19.03.1985
Sameinað þing: 61. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3674 í B-deild Alþingistíðinda. (3018)

203. mál, kjarnorkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Ég þakka hæstv. forseta fyrir að leyfa mér að gera hér örstutta athugasemd. Verði þessi till. samþykkt óbreytt hér á Alþingi, 1. liður hennar látinn standa, þá er ég alveg reiðubúinn að fallast á það að ég kunni að hafa efnt hér til of ítarlegra og kannske óþarfa umræðna eins og ágæt flokkssystir mín sagði hér áðan. Ef það er virkilega þannig að hér sé svona breið samstaða í þinginu, eins og hv. 1. flm. og hv. þm. Eiður Guðnason gáfu hér til kynna í sínum ræðum, um allt orðalag þessarar till. þá ber að fagna því. Ég yrði fyrstur manna til að fagna því. Komi hins vegar í ljós að þessi till. komi úr nefnd þannig breytt að eingöngu standi eftir tillaga um að kjósa nefnd til þess að leggja til á hvern hátt Íslendingar taki þátt í umræðu um kjarnorkuvopnalaus Norðurlönd, er það staðfesting á því að það sem ég hef reifað hér í umr. hefur fyllilega átt rétt á sér. Við skulum því bíða og sjá hvað gerist þegar till. kemur úr nefnd áður en við fellum dóm um það hvaða ástæður eða ekki hafa verið til þess að reifa þetta mál hér. Auðvitað er fyrsta línan í þessari till. það sem hv. þm. Eiður Guðnason kallaði hér einhliða yfirlýsingu um það að á Íslandi verði ekki staðsett kjarnorkuvopn. (EG: Svo sem áður hefur verið yfirlýst.) Já, við skulum þá hafa það þannig og skoða það með hvaða hætti þetta kemur úr nefnd.

En ég vil svo að lokum, og það var aðalerindið mitt hingað, vekja athygli á hinu atriðinu sem ég spurði um í minni ræðu og var ekki síður tilefni til þess að ég stóð upp, hvers vegna undanskilin væri í þessari till. staðsetning flugvéla sem gætu borið slík vopn en eingöngu fjallað um eldflaugar. Rökstuddi ég þá spurningu með því að vísa til þess að í öllum hernaðaráætlunum, sem um þetta landsvæði fjalla, eru það fyrst og fremst flugvélar sem fjallað er um. Þær eru hér. Hvers vegna hafa tillögumenn, bæði flokkssystir mín ágæt og aðrir, undanskilið flugvélarnar í þessari upptalningu? Enginn einasti af þeim flm. sem hér töluðu svaraði þeirri spurningu. Það væri óskandi að þeir sem fordæmdu minn málflutning svo rækilega hér áðan notuðu tækifærið við seinni umr. þessa máls að svara þeirri spurningu.