20.03.1985
Neðri deild: 49. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3725 í B-deild Alþingistíðinda. (3074)

235. mál, Háskóli Íslands

Gunnar G. Schram:

Herra forseti. Það er ekki óeðlilegt að fram komi við umr. um þetta mál fsp. eins og þær sem fram voru bornar af hv. 3. þm. Vestf. Karvel Pálmasyni um það frv. til breytinga á lögum um Háskóla Íslands sem hér liggur fyrir. Seinna atriðið er nýmæli, en ég vildi víkja fyrst örfáum orðum að hinu fyrra.

Það er eðlilegt að í hugann komi, ekki síst þegar um er að ræða þm. sem sæti á í fjvn., hvort verið sé að stofna til aukinna útgjalda vegna þeirrar heimildar að flytja dósent í prófessorsstöðu án þess að slík heimild hafi verið fyrir hendi til þessa. Í því sambandi er ástæða til að vekja athygli á því að í lögunum um Háskóla Íslands, 6. mgr. 11. gr. þeirra laga frá 1979, er gert ráð fyrir því að heimilt sé að flytja lektor í dósentsstöðu skv. nánari ákvæðum í reglugerð.

Hér er verið að útvíkka þessa heimild og veita lagaheimild fyrir flutningi dósents í prófessorsstöðu. Af hverju er þetta gert? Það er einfaldlega gert til þess að veita mönnum viðurkenningu, umbun fyrir vel unnin störf, fyrir það að hafa sýnt sérstaka hæfni í störfum.

Ég vildi í þessu sambandi benda á að Háskólanum er ekki síst nauðsyn á því að um slíka viðurkenningu geti verið að ræða. Ég ætla ekki að fara á þessum stað eða þessari stundu að ræða launamál háskólakennara eða háskólamenntaðra manna í landinu almennt. Þau eru það mikið rædd í þjóðfélaginu um þessar mundir. En hins vegar minni ég á þá staðreynd að kennslu við Háskóla Íslands er þannig háttað að helmingur hennar er inntur af hendi af mönnum utan Háskólans, þ. e. stundakennurum.

Hvað segir þessi einfalda staðreynd okkur? Hún segir okkur einfaldlega hvernig hefur verið búið að æðstu menntastofnun þjóðarinnar á liðnum árum, að ekki skuli hafa fengist fjárveitingar til að ráða fasta kennara í meira mæli en þetta gefur til kynna. Á sama tíma er að þeirri stofnun þannig búið skv. lögum að á að giska einn menntaskóli á ári bætist við nemendafjölda sem nú er kominn þó nokkuð á fimmta þúsund manna. Aðgangurinn er ótakmarkaður að skólanum án þess að starfsliði fjölgi nokkuð í hlutfalli við það. Hér er gerð tilraun til að leiðrétta og að búa betur að því fasta starfsliði sem fyrir hendi er við skólann. Það er æskilegt að menn utan skólans komi þangað og kenni sem stundakennarar, en ekki í þeim mikla mæli sem nú tíðkast.

Það er rétt, sem hv. þm. Karvel Pálmason nefndi, og ég held að ekki sé rétt að draga dul á það, að þetta getur haft einhvern kostnað í för með sér. Það leiðir af sjálfu sér að kennari sem fluttur er úr dósentsembætti í prófessorsembætti tekur prófessorslaun. Á þeim stöðuheitum er sennilega þriggja eða fjögurra launaflokka munur. Af þessu hlýst því nokkur kostnaður. Ástæðulaust er að draga dul á það.

Þetta framgangskerfi, sem hér er verið að lögfesta, er þekkt í ýmsum nágrannalöndum. Að mörgu leyti er það eðlilegt af þeim ástæðum sem ég hef nefnt, en þó aðeins innan þeirra þröngu marka sem réttilega er gert ráð fyrir í reglugerð Háskólans þegar verið er að flytja mann úr lektorsstöðu upp í dósentsstöðu. Dómnefnd verður jafnan að dæma um hæfni mannsins og það verður þá að byggjast á persónulegu hæfi hans til þeirra starfa sem hann gegnir. Það er skilyrði fyrir því að svona kerfi geti gengið að ekki verði um sjálfkrafa tröppugang að ræða án þess að verðleikar séu fyrir hendi, en þar sem á sama hátt verður um hnútana búið hvað þetta varðar og er í lögum og reglugerð varðandi lektor sem fer upp í dósentsstöðu held ég að fyrir þessu sé allvel séð.

Hvað hitt atriðið varðar, þá er þar um nýmæli að ræða. Það er einnig mjög eðlilegt að menn velti því fyrir sér, eins og hv. 3. þm. Vestf., hvort um óeðlilega samkeppni sé að ræða, bæði vegna fjármagnsþáttarins, en hann nefndi að hér væri ríkisfé komið inn í atvinnustarfsemi sem keppti við einkageirann, og kannske ekki síður hins, að hér væri um skattfrjálsan rekstur að ræða sem einnig skekkti mjög samkeppnisstöðuna. Allt þetta getur skeð. Það getur átt sér stað að hér verði um þá samkeppni að ræða, svo sem á sviði örtölvuframleiðslu eða iðnaðar, sem einkafyrirtækjunum sé óhagstæð. Ástæðulaust er að líta fram hjá því, að það geti átt sér stað. Ég held hins vegar að kostirnir við þetta fyrirkomulag séu svo miklu meiri að þeir yfirgnæfi þá hugsanlegu ókosti sem um getur verið að ræða í þessu efni.

Ekki aðeins Háskóla Íslands, heldur háskólum almennt í Evrópu hefur verið legið mjög á hálsi á undanförnum árum og áratugum fyrir að lifa í fílabeinsturni. Það er margt og mikið rétt í þeim fullyrðingum að þeir séu rykfallnar fræðistofnanir í sáralitlum tengslum við mannlífið eða atvinnulífið, við efnahag og framfarir þeirra þjóða sem þeir starfa í. Þetta hefur að vissu leyti verið alveg rétt hvað Háskóla Íslands snertir. Hann og starfsmenn hans hafa verið furðu einangraðir í ekki stærra þjóðfélagi en íslenska þjóðfélagið er. Með 5. gr. þessa frv. er gerð tilraun til að brjótast út úr þessari herkví, ef svo mætti segja, til að tengja Háskólann við atvinnulífið í landinu. Reynt er að gera það á þann hátt að sú starfsemi, fyrst og fremst í raunvísindadeild og verkfræðideild og öðrum tengdum deildum, sem þar fer fram, nýtist ekki aðeins til kennslu stúdenta, heldur komi hún atvinnulífinu almennt til góða.

Þetta á sér nú þegar stað í nokkrum mæli, en það vill oft gleymast. stofnun Háskólans í lyfjafræðum hefur verulegar tekjur fyrir þjónustustörf sín á því sviði. Við getum nefnt tilraunastofnunina á Keldum sem er háskólastofnun er gegnir mjög mikilvægu hlutverki, ekki síst í þágu landbúnaðarins. Við getum tekið annað dæmi, sem er reyndar dæmi um samkeppni og hefur nýlega komið til skjalanna í rekstri Háskólans. Skólinn festi kaup á lyfjabúð hér úti á næsta götuhorni og rekur nú Reykjavíkurapótek í samkeppni við aðrar lyfjabúðir í borginni. Þannig hefur Háskólinn þegar í nokkrum mæli haslað sér þarna völl.

Tilgangurinn með þessari frvgr. er fyrst og fremst að nýta hugmyndir á nýjum sviðum raunvísinda, ekki síst á sviði hátækniiðnaðar, svo sem á sviði tölvuiðnaðar og fjarskipta ýmiss konar. Ég minni á hugmyndir Þorgeirs Pálssonar dósents um staðsetningarkerfi fyrir fiskiskip umhverfis landið sem eru ekki aðeins ákaflega byltingarkenndar, heldur það frumlegar að þær eru raunar einsdæmi á þessu sviði í veröldinni. Hann vinnur nú að því með stuðningi stjórnvalda að hanna slíkt kerfi fyrir íslensk fiskiskip og ég þarf ekki að nefna hve mikið öryggisatriði það er fyrir íslenska sjómenn.

Líftæknina hefur oft borið á góma hér. Sumir þm. hafa dregið í efa að hún eigi mikla framtíð fyrir sér á allra næstu árum. Aðrir eru hins vegar á öndverðum meiði. En hvað er líftækni? Sá þáttur hennar sem að okkur snýr er fyrst og fremst hvernig við getum fyrir tilstilli þessarar tækni unnið verðmætar vörur úr frumhráefnum okkar bæði til sjós og lands. Sú þekking á líftækni sem fyrir hendi er í íslensku þjóðfélagi er fyrst og fremst saman komin við Háskólann og stofnanir hans.

Hér er um það að ræða að þeir menn sem yfir þessari þekkingu búa á vegum Háskólans og fyrir tilstilli hans stofni eða taki þátt í félögum í atvinnulífinu með öðrum til að þróa ýmiss konar framleiðslu með það fyrir augum að koma þessari þekkingu í verð. Það er alveg ástæðulaust að draga dul á að sú er ein meginhugsunin á bak við þetta — að skapa tekjur. Jafnvel þó að um einhverja samkeppni geti verið að ræða við félög sem fyrir hendi eru í þjóðfélaginu held ég að við ættum að fagna því að þarna bætist ekki aðeins við liðsinni manna, sem hafa hingað til verið að miklu leyti úr tengslum við atvinnulífið, heldur einnig fjármagn.

Hvaðan kemur fjármagnið? Það kemur ekki beint úr ríkissjóði nema þá fyrir tilstilli fjvn. Það væri þó að mörgu leyti mjög æskilegt, ef um góðar hugmyndir er að ræða, að það fengist þaðan, en þá fær hv. 3. þm. Vestf. og aðrir fjvn.-menn að grandskoða þær áætlanir. Það fjármagn sem ætlað er til þróunarmiðstöðvar Háskólans á að koma úr sjóðum Háskólans sjálfs, eins og fram kemur í grg. menntmn. Nd. Fyrst og fremst er þá um háskólasjóðinn að tefla, en síðan aðra sérsjóði og þá vísinda- og rannsóknastyrki sem skólanum áskotnast árlega og þá erlendis frá fyrst og fremst. Hér yrði því ekki um beinar fjárveitingar úr ríkissjóði að ræða nema þá á fjárlögum. Fjármagnsuppsprettan er sú sem ég nefndi. Að þessu leyti held ég að þessi hugmynd gæti mjög gagnast bæði Háskólanum og þjóðfélaginu í heild.

Við höfum talað mikið á þingi í vetur og ótal ráðstefnur hafa verið haldnar um nauðsyn þess að við göngum inn í nýja öld í atvinnumálum, inn í upplýsingaöldina svokölluðu — að við förum að treysta meira á hugvitið en á vinnu handanna svo sem verið hefur í fortíðinni. Það er prýðilegt og nauðsynlegt að tala um eflingu nýrra atvinnugreina, nýtingu þekkingar og tækni í þágu betra mannlífs á þessu landi.

En við gerum það ekki með orðunum einum saman. Við verðum að grípa þar til verka. Athafnirnar eru það sem máli skiptir. Ég held að hér sé ein leiðin fær til, að ná verulegum árangri á þeim sviðum sem við hingað til höfum fyrst og fremst talað um. Þrátt fyrir hugsanlega samkeppni og í því trausti að þessi háskólamiðstöð leggi ekki út í samkeppni við þá atvinnustarfsemi sem fyrir hendi er í landinu hygg ég að óhætt sé að greiða þessum tillögum atkvæði.