18.03.1985
Neðri deild: 48. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3626 í B-deild Alþingistíðinda. (2957)

226. mál, vélstjórnarnám

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Hér liggur fyrir frv. sem hefur verið afgreitt ágreiningslaust úr Ed. hv. Alþingis. Það felur í sér nokkrar breytingar á vélstjórnarnámi á þann veg m. a. að auknar eru kröfur til efsta stigs vélstjórnarnáms vegna tækniframfara og örra breytinga. Þá þykir það öryggisatriði að svo sé, enda er það líka svo að þessi hefur orðið þróunin í fleiri löndum.

Hins vegar er styttur tíminn sem þarf til 1. stigs. Þá hafa menn m. a. í huga að draga menn að vélstjórnarnámi, þannig að þeir hafi það nám á bak við sín réttindi. Með frv. er einnig verið að mæta vanda sem upp hefur komið vegna fjölmargra undanþága til vélstjórnar. Gert er ráð fyrir sérstökum námskeiðum þessa vegna og einnig er gert ráð fyrir því að vélstjórnarnámið geti farið fram við fleiri skóla en Vélskóla Íslands, en Vélskóli Íslands verði eftir sem áður aðalskólinn á þessu sviði.

Það sem meginmáli skiptir er að koma þessu námi sem fyrst í það horf að það geti samræmst kröfum tímans, eins og oft er sagt, en þær hafa ekki minnkað á þessu sviði fremur en öðrum. Frv., sem hér liggur fyrir, þarf að fylgja mjög skjótt í kjölfar hinna nýju atvinnuréttindalaga sem samþykkt voru hér á Alþingi í vetur. Það voru að mestu leyti sömu mennirnir sem sömdu bæði þessi frv. og ætlun þeirra var að þau fylgdust að eftir því sem verða mætti. Þeir sem sömdu þetta frv. voru í nefnd sem menntmrn. skipaði á s. l. sumri til að endurskoða lögin um vélstjórnarnám með tilliti til laganna um atvinnuréttindi vélfræðinga, vélstjóra og vélavarða á íslenskum skipum. Í þessari nefnd áttu sæti þeir Stefán Ólafur Jónsson, deildarstjóri í menntmrn., sem var formaður, Andrés Guðjónsson skólastjóri Vélskóla Íslands og Helgi Laxdal vélfræðingur, formaður Vélstjórafélags Íslands.

Þetta er, eins og ég sagði, alveg ágreiningslaust mál og ég vona að það hljóti sem allra skjótastan framgang í þessari hv. deild. Leyfi ég mér að leggja til, herra forseti, að því verði vísað að lokinni 1. umr. til 2. umr. og menntmn.