24.10.1984
Neðri deild: 6. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 480 í B-deild Alþingistíðinda. (297)

30. mál, kjarasamningar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja

Karvel Pálmason:

Herra forseti. Ég held að engum geti blandast hugur um, að fenginni reynslu af þeirri vinnudeilu sem staðið hefur nú milli ríkisins annars vegar og Bandalags starfsmanna ríkis og bæja hins vegar, að fara þurfi fram endurskoðun á því máli öllu. Að sjálfsögðu getur verið um að ræða misjafnlega miklar breytingar sem þar þarf að gera, en ég er þó sammála hv. 1. flm. og frsm. þessa máls að það sé nauðsynlegt að þetta verði gert og það sem allra fyrst. Ég held að það væri öllum aðilum fyrir bestu. Það er ómögulegt að búa við það að gífurlega mikill ágreiningur sé um það hvort í þessu tilfelli kjaradeilunefnd hefur farið margoft út fyrir sitt verksvið í úrskurðum eða ekki. Ég tel að það hljóti að vera til hins betra að hér verði gerð á breyting, þar sem báðir aðilar geta skotið ágreiningsmálum, að því er varðar úrskurði kjaradeilunefndar í þessu tilfelli, til Hæstaréttar eins og hér er lagt til.

Ég held að það hljóti öllum að vera ljóst sem eitthvað þekkja til framgangs vinnustöðvunar, vinnudeilna, að miklu skiptir að haldið sé þannig á málum að allt sé gert sem hægt er til þess að menn sannfærist um að eðlilega sé farið að hlutum og með gát til þess að koma í veg fyrir margháttaðan misskilning, sem vissulega getur orðið uppi þegar, eins og er í þessu tilfelli, aðeins einn aðili ákvarðar endanlega. Og það sýnist mér vera skv. lögum einvörðungu að því er varðar öryggismál.

Ég held líka að það hafi sýnt sig, muni ég rétt og fari ég rétt með, að t.d. rannsóknaskipið Árni Friðriksson eða Bjarni Sæmundsson hefði farið í rannsóknaleiðangra hefði verið sótt um undanþágu til verkfallsnefndar BSRB. Þá hefði verið hægt að gæta þess öryggis varðandi loðnustofninn sem hæstv. sjútvrh. hefur um talað. En mér sýnist öll þróun í þessari deilu hafa verið á þann veg, að stjórnvöld hafi beinlínis vísað öllu til kjaradeilunefndar, öllu, og nánast lagt við því bann að beiðnir um undanþágu færu til gagnaðila ríkisins sem er BSRB. Ég held að slíkt fyrirkomulag kunni ekki góðri lukku að stýra. Ég tel mig a.m.k. hafa einhvers staðar heyrt það, ég þori ekki að nefna stund eða stað eða úr hvaða átt, að sú yfirlýsing hafi komið frá forsvarsmönnum BSRB að hefði verið sótt um undanþágu fyrir rannsóknaskipið til þeirra, þá hefði hún verið veitt. Ég man ekki betur. Og þar með hefði verið hægt að losa formann BSRB undan þeirri kvöð að vera um borð í hafrannsóknaskipi æðimarga klukkutíma svo að hann hefði getað sinnt öðrum mikilvægari verkefnum.

Þetta dæmi sýnir að það er full nauðsyn á því að hægt sé að skjóta ágreiningsatriðum í svo alvarlegu og viðkvæmu máli sem framkvæmd vinnudeilu er til aðila til úrskurðar. Og eins og hv. þm. Jón Baldvin benti hér á hefur það komið mjög oft fram hjá forsvarsmönnum BSRB að þeir telja að kjaradeilunefnd hafi farið út fyrir sitt verksvið.

Ég er því þeirrar skoðunar, þó að ég viðurkenni nauðsyn á því að fram fari endurskoðun á lögunum sem heild, að þetta sé svo augljóst að því verði að breyta og færa til annars vegar en það nú er. Og ég sé ekki, a.m.k. enn sem komið er, neina aðra leið eða annan aðila sem líklegri sé til að úrskurða í þessu máli en sá sem þarna er gert ráð fyrir, sem er Hæstiréttur.

Ég vildi aðeins, herra forseti, láta þetta álit mitt í ljós. Ég vil hins vegar bæta því við í lokin að ég tel það nánast af og frá að mál af þessu tagi fari til fjh.- og viðskn. Þetta er ekkert fjh.- og viðskn.-mál, það er víðs fjarri því. Mér finnst eðli málsins skv. að málið eigi að fara til félmn. Mér finnst það alveg ótækt að málum sé vísað til hinna og þessara nefnda að geðþóttaóskum hinna og þessara hv. þm. Eðli málsins á að ráða því til hvaða nefndar málið fer, en ekki ósk einhverra tiltekinna misviturra þm., þm. sem hafa misjafnlega þunga vigt í ráðum hér á hv. Alþingi. Ég bið hæstv. forseta að taka það til greina að mér finnst alveg ótækt að þetta mál fari til fjh.- og viðskn. Að mínu áliti á það efnislega heima í félmn. Nd.