18.03.1985
Neðri deild: 48. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3626 í B-deild Alþingistíðinda. (2959)

226. mál, vélstjórnarnám

Menntmrh. (Ragnhildur Helgadóttir):

Herra forseti. Ég veit ekki alveg hvort ég hef misskilið hv. formann menntmn. eða hann mig, en ég skildi hann svo að hann teldi að hér væri verið að tala um námskeið sem stæði í 24 mánuði. Svo er ekki. Ég vildi einungis taka það fram að svo væri ekki og þessi námskeið væru komin í gang. Þetta ákvæði er hér sett einungis til þess að skuldbinda ríkisvaldið til að bjóða upp á þessi námskeið og skylt sé að bjóða þeim upp á námskeið sem starfað hafa á undanþágu þann tíma sem hér er um rætt. Það útilokar hins vegar það ekki að heimilt sé að bjóða upp á námskeið þó að svo sé ekki. Það er einungis verið að tryggja þarna nokkurn rétt.