21.03.1985
Sameinað þing: 62. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3772 í B-deild Alþingistíðinda. (3102)

206. mál, nýjar hernaðarratsjárstöðvar á Íslandi

Ólafur Ragnar Grímsson:

Herra forseti. Það hefur verið mjög fróðlegt að hlusta á þessar umr. Þær hafa verið upp og ofan. Þó held ég að það verði ekki hjá því komist að mótmæla endurteknum málflutningi hv. þm. Eiðs Guðnasonar að Alþb. fylgi utanríkisstefnu Sovétríkjanna. Ef blærinn og innihaldið í umr. hér á Alþingi er af þessu tagi er kannske ekki von annað en almenningur eigi dálítið erfitt með að átta sig á því hvað menn eiga við, nema þá að mönnum sé í raun og veru alveg nákvæmlega sama hvaða vitleysu þeir segja, það séu engin takmörk fyrir því hvað menn geta leyft sér að leggjast lágt í áróðrinum. Röksemdafærsla hv. þm. var þessi: Alþb. hefur sem stefnu: Ísland úr NATO — herinn burt. Það er líka stefna Sovétríkjanna. Ergo: Alþb. er fylgjandi utanríkisstefnu Sovétríkjanna. (EG: Það sagði ég nú ekki með þeim orðum, hv. þm.) Ja, það sagði þm. og endurtók m. a. s. í seinni ræðu sinni. Það var ástæðan fyrir því að ég kvaddi mér hljóðs, en ekki vangaveltur um færanlegar radarstöðvar á fjallstindum eins og þm. hélt að hefði verið ástæðan.

Ég ætla að fara með nokkrar svipaðar fullyrðingar í sama dúr. Alþjóðasamband jafnaðarmanna er andvígt íhlutun Bandaríkjanna í málefni Nicaragua. Það eru Sovétríkin líka. Ergo skv. málflutningi hv. þm. Eiðs Guðnasonar: Alþjóðasamband jafnaðannanna er fylgjandi utanríkisstefnu Sovétríkjanna. (EG: Ég sagði utanríkisstefnu Sovétríkjanna varðandi Ísland.) Varðandi Ísland. Allt í lagi. Þá skulum við taka annað dæmi.

Utanríkisstefna Ankers Jörgensens varðandi Danmörku er að Danmörk skuli vera kjarnorkuvopnalaust svæði. Það er líka stefna Sovétríkjanna að Danmörk eigi að vera kjarnorkuvopnalaust svæði. Ergo: Anker Jörgensen er fylgjandi utanríkisstefnu Sovétríkjanna.

Við skulum taka annað dæmi: Olof Palme og jafnaðarmannaflokkur Svíþjóðar eru fylgjandi því að Svíþjóð verði liður í kjarnorkuvopnalausu svæði. Það er líka stefna Sovétríkjanna. Með sömu röksemdafærslu eru Olof Palme og jafnaðarmannaflokkur Svíþjóðar fylgjandi utanríkisstefnu Sovétríkjanna.

Það er alveg sama hvort verið er að tala um almenn mál annars staðar í heiminum eins og Nicaragua eða málefni þess lands sem stjórnmálaleiðtoginn tilheyrir, í þessu tilfelli Danmörk og Svíþjóð. Það eru til ýmis tilvik þar sem Sovétríkin eru á sama máli og forustumenn jafnaðarmanna á Norðurlöndum sem hv. þm. Eiður Guðnason telur skoðana- og flokksbræður sína og stundar mjög náið stjórnmálasamstarf við. Ég veit ekki betur en hann hafi m. a. stutt þá skoðun Ankers Jörgensens og Olof Palme að Norðurlönd eigi að vera kjarnorkuvopnalaust svæði. Niðurstaðan af þessari röksemdafærslu gæti því verið sú að hv. þm. Eiður Guðnason væri fylgjandi utanríkisstefnu Sovétríkjanna. Það kannske sýnir best hvað röksemdafærslan er fáránleg.

Við getum leyft okkur ýmislegt í umr. á Alþingi og gerum það og eiga ýmsir sök í þeim efnum. En ég held að það hafi aldrei hvarflað að okkur í Alþb. að segja um Eið Guðnason og ýmsa þm. Alþfl. að þeir væru fylgjandi utanríkisstefnu Bandaríkjanna þó við vitum að í ýmsum tilvikum fara skoðanir þeirra saman um einstök efni, sérstaklega varðandi málefni Íslands. Það er kannske ástæða til að biðja menn að hugsa alvarlega um hvað þeir eru að segja hér í þingsalnum, þegar menn eru að endurtaka svona fullyrðingar. Látum vera þó að það detti kannske út úr mönnum einstaka sinnum í hita umr. eins og hefur dottið út úr hv. þm. Eyjólfi Konráð Jónssyni stundum hér í ræðustól, en þegar menn endurtaka það er greinilega eitthvað annað að baki. Þess vegna tel ég fulla ástæðu til að láta það koma hér fram að Alþb. er andvígt fjölmörgum atriðum í utanríkisstefnu Sovétríkjanna, hefur verið og er. Alþb. hefur gagnrýnt fjölmarga þætti í utanríkisstefnu Sovétríkjanna (Gripið fram í: Og fordæmt.) og fordæmt og barist gegn henni með margvíslegum hætti — (Gripið fram í: Hvað með Guðrúnu Helgadóttur?) Ég veit ekki hvort það breytir einhverju hvar hún er í þessum efnum — hér í þingsölum, m. a. vegna atburðanna í Póllandi á sínum tíma. Ég veit að hv. þm. Eyjólfur Konráð man vel eftir innrásinni í Tékkóslóvakíu, Afghanistan, ástandinu í Austur-Evrópu, mannréttindamálum í Sovétríkjunum og fjölmörgu öðru. Það liggur alveg ljóst fyrir að Alþb. hefur hvað eftir annað barist gegn og fordæmt utanríkisstefnu Sovétríkjanna og enn fremur fjölmargt í innanríkisstefnu Sovétríkjanna. Það er kannske ástæða til, ef menn eru virkilega svona blankir í þessum málum, að láta það koma fram mjög skýrt að Alþb. er einnig þeirrar skoðunar að Íslendingar eigi samleið með þingræðislegum lýðræðisríkjum í Vestur-Evrópu í utanríkismálum. Það liggur alveg ljóst fyrir að það er okkar grundvallarafstaða. Hins vegar eru sum þessara ríkja í Atlantshafsbandalaginu og sum ekki. Lýðræðis- og þingræðisríkið Svíþjóð er það ekki. Lýðræðis- og þingræðisríkið Írland er það ekki. Ekki heldur Austurríki og ekki Sviss. Þannig mætti telja áfram. Það er því enginn samnefnari á milli þess að vera lýðræðis- og þingræðisríki og að vera í NATO. Það er söguleg staðreynd. Menn geta verið það og verið ekki í NATO og menn geta líka verið í NATO án þess að vera þingræðis- og lýðræðisríki, eins og Portúgal sýndi um áraraðir, Tyrkland hefur sýnt hvað eftir annað og Grikkland hefur sýnt um ákveðið skeið. Ég held við Íslendingar þurfum á ýmsu öðru að halda í umræðum um utanríkismál okkar en reyna að núa hver öðrum upp úr því á algerlega röngum forsendum og eingöngu í hreinu áróðursskyni að við séum einhverjir útsendarar eða fylgjendur utanríkisstefnu annarra ríkja, hvað þá heldur þegar um stórveldin er að ræða. Það er fátt nauðsynlegra fyrir smáþjóð en reyna að ná einhverri lágmarkssamstöðu um sín utanríkismál. Það hafa hins vegar verið hér harðar deilur um aðild að Atlantshafsbandalaginu og veru bandaríska hersins hér. Þær eru af ýmsum ástæðum og ætla ég ekki að rekja það hér, enda er enginn tími til þess, heldur eingöngu að nota þetta tækifæri, því að hv. þm. Eiður Guðnason endurtók í seinni ræðu sinni þessar yfirlýsingar, og taka það skýrt og afdráttarlaust fram, svo að þm. þurfi aldrei aftur að koma hér upp í ræðustól eða neins staðar annars staðar, nema menn vilji vísvitandi gera sig að þeim ómerkingi að halda fram hlutum gegn betri vitund, að Alþb. er andvígt veigamiklum þáttum í utanríkisstefnu Sovétríkjanna, hefur barist hart gegn þeim og gagnrýnt það. Alþb. er andvígt veigamiklum þáttum í innanríkisstefnu og svokallaðri mannréttindastefnu innan Sovétríkjanna, hefur gagnrýnt það og barist gegn því mjög harðlega. Og Alþb. er þeirrar skoðunar að Íslendingar eigi að hafa samleið með lýðræðis- og þingræðisríkjum á Vesturlöndum. Þetta er skýrt, þetta er ljóst, hefur verið og er.