14.03.1985
Sameinað þing: 59. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3586 í B-deild Alþingistíðinda. (2924)

Umræður utan dagskrár

Forseti (Þorv. Garðar Kristjánsson):

Nú hefur málshefjandi í þessum umr. og ráðh. sem standa fyrir svörum, lokið máli sínu. Og það líður óðum að lokum þess tíma sem kynnt var í upphafi að við myndum hafa til umráða í dag. Það er því ekki víst að við getum lokið þessari umræðu nú. En við munum sjá hverju fram vindur og freista þess að ljúka umr. á þessum fundi án þess að verið sé að takmarka umræður.