19.03.1985
Sameinað þing: 61. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3672 í B-deild Alþingistíðinda. (3016)
203. mál, kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Ég er nú einn af flm. þessarar till. og ætlaði mér raunar ekki að blanda mér í þessar umr. En hafandi hlýtt á ræðu hv. 3. þm. Reykv. get ég ekki orða bundist. Ég hélt satt að segja að það væri liðin tíð, en sú tíð er greinilega runnin upp að nýju, að menn kæmu hér í þennan ræðustól með jafnlítilfjörlega og með jafn — ég vil leyfa mér að segja — fávíslega útúrsnúninga og hv. þm. leyfði sér að viðhafa hér í sinni ræðu.
Hér er um að ræða till. sem felur í sér tvö meginatriði, í fyrsta lagi að árétta þá stefnu Íslendinga að á Íslandi verði ekki staðsett kjarnorkuvopn né eldflaugar sem slík vopn geta borið og í öðru lagi að kjósa sjö manna nefnd er kanni hugsanlega þátttöku Íslands í umr. um kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum. Ég gerðist meðflm. að þessari till. vegna þess að ég vil að þessi mál séu könnuð með opnum huga og þetta sé athugað fordómalaust. Ég er þeirrar skoðunar að einhliða yfirlýsing um kjarnorkuvopnalaust Ísland eða kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd hafi nákvæmlega ekkert gildi vegna þess að forsenda þess að slík yfirlýsing hafi gildi er að mínum dómi sú að þetta sé hluti af stærra svæði. Í öðru lagi verður slíkt kjarnorkuvopnalaust svæði að njóta þeirrar tryggingar að öruggt sé að stórveldin virði það. Það held ég að sé meginforsenda málsins. Með því erum við ekki eins og hv. þm. tönnlaðist hér á hvað eftir annað að afhenda Bandaríkjunum og Sovétríkjunum ákvörðunarvald í þessum efnum. Þetta kalla ég ómerkilega útúrsnúninga.
Við getum lýst því yfir eins oft og við viljum og með eins sterkum orðum og við viljum að Ísland og íslensk yfirráðasvæði skuli vera kjarnorkuvopnalaus. En hvaða tryggingu höfum við fyrir því að stórveldin fari ekki hér upp undir kálgarða og upp í kálgarða, eins og Sovétríkin gerðu nú í Svíþjóð og frægt er á sinni tíð, með kjarnorkuvopnaða kafbáta? Við höfum enga tryggingu fyrir því. Þess vegna er það mergurinn málsins að kjarnorkuveldin skuldbindi sig til að virða slíkt samkomulag.
Ég get ekki ímyndað mér að það þurfi að fara um þetta mörgum orðum. Ég hélt að þetta væri tiltölulega einfalt mál sem öllum væri ljóst. Það greiðir ekki fyrir samkomulagi í þessum efnum og það greiðir ekki fyrir framgangi þessa máls og samstöðu um það, sem allir vilja í þessum efnum, ef haft er uppi friðarspillandi tal eins og hér hefur verið haft með þeim útúrsnúningum sem ég hef áður rakið. Hvers vegna reyna menn ekki að sameinast um það sem er kjarni málsins í stað þess að hlaupa út og suður með ómerkilega útúrsnúninga? Mér finnst það vera meginatriði þessa máls að við tökum þátt í þessum umr. með opnum huga og könnum hvaða möguleikar eru á því að ná raunhæfum árangri í viðleitninni til að fara niður þennan vígbúnaðarkapphlaupsstiga sem menn eru að hlaupa upp og hafa verið að hlaupa upp. Er það ekki það sem við erum að reyna? Málflutningur af því tagi sem hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson viðhafði hér áðan greiðir ekki fyrir og hann eykur ekki á þann frið sem ætti að vera um þetta mál.