19.03.1985
Sameinað þing: 61. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3648 í B-deild Alþingistíðinda. (3003)

305. mál, námskeið fyrir fiskvinnslufólk

Flm. (Árni Johnsen):

Hæstv. forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um námskeið fyrir fiskvinnslufólk og aukna verkmenntun. Auk mín flytja þessa till. hv. þm. Valdimar Indriðason, Guðmundur J. Guðmundsson, Davíð Aðalsteinsson og Karl Steinar Guðnason. Till. hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstj. að beita sér fyrir því að teknar verði upp viðræður milli aðila fiskiðnaðarins, menntmrn. og sjútvrn. um regluleg námskeið fyrir starfsfólk í fiskvinnslu í tengslum við almennt verknám í skólum. Markmiðið verði að auka verkmenntun í skólakerfinu og bæta kunnáttu starfsmanna í fiskiðnaði með hliðsjón af mikilvægi vöruvöndunar og vörugæða og betri afkomu fiskvinnslufólks og fiskiðnaðarins“.

Þessi till. gerir ráð fyrir talsverðum breytingum í verkmenntun landsins og gerir kannske sérstaklega ráð fyrir því að endurmenntun verkafólks í landinu fari að einhverju leyti fram í grunnskólum og öðrum skólum landsins.

Það má segja að um árabil hafi mörgu góðu verið komið til leiðar í því skyni að þróa verklag og hagræðingu í fiskiðnaði landsmanna, en í ljósi þess að kröfur um vöruvöndun og gæði verða sífellt meiri og á miklu veltur þar sem um er að ræða mestu tekjulind íslensku þjóðarinnar er brýnt að allir aðilar, sem málið varðar, skipuleggi sameiginlega aðgerðir í því skyni að aukin verkmenntun í fiskiðnaði tengist menntakerfi þjóðarinnar og skapi á þann hátt aukin réttindi og betri kjör fyrir störf í þessari grundvallaratvinnugrein landsins.

Eðlilegast er að slík námskeið eða annars konar verkmenntun nái til allra sem vinna í fiskvinnslu o verði til frambúðar í helstu sjávarplássum landsins. Í raun ættu slík námskeið að vera skilyrði fyrir því að fólk fengi vinnu í fiskiðnaði til lengri tíma, en þekkt er það vandamál sem skapast í fiskvinnslunni þegar óvant skólafólk kemur í hópum til starfa í fiski þótt það skili vissulega mikilsverðu starfi.

Reyndin hefur verið sú að þegar nýtt fólk kemur til starfa í fiskvinnslunni á það svo gott sem að bjarga sér sjálft. Þó erum við þarna að ræða um það hráefni sem skilar um 70% af tekjum Íslendinga og ætti að vera grundvallaratriði að allir sem starfa í þeirri atvinnugrein hefðu sem fjölþættasta og besta þekkingu á hráefninu og meðferð þess.

Lofsvert framtak á sér stað um þessar mundir — eða er nýafstaðið — með eins konar tilraunanámskeiði til þess að veita fiskvinnslufólki meiri þekkingu á því hráefni sem það vinnur með, en það námskeið var haldið núna í febrúarmánuði. Í framhaldi af fundi Halldórs Ásgrímssonar sjútvrh. með framkvæmdastjórn Verkamannasambands Íslands 2. febr. 1984 varð um það samkomulag milli hæstv. sjútvrh. og Verkamannasambandsins að ráðh. beitti sér fyrir því að komið yrði á námskeiðum fyrir fiskvinnslufólk sem fengi með þeim hætti aukin réttindi og betri laun. Nefnd skipuð fulltrúum frá Verkamannasambandi Íslands, Menningar- og fræðslusambandi alþýðu, sölusamtökum sjávarafurða og Fiskvinnsluskólanum lagði fram áætlun um slíkt tilraunanámskeið og það stóð yfir dagana 18. og 19. febr. s. l. Til námskeiðsins var boðið einum til tveimur starfsmönnum frá 19 fiskvinnsluhúsum í landinu. Þetta er byrjun, en nær ekki inn í skólakerfið. Þarna er beinlínis fjallað um verkþætti, en að sjálfsögðu þarf að taka á að því er varðar bóklega fræðslu er lýtur að meðferð hráefnis, faglega og vísindalega fræðslu sem verkafólki getur orðið gagn af og getur stuðlað að betri hráefnisnýtingu og meðferð.

Það hefur verið gagnrýnt í æ ríkara mæli á undanförnum árum að menntakerfi landsins tengist ekki nógu mikið afvinnulífi landsins, að verkmenntunin og réttur hennar sæti á hakanum. Með því að skipuleggja aukna menntun starfsfólks í fiskiðnaði, byggja á reynslu þess og þeim möguleikum sem hráefnið gefur til að auka verðmæti þjóðarbúsins, getur menntakerfið á tiltölulega auðveldan hátt brúað verulega bilið á milli bóklegs náms og verklegs í þessum efnum, virkjað betur áhuga alls þorra fiskvinnslufólks og aukið ábyrgðartilfinningu þess í mikilvægu starfi. Mögulegt er að taka upp samvinnu skóla og fiskvinnsluhúsa, t. d. með gagnkvæmu námskeiðahaldi, með það fyrir augum að gera þessari atvinnugrein hærra undir höfði en gert hefur verið, koma henni á réttan kjöl svo að það þyki eftirsóknarvert að vinna við fisk og koma honum í sem mest verð.

Flm. þessarar till. leggja höfuðáherslu á að tengja mun betur en gert hefur verið verkmenntun og bóklegt nám þannig að verkmenntunin fái meira vægi í hinni almennu menntun þjóðarinnar og að starfsreynsla sé metin meira en nú er gert.

Það er ljóst að það eru engin skynsamleg rök fyrir því að fólk, sem starfar í fiskvinnslu, sé með lægst launaða verkafólki landsins; það er til lítils sóma fyrir þjóðina að svo sé. Höfuðáherslu verður að leggja á að skipa fiskvinnslufólki, fiskiðnaði og fiskveiðum í þann sess sem þessum starfsmönnum og þessari starfsgrein ber í okkar þjóðfélagi.

Fólkið, sem vinnur við sköpun gjaldeyrisverðmæta þjóðarbúsins umfram aðra, á ekki að sitja eftir í kjörum eins og raun ber vitni. Þau námskeið, sem hér um ræðir, eru e. t. v. auðveldasta leiðin til þess að skapa svigrúm til betri kjara fyrir þetta fólk, en með því að skipuleggja námskeið á þennan hátt með samvinnu allra aðila fiskiðnaðarins, menntmrn. og sjútvrn. fara hagsmunir allra saman: meiri þekking, meiri vöruvöndun, hærri laun og dýrmætari framleiðsla.

Þegar rætt er um verkmenntun í okkar landi ber að hafa í huga að skólakerfi okkar gerir í rauninni fyrst og fremst ráð fyrir því að úr grunnskóla liggi leiðin upp í háskóla. Sjómannamenntun og menntun á sviði landbúnaðar eru hliðargreinar, því miður, í íslensku skólakerfi og njóta ekki þeirrar virðingar sem þessar greinar ættu að njóta. Þegar jafnvel rektor Háskóla Íslands lýsir því yfir að allt að 80% af námsmönnum í Háskóla Íslands, háskólaborgurum, nýtist ekki í sínu fagi í íslensku þjóðfélagi er spurning hvort eitthvað sé ekki að, hvort eitthvað hafi ekki farið úrskeiðis, hvort ekki beri að leggja meiri áherslu á eðlilega verkmenntun og að beina æskufólki landsins inn á slíkt nám fremur en láta unga fólkið flæða úr grunnskóla upp í háskóla í menntun sem við getum ekki veitt því atvinnu í samræmi við í okkar landi.

Það er að mínu mati mikilvægt að gera róttækar breytingar á skólakerfinu, þannig að þorri skólafólksins sjái sér hag í því og telji það aðlaðandi að fara úr grunnskóla yfir í hina ýmsu þætti verkmenntunar og iðnaðar — greinar sem eiga að skila okkur atvinnutækifærum í framtíðinni ef við höldum rétt á og leggjum grunninn í sjálfu skólakerfinu. Tökum sem dæmi ungt fólk í sveitum. Við erum að mennta það „frá sveitunum“. Við erum að mennta það fyrir greinar, þjónustu, sem ekki finnast í strjálbýli landsins. Þar með erum við að mennta það „frá þess eigin byggðum“. Þannig erum við að svipuðu leyti einnig að setja stólinn fyrir eðlilega þróun í verkmenntun. Þess vegna held ég að við ættum að leggja höfuðáherslu á að ríma við okkar eigin möguleika í okkar landi.

Við höfum sannarlega skólakerfi sem er sænskt, danskt og breskt iðnaðar- og þjónustuskólakerfi. Það er kominn tími til að horfast í augu við þá alvöru að við búum við sérstæða aðstöðu á Íslandi og sérstæða möguleika sem við eigum að leggja höfuðáherslu á. Með því að hefja verkmenntun verkafólks landsins í fiskiðnaði í tengslum við aðila vinnumarkaðarins, í tengslum við sjútvrn., menntmrn., með því að færa þarna samstarf inn fyrir skólana, nýta það húsnæði sem þar er til og byggja upp námskeið sem geta skilað árangri og sem geta styrkt stöðu bæði verkafólks og fiskvinnslu, þá held ég að við séum á réttri leið. Það er með því hugarfari sem þessi till. er flutt.

Ég er sannfærður um að hér er um að ræða byrjun á löngum ferli. Það er ekki spurning um hvort þessi menntun fer af stað, heldur hvenær. Þetta er mál sem er kallað á. Þetta er mál sem okkar staða í sköpun atvinnutækifæra til leiðréttingar launa hjá lægst launaða fólki landsins kallar á.