21.03.1985
Sameinað þing: 62. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3758 í B-deild Alþingistíðinda. (3096)

206. mál, nýjar hernaðarratsjárstöðvar á Íslandi

Björn Dagbjartsson:

Herra forseti. Ég tel að það hafi komið fram, sérstaklega hjá hæstv. utanrrh., bæði í þessari umr. og reyndar ekki síður á almennum fundi sem haldinn var á Þórshöfn fyrir líklega þrem vikum, hversu fáránlegt er að telja þessi mannvirki, sem hér er verið að ræða um, þessar ratsjárstöðvar, til vígbúnaðarmannvirkja. Þetta er furðulegur þráhyggjumálflutningur Alþb. og fylgdarkvenna þess sem telja sig meira friðelskandi en annað fólk. Mér finnst reynsla mín hér í vetur hafa bent til þess að svo sé ekki í þeim hóp sem hér á sæti. Við skulum láta það liggja á milli hluta. En það gefst einfaldlega ekkert tilefni fyrir fólkið til að tala um vígbúnaðarmannvirki. Þetta eru mikilvæg eftirlitsog öryggistæki fyrir okkur, sett upp í stað annarra úreltra og úr sér genginna. Ég skil ekki hvers vegna hv. þm. Steingrímur Sigfússon er á móti meira samgönguöryggi fyrir sína byggð, á móti eftirlitskerfi fyrir óboðna gesti sem læðast að. Við höfum heyrt að sumir vilji hvorki heyra slíka gesti né sjá, en við viljum heyra þá og sjá.

Ég vísa því algerlega á bug að einhver sérstök meirihlutaandstaða við málið sé heima fyrir á Langanesi. Ég tel þvert á móti að þar líti menn til flugöryggis og öryggis á sjó. Ég vísa í því sambandi til viðræðna minna við fulltrúa nýstofnaðs félags áhugamanna um vestræna samvinnu á Norðausturlandi. Þeim fjölgar óðum, hv. þm.

Ég vil hér segja lítillega frá þeim aðferðum sem notaðar voru til að safna undirskriftum gegn byggingu ratsjárstöðvar á Langanesi. Í viðtali við Íslending á Akureyri segir einn heimamaður, Björgvin Þóroddsson í Garði, svo, með leyfi forseta: að gengið hefði verið nokkuð fast eftir því að skrifað væri undir. Þegar hann sjálfur hefði neitað að skrifa undir hefði hann strax verið spurður: „Vilt þú heldur að börnin þín farist í kjarnorkustríði en að þau komist inn á umráðasvæði Rússa?“ Hann sagði það óviðkunnanlegt þegar menn væru krafðir svara við svona spurningum að allri fjölskyldunni áheyrandi. — Ég læt þm. eftir að dæma um hvers konar málflutningur þetta er, hvers lags meðul menn nota til framdráttar sínum málstað í auglýsingaskyni.

Flm. till. vitnuðu í að forsrh. hefði sagt að ratsjárstöðvar yrðu ekki settar upp í andstöðu við heimamenn. Nú sagði ég það og stend við það að um meiri hluta heimamanna gegn byggingu ratsjárstöðvar á Langanesi væri ekki að ræða. Hins vegar kom mér nokkuð á óvart persónuleg afstaða hv. þm. Páls Péturssonar. Mér skildist á málflutningi hans að ef yfirleitt væri einhver andstaða við framkvæmd heima í héraði skyldi hún eigi eiga sér stað. Ég veit ekki hvernig þm. Framsfl. líta á þetta mál eða þessi mál yfirleitt. Það væri fróðlegt ,að heyra frá þm. framsóknarmanna sem hér eru staddir, að vísu ekki margir, hvort þeir hafa á því skoðun. Ég frétti af því að hv. þm. Stefán Valgeirsson hefði flutt ágæta ræðu á fundi á Þórshöfn eftir jólin og lýst sig samþykkan þeirri framkvæmd sem hér er um að ræða, vegna þess fyrst og fremst að hún hefði í för með sér svo mikið öryggi fyrir flug. Hann nefndi í því sambandi mjög áhrifamikið dæmi. Ég ítreka að það væri fróðlegt að vita hvað meiri hluti þingflokks Framsfl. vill í þessu sambandi.

Ég verð að segja það fyrir mig að mér finnst óþægilegt að persónulega séu einstakir þm. flokksins og það í vaxandi mæli andvígir hinum og þessum málum sem ráðh. Sjálfstfl. eru að undirbúa eða flytja hér í þingi. Ég sé ekki annað en að við sjálfstæðismenn verðum að fara að skoða hug okkar, hvort við getum ekki leyst þá undan þessari þrautagöngu strax. Við þurfum ekki að bíða með það til haustsins eins og þeir ætla. (ÓRG: Þú ert eindregið studdur í það.) Ég þarf ekki að leita eftir stuðningi Alþb. við það. (Gripið fram í: Er búið að bóka fundinn?) Ég vil ekki hafa fleiri orð um þetta að svo stöddu.