldu áfram störfum en mundu bíða átekta. Þetta er þáttur og staða Kennarasambands Íslands sem hefur innan vébanda sinna flesta þá sem starfa í grunnskólum landsins.
En innan framhaldsskólanna er staðan önnur og enn alvarlegri. Hið íslenska kennarafélag hefur stöðugt knúið á um leiðréttingu á undanförnum mánuðum fyrir sína umbjóðendur. Sem aðili að BHM hafa framhaldsskólakennarar eðlilega viljað fella sína baráttu að hinni almennu baráttu Bandalags háskólamanna í þjónustu ríkisins fyrir leiðréttingu kjara svo sem lög kveða á um, þ.e. að tekið sé fullt tillit til hliðstæðra starfa á hinum almenna vinnumarkaði, en auk þess liggja fyrir hinar sérstöku ástæður kennara sem gilda ekki síður fyrir kennara á framhaldsskólastigi en í grunnskólunum.
Hið íslenska kennarafélag lagði sérstaka áherslu á að unnt væri að ganga frá samningum fyrir 1. mars. þar sem fyrir lá að svo margir meðlima þeirra höfðu þá sagt upp starfi, og minnti samninganefnd ríkisins á óskir sínar um viðræður um sérkjarasamninga með sérstakri ítrekun þann 12. febrúar s.l. um sérkjarafund til að flýta málum. Það var um þetta leyti sem menntmrh. reyndi, ég hygg þann 11. febrúar, að knýja kennara Hins íslenska kennarafélags, sem sagt höfðu lausu starfi frá 1. febrúar, til að halda áfram starfi með því að framlengja uppsagnarfrest þeirra með bréfi þann 11. febrúar eða með 17 daga fyrirvara. Sem kunnugt er hefur lögmæti slíkrar framlengingar með svo stuttum fyrirvara verið vefengt.
Í framhaldi af kjaradómi, sem féll þann 16. febr., hafa svo staðið yfir sérkjaraviðræður við Hið íslenska kennarafélag. Komið hefur fram í þeim að fjmrn. og samninganefnd þess hefur aðeins boðið Hinu íslenska kennarafélagi leiðréttingu sem svarar til 1–3 launaflokka hækkunar. Hvað skyldi nú slíkt tilboð þýða, sem gert var t.d. kennurum sem eru að hefja störf, varðandi byrjunarlaun? Það þýðir hækkun um aðeins 1800 kr. á mánuði eða hækkun úr 20 813 í 22 596 kr. Þetta er það tilboð varðandi byrjunarlaun kennara sem gert var af samninganefnd ríkisins nú fyrir skemmstu og sem Hið íslenska kennarafélag hefur hafnað eins og öðrum tilboðum sem frá samninganefnd ríkisins komu.
Þegar það lá fyrir að forusta Hins íslenska kennarafélags hefði hafnað þessum tilboðum ákvað ríkisstj. að vísa deilunni til Kjaradóms í fyrradag og gaf út samhliða því sérstaka yfirlýsingu. Ég tel rétt að setja þá yfirlýsingu inn í þetta samhengi, ályktun ríkisstj. frá 12. mars 1985, með leyfi forseta. Þar ályktar ríkisstj. í tilefni af kjaradeilu Hins íslenska kennarafélags og ríkisins eftirfarandi:
„1. Þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir til að ná bráðabirgðasamkomulagi við Hið íslenska kennarafélag eru ekki horfur á að samkomulag náist milli samninganefndar ríkisins og Hins íslenska kennarafélags um sérkjarasamninga og verður það mál því lögum samkvæmt úrskurðað af Kjaradómi.
2. Með tilvísun til þeirra forsendna er fram komu í dómi Kjaradóms frá 16. febrúar s.l. telur ríkisstj. eðlilegt að tekið verði tillit til þeirra auknu krafna sem gerðar eru til kennarastarfsins, sbr. skýrslu á vegum menntmrh. um endurmat á störfum kennara. og að leiðréttur verði við röðun í launaflokka sá launamunur sem er með kennurum og öðrum ríkisstarfsmönnum með sambærilega menntun.
3. Ríkisstj. beinir þeirri ósk og áskorun til félagsmanna Hins íslenska kennarafélags, sem lagt hafa niður störf, að þeir snúi nú þegar aftur til kennslustarfa og virði þær lagareglur sem gilda um kjarasamninga opinberra starfsmanna.“
Þetta var ályktun ríkisstj. frá 12. mars 1985.
Í ljósi þessarar ályktunar hljótum við að spyrja: Ef vilji ríkisstj. liggur fyrir og viðhorf staðfest af sérstökum samanburðarnefndum sem unnið hafa á vegum aðila, svo og sérstakri nefnd sem unnið hefur á vegum menntmrn. og borið hefur saman og endurmetið kennarastarfið, hvers vegna vísar þá ríkisstj. deilu af þessu tagi til Kjaradóms, hvers vegna gengur hún ekki til samninga við Hið íslenska kennarafélag og við aðra aðila innan BHM? Ég held að það hljóti að vera spurning sem brennur á vörum margra og ég hygg að það hafi verið sú spurning sem réði úrslitum á þeim fundi sem kennarar sem sagt hafa upp störfum hjá ríkinu héldu í gærkvöldi. Hvers vegna semur ríkisstj. ekki, ef hún er reiðubúin að gefa út yfirlýsingar í þá átt sem hér var lesin, við viðkomandi hópa, en vísar málinu til Kjaradóms? Kennarar Hins íslenska kennarafélags héldu fund með sér í gærkvöldi þeir sem sagt hafa upp störfum, og sem kunnugt er voru það um 2/3 hlutar þeirra sem greiddu því þar atkvæði að halda uppsögnum sínum til streitu. Samþykkt meiri hluta fundarins, sem samþykkt var með 187 atkv. af nær 300 sem sóttu fundinn, er svofelld, með leyfi forseta:
„Þeir fjölmörgu kennarar sem lagt hafa niður vinnu hafa að sjálfsögðu gert það vegna þess að þeir una ekki lengur síendurteknu óréttlæti við ákvörðun launa þeim til handa, hvort sem það hefur verið gert fyrir tilstilli samninganefndar ríkisins eða dáðleysi Kjaradóms. Það liggur því í augum uppi að eina leið stjórnvalda til að fá kennara aftur til starfa er að gera við þá viðunandi samninga á grundvelli þeirra gagna sem Hagstofan hefur aflað fyrir samanburðarnefnd ríkisins og BHM og á grundvelli skýrslu endurmatsnefndar menntmrh. Engir hafa á því meiri áhuga en kennarar að eðlilegt skólahald geti hafist á ný því þeim er fyllilega ljóst að hagsmunir nemenda eru í húfi og þeir hafa þegar beðið mikið tjón. En úr því sem komið er er það ekki á færi annarra en stjórnvalda að koma í veg fyrir frekari skaða hvað nemendur varðar. Eina lausnin, sem nú dugar í þessu máli, verður að vera til frambúðar ella stefnir í enn meira óefni í skólamálum þjóðarinnar í upphafi næsta skólaárs. Því skorar fundurinn á félagsmenn að hopa nú hvergi og snúa ekki til starfa fyrr en fullreynt er hvort við náum viðunandi kjarabótum.“
Þetta er sú samþykkt sem hlaut um 2/3 hluta atkvæða eða yfirgnæfandi meiri hluta á fundi kennara í gærkvöldi. Í þessari stöðu, þegar það blasir við að kennarar eru ekki reiðubúnir að stóla á yfirlýsingar ríkisstj. og væntanlegan kjaradóm til að hverfa aftur til starfa, hljótum við að beina spurningum til stjórnvalda sem hefðu átt að vera búin að leysa þessa deilu fyrir löngu svo að ekki þyrfti að stefna í það óefni sem nú er í komið og hefðu átt að geta komið í veg fyrir það tjón sem þegar hefur orðið. Ég leyfi mér því að spyrja hæstv. forsrh.: Hvað hyggst ríkisstj. gera til lausnar á yfirstandandi deilum við kennara sem sagt hafa upp störfum í framhaldsskólunum og við Hið íslenska kennarafélag? Og ég spyr hæstv. menntmrh. að því: Hvaða áhrif hefur deilan haft til þessa á starf í framhaldsskólum landsins og hver eru líkleg áhrif hennar nú, miðað við að málið hafi þann framgang sem ríkisstj. markaði með ályktun sinni þann 12. mars? Í öðru lagi spyr ég hæstv. menntmrh.:
Hvað hyggst menntmrn. gera af sinni hálfu til lausnar deilunni?
Ég held að það sé dagljóst að menntmrn. ber hina faglegu ábyrgð á skólastarfi í landinu og það hefur dregist úr hömlu að leggja fram þau gögn sem hefðu getað orðið til þess að leysa þessa deilu í tæka tíð og síðan ekki fylgt þeim málum eftir'með þeim hætti sem eðlilegt og nauðsynlegt hefði verið. En það eru vissulega fleiri aðilar sem þurfa til að koma til lausnar þeirri deilu. Þar er hæstv. fjmrh. í lykilhlutverki — ráðh. sem hefur neitað þm. um það dag eftir dag að svara tilteknum spurningum á Alþingi. En honum stendur ræðustóllinn opinn. (Gripið fram í: Það er spurning hvort það sé ekki einhver í honum.) Og ég hlýt að spyrja hæstv. ráðh.: Hvað ætlar hann að gera til þess að leysa þann hnút sem hann hefur átt öðrum meiri þátt í að ríða og byrjaði raunar að herða að með yfirlýsingum sínum í upphafi þings þess efnis að kennarar í landinu væru ekki nema rétt hálfdrættingar á við aðra starfshópa?
Ríkisstj. ber að sjálfsögðu öll ábyrgð í þessu máli og ráðherrar Sjálfstfl. fara þar með stórt hlutverk, ráðh. menntamála og ráðh. fjármála, en hæstv. forsrh. hefur einnig og ríkisstj. öll haft afskipti af deilunni og því hef ég einnig beint fsp. til hans.