25.03.1985
Efri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3794 í B-deild Alþingistíðinda. (3128)
331. mál, náttúruvernd
Eiður Guðnason:
Virðulegi forseti. Hv. 3. þm. Suðurl. flutti hér ræðu með sínum sérkennilega hætti. Hann telur sig einn af þeim mönnum sem vilja veg og virðingu íslenskrar tungu sem mestan. Hann kom hér og notaði orðið héraskapur. Ég er ansi hræddur um að það sé ekki góð íslenska. Það orð er ekki til í orðabók Menningarsjóðs og ég hef raunar aldrei heyrt það áður. Það skyldi þó aldrei vera danska?
Hins vegar er til á íslensku orðið „héralegur“ og það vita líklega allir hvað þýðir, nema kannske hv. 3. þm. Suðurl.