18.03.1985
Efri deild: 50. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3616 í B-deild Alþingistíðinda. (2934)

98. mál, sóknargjöld

Fjmrh. (Albert Guðmundsson):

Herra forseti. Það hafa orðið einhver mistök í boðun þessa fundar. Ég fékk dagskrá sem sýndi að ekki yrði fundur í Ed. í dag. Ég hringdi niður í Alþingi og spurði hvers vegna ekki væri fundur í Ed. en fékk ekki upplýsingar um það. Þar af leiðandi gerði ég ekki ráð fyrir að neinn fundur yrði hér í dag. En fjmrn. hefur athugasemdir við þetta frv. að gera sem ég er ekki með. Ég ætla þó ekki að fara fram á að afgreiðslu við 2. umr. verði frestað, en ég áskil mér rétt til að koma þeim athugasemdum, sem fjmrn. hefur að gera við þetta frv., á framfæri við 3. umr.