18.03.1985
Neðri deild: 48. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3626 í B-deild Alþingistíðinda. (2958)

226. mál, vélstjórnarnám

Halldór Blöndal:

Herra forseti. Ég skal ekki vera langorður um þetta mál.

Við vitum að víða úti um land er torvelt að ráða vélstjóra með fullnægjandi réttindi til þess að lögskráning geti farið fram á fiskiskipum. Eins og ákvæðið til bráðabirgða hljómar hér held ég að það sé ekki fullnægjandi til þess að leysa úr bráðum vanda víðs vegar á hinum smæstu stöðum úti á landinu. Ég hygg því að það verði að taka mjög til athugunar hvort rétt sé að binda vélstjórnarnámskeið, sem þarna er gert ráð fyrir að haldið verði, við 24 mánuði eða hvort hafa eigi það algerlega opið, þannig að það geti fullnægt því markmiði, sem ætlað er, að þeir menn sem fáist við vélgæslu á fiskiskipum út um landið megi njóta þeirrar lágmarksþekkingar sem hér er gert ráð fyrir. Ég held m. ö. o. að ef Alþingi gengur frá þessu lagafrv. eins og það er haldist samgrh. ekki uppi að fylgja fast eftir stefnu laganna þar sem brýn nauðsyn knýr á um að fiskiskipastólnum sé haldið úti líka utan þéttbýlisstaða.