18.03.1985
Efri deild: 50. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3621 í B-deild Alþingistíðinda. (2944)

363. mál, lagmetisiðnaður

Eiður Guðnason:

Virðulegi forseti. Okkur er ýmislegt til ánægjuauka hér í þessari hv. deild eins og það að heyra hæstv. iðnrh., talsmann hins frjálsa framtaks, mæla með einokun og þar að auki hafa þann húmor til að bera, sem kemur ekkert á óvart, að láta prenta sem fskj. bréf frá Sölustofnun lagmetis þar sem segir, með leyfi forseta: „Hefur slíkt ætíð leitt til undirboða og truflana á þessum mörkuðum.“ Þetta finnst mér bera vott um ágæta kímnigáfu hæstv. iðnrh. og er skemmtilegt þegar slíkt nær inn í þskj., það er ekki oft. Stundum heyrir maður að frjáls samkeppni heiti „truflun á mörkuðum“. Það er ákaflega sérstæð skoðun.

Þetta frv. er að sumu leyti gamall kunningi í þessari hv. deild og á Alþingi. Það hefur komið hér áður með beiðni um tveggja ára framlengingu jafnan hverju sinni, eins og hæstv. ráðh. minntist réttilega á. En nú er gengið langtum lengra. Nú er talað um fimm ár í stað tveggja. Ég er andvígur þessu frv. og við þm. Alþfl. í þessari deild munum greiða atkvæði gegn því. Við höfum lagt fram till. til þál. í Sþ. um aukið frelsi í útflutningi og afnám einokunar. Sjálfsagt munu fulltrúar einstaklingshyggjunnar og hinnar frjálsu samkeppni greiða atkvæði gegn þeirri till. þegar hún kemur, það væri öldungis eftir öðru þeim megin frá.

Í öðru lagi er hér gert ráð fyrir að breytt verði nokkuð ákvæðum um skipun stjórnar Þróunarsjóðs lagmetisiðnaðar og ráðherrum færð þar aukin völd. Út af fyrir sig er kannske ekkert um það að segja. Nú eiga Iðntæknistofnun og Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins ekki að tilnefna menn í stjórn þessa sjóðs. Nú vill svo til að í þessari hv. deild situr þm. sem veitt hefur annarri þessari stofnun forstöðu, hv. þm. Björn Dagbjartsson, sem verið hefur forstjóri Rannsóknastofnunar fiskiðnaðarins. Mér leikur nokkur hugur á að vita hver afstaða hans er til þessa máls og hvort hann telji þetta eðlilega breytingu, að þessi stofnun eigi þarna ekki lengur aðild að. Raunar hef ég svo sem engin rök heyrt hér sérstaklega mæla með þessari breytingu en endurtek það að við þm. Alþfl. munum greiða atkvæði gegn þessu frv. ríkisstj.