21.03.1985
Sameinað þing: 62. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3756 í B-deild Alþingistíðinda. (3094)
206. mál, nýjar hernaðarratsjárstöðvar á Íslandi
Páll Pétursson:
Herra forseti. Ég tel rétt að hér komi fram persónuleg afstaða mín til byggingar umræddra ratsjárstöðva. Ég tel ekki að hér sé um mannvirki að ræða sem stofni í beinan lífsháska því fólki sem næst þeim býr. Ég viðurkenni að Íslendingar geta vegna flugumferðar haft gagn af hugsanlegum ratsjárstöðvum enda þótt gildi þeirra fyrir íslenska flugumferð hafi í mörgum tilfellum verið mjög orðum aukið í þeirri umræðu sem í gangi hefur verið.
Ratsjárstöðvar þessar eru tvímælalaust hernaðarmannvirki kostaðar af vígbúnaðarfé. Ég er andvígur auknum hernaðarumsvifum á Íslandi en það er ekki meiri hluti fyrir því á Alþingi að láta herinn fara að sinni og því verðum við að búa við óbreytt ástand. Ég get ekki fallist á aukin hernaðarumsvif, ég tel að við verðum skv. áðursögðu að búa við óbreytt ástand, en ég get ekki fallist á aukin hernaðarumsvif. Ég tel að þau áform sem uppi hafa verið um stóraukin hernaðarumsvif á Íslandi séu fráleit og er ég þá ekki einungis að tala um þessar ratsjárstöðvar.
Annað atriði mótar einnig afstöðu mína. Það er verulegur hópur þess fólks sem næst býr þeim stöðum þar sem þessum fyrirhuguðu mannvirkjum er ætlað að rísa, sem er andvígur byggingu þeirra. Ég vil ekki standa að byggingu mannvirkja sem eru óvelkomin í þeim byggðarlögum þar sem þau eru fyrirhuguð. Ég vil ekki nauðga fólki til að taka við framkvæmdum sem því eru á móti skapi. Þess vegna mun ég t. d. ekki samþykkja álver við Eyjafjörð vegna þess að það er verulegur hópur fólks sem ég tel að verði að taka tillit til og ekki vill þessa mannvirkjagerð. Ég er ekki endilega að tala um meiri hluta, ég þekki ekki svo nákvæmlega hjörtun og nýrun í þessu fólki að ég viti hvar meiri hlutinn liggur. En ég veit um verulegan hóp sem er þessu andvígur og ég tel að sjónarmið þessa fólks verði að virða. Ég vil taka tillit til þess. Þeir sem langar í þessi mannvirki verða þá heldur að sætta sig við óbreytt ástand. Þess vegna er niðurstaða mín, herra forseti, að þessar ratsjárstöðvar eigi ekki að reisa.
Ég vil taka það fram til að forðast allan misskilning að hér er ég ekki endilega að túlka skoðun alls þingflokks framsóknarmanna, ég er hér að skýra frá persónulegri afstöðu minni.