20.03.1985
Efri deild: 51. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3700 í B-deild Alþingistíðinda. (3036)

98. mál, sóknargjöld

Þorv. Garðar Kristjánsson:

Hæstv. forseti. Frv. það, sem hér liggur frammi, hefur ekki borið að í neinni skyndingu. Það hefur verið lengi í farvatninu og það hefur verið litið svo á að það væri hið þarfasta mál að fá fram afgreiðslu þess á þessu þingi. Hér er um að ræða stjórnarfrv. og það hefur verið gengið út frá því að það væri vilji ríkisstj. að málið yrði afgreitt sem greiðlegast á þessu þingi. Það sem hér kom fram hjá hæstv. fjmrh. kemur því nokkuð óvænt og nokkuð seint miðað við forsögu málsins. Það sem varðar mestu nú er að þrátt fyrir þessar athugasemdir sem hér hafa komið fram verði ekki óeðlileg töf á afgreiðslu málsins.

Ég ætla ekki að fara að ræða hér nú þau atriði sem fram komu í grg. fjmrn. og hæstv. fjmrh. gerði hér grein fyrir. Mér virðist að hér sé fyrst og fremst um að ræða ýmis tæknileg atriði. Ég teldi að það væri eðlilegt og legg raunar til að að lokinni þessari umr. taki hv. menntmn. frv. aftur til meðferðar með tilliti til þess að líta á þær athugasemdir sem hér hafa komið fram um þessi tæknilegu atriði. Með þessum vinnubrögðum hygg ég að ekki þurfi að verða neinn sérstakur dráttur á afgreiðslu málsins þrátt fyrir þessar athugasemdir um tæknileg atriði sem fram hafa komið.

Fyrr í þessari umr. komu nokkrar athugasemdir fram við frv. sjálft og stefnu þess hvað varðar skattlagningu þá sem gert er ráð fyrir skv. frv. Hér á ég við það sem hv. 3. þm. Norðurl. v. tjáði sig um málið. Hv. þm. lagði áherslu á að hér væri um að ræða allverulega skattahækkun frá því sem er skv. gildandi lögum um sóknargjöld. Hv. þm. bar svo fram till. um sérstakan jöfnunarsjóð þar sem 10% af sóknargjöldum gengju til og yrði sjóðnum yrði ráðstafað með sérstökum hætti. Ég vil taka það fram að hv. 3. þm. Norðurl. v. virtist ekki vera andstæður þeirri stefnumörkun sem felst í þessu frv. um það að hverfa frá nefskattinum sem nú er og til þess fyrirkomulags sem frv. gerir ráð fyrir.

Þá er þetta atriði sem hér hefur verið virkið að að hér sé um verulega skatthækkun að ræða frá því sem nú er. Ég held að það verði að líta nánar á þetta mál áður en við sláum því föstu að með þessu frv. sé hætta á því að gengið sé nær skattþegnum landsins en skv. gildandi lögum. Ég hef hér í höndum yfirlit sem Gjaldheimtan í Reykjavík gerði þar sem annars vegar er um að ræða álögð sóknargjöld árið 1982 og hins vegar sóknargjöld sem orðið hefðu skv. frv. Ég sagði 1982. Af því má marka að það var ekki út í loftið sem ég sagði hér áðan að þetta mál er búið að eiga sér langan aðdraganda. Það er búinn að fara fram mjög vandaður undirbúningur að allri tillögugerð í þessu efni.

Skv. þessu yfirliti Gjaldheimtunnar námu sóknargjöld í Reykjavík 10 millj. 304 þús. Skv. frv. ef lagt hefði verið á 1.17% af útsvarsstofni hvers gjaldanda þá eru það 4 millj. 69 þús. En nú er ekki gert ráð fyrir að leggja á 0.t% heldur minnst 0.2% , þ. e. að þá mundi upphæðin hafa verið helmingi hærri, eða 8 millj. 138 þús. En það var lagt á 10.3 millj.

Nú þarf þetta frekari skýringa við. Skv. gildandi lögum nr. 36/1948, um sóknargjöld, er heimilt að leggja á 250 kr. á hvern gjaldþega. En 1982 var þessi heimild í Reykjavík ekki nýtt að fullu heldur voru lagðar 200 kr. á hvern gjaldþega. Það þýddi samtals, eins og ég sagði áðan, 10.3 millj. Ef heimildin hefði verið nýtt að fullu hefði það verið tæpar 13 millj. eða 12 millj. 880 þús. kr. Nú sagði ég að ef það væri skv. frv. notuð heimildin 0.2% hefði það numið samtals 8.1 millj. En sé heimildin notuð út í ystu æsar, þ. e. 0.4%, þá er það að sjálfsögðu helmingi hærri upphæð, eða 16.2 millj. kr. Heimildin skv. frv. notuð að fullu gefur 16.2 millj. kr. en heimildin skv. lögunum notuð að fullu gefur 12.9 millj. kr. Þarna er um hækkun að ræða ef heimildirnar eru notaðar að fullu.

En hér er þó ekki nema hálf sagan sögð og það bið ég hv. þm. að athuga. Skv. lögunum frá 1948, um sóknargjöld, er heimilt að bæta við eftir þörfum upphæð sóknargjaldanna. Og sú heimild er ótakmörkuð. Það eru engin takmörk í lögunum sjálfum hvað er hægt að leggja mikið álag á sóknargjaldið. En til þess að það verði þarf leyfi safnaðarfunda skv. gildandi lögum. En það eru engin takmörk fyrir því hvað safnaðarfundur getur ákveðið að gjaldið verði hátt.

Ef við tökum hins vegar frv. er allt öðru til að dreifa. Í 3. gr. frv. er tekið fram að ef tekjur sóknarkirkju hrökkva ekki skv. venjulegum álagningarreglum þá megi hækka sóknargjöld alli að tvöföldu. Það er sett hámark. Það er aldrei hægt að hækka þau meira en tvöfalt. Skv. gildandi lögum er hægt að margfalda þau. En það er ekki nóg með þetta, skv. gildandi lögum er það safnaðarfundur einn sem ræður því hve langt verður gengið. Skv. frv. er líka gert ráð fyrir að þetta sé lagt fyrir safnaðarfund en það er ekki nægilegt. Skv. frv. verður kirkjumrh. að samþykkja þetta.

Ég hygg að þegar þetta allt er athugað sé það hæpin fullyrðing, þó ekki sé meira sagt, að hér sé um alvarlega ágengni að ræða gagnvart skattborgurum eða þjóðkirkjumönnum. Þvert á móti eru með frv. settar hömlur og skilyrði, sem ekki þarf að fylgja skv. gildandi lögum, þegar það þarf að hækka þessa skattlagningu fram yfir það sem venjulegt er.

Ég skal láta þetta nægja um skattlagninguna sjálfa. En ég vék að því áðan að hv. 3. þm. Norðurl. v. hefur borið fram brtt. á þskj. 570 við þetta frv. á þá leið að af innheimtum sóknargjöldum skuli 10% lögð í jöfnunarsjóð og framlag úr jöfnunarsjóði skuli einkum ætluð sóknarkirkjum þar sem tekjur hrökkva ekki fyrir nauðsynlegum útgjöldum að dómi sóknarnefndar og sóknarprests. Þar segir og í till. þessari að sjóðurinn skuli vera í vörslu dóms- og kirkjumrn. og það rn. ákveði úthlutun úr sjóðnum að fengnum till. biskups og prófasts.

Það er glöggt hvað meint er með þessari tillögu. Ef sérstakar þarfir eru í einstökum sóknum þá á ekki að heimila því fólki sem þar býr að taka á sig meiri byrðar en venjulegt er til þess að hrinda í framkvæmd óskum þess, t. d. við kirkjubyggingu, heldur á að taka 10% af því sem þetta fólk greiðir og setja í jöfnunarsjóð. Ef svo ber undir þá kann að vera að þetta fólk fái eitthvað til baka og kannske meira en nemur þessum 10%.

Ég tel að ekki sé stefnt í rétta átt með þessum hætti. Ég tel að það sé höfuðatriði að sóknarmenn í hverri sókn geti sjálfir ákveðið sem mest um það hvað þeir vilja leggja á sig fyrir kirkju sína og að þeir fái að njóta þess sjálfir sem þeir leggja á sig. Það er höfuðatriði að hver kirkja fyrir sig eigi gjaldið sem á er lagt— eða hver söfnuður — og ráðstafi því í eigin þarfir. Þarna er grundvallarmismunur á. Skv. frv. er gert ráð fyrir að þessi skipun verði eins og alltaf hefur verið, að ég hygg, um þessi efni. Hver söfnuður fyrir sig hefur verið sinnar eigin gæfu smiður. Hver söfnuður fyrir sig hefur fengið að ráða hvað hann vildi á sig leggja og hann hefur fengið líka að njóta þess einn sem hann hefur lagt fram. Með tilliti til þessa þykir mér einsýnt að það beri að hafna brtt. hv. 3. þm. Norðurl. v. en samþykkja frv. eins og það er með brtt. þeim sem fram hafa komið frá menntmn. Lögð er áhersla á að það verði enginn óþarfadráttur á því að afgreiða málið og það verði milli umr. athugaðar þessar tæknilegu athugasemdir sem fram hafa komið.