25.03.1985
Efri deild: 52. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3797 í B-deild Alþingistíðinda. (3134)

217. mál, Seðlabanki Íslands

Frsm. minni hl. (Jón Kristjánsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir áliti minni hl. fjh.- og viðskn. um frv. til laga um breytingu á lögum nr. 10 frá 29. mars 1961, um Seðlabanka Íslands. Nefndin klofnaði í afstöðu sinni til frv. og mun ég gera grein fyrir ástæðum þess að svo varð, en auk mín skrifar undir álit minni hl. hv. 11. landsk. þm. Egill Jónsson. Álit minni hl. fjh.- og viðskn. er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Nefndin hefur rætt þetta mál ítarlega og fengið til viðtals seðlabankastjóra, formann sambands viðskiptabankanna, sem jafnframt er bankastjóri Landsbankans, og bankastjóra annarra ríkisbanka, Búnaðarbankans og Útvegsbankans.

Meðan nefndin vann að málinu hefur ríkisstj., í samráði við Seðlabanka Íslands, ákveðið að endurkaup afurðalána færist til viðskiptabankanna og bindiskylda lækkuð vegna þessara breytinga úr 28% í 18%. Jafnframt hefur ríkisstj. lýst því yfir að frá 1. maí geti bændur fengið innlagða mjólk greidda að fullu innan mánaðar og sláturafurðir um áramót og verði þetta m. a. gert kleift með endurskoðun á reglum um veitingu afurðalána.

Eðlilegt er að reglur Seðlabankans um bindingu sparifjár verði teknar til endurskoðunar þegar séð er hver áhrif þeirra breytinga verða sem nú standa yfir. Í ljósi þess leggja undirritaðir nm. til að frv. verði vísað til ríkisstj.“

Heimild Seðlabankans til bindingar sparifjár er að hluta til ætluð til að mæta því hlutverki sem bankinn hefur haft til þess að annast endurkaup afurðalána til atvinnuveganna. En á hinn bóginn er hér um að ræða almennt tæki til hagstjórnar, að stjórna peningamagni í umferð á hverjum tíma og draga úr áhrifum vegna innstreymis erlends fjármagns, vegna erlendrar lántöku m. a., og miðla fé á milli innlánsstofnana.

Nú hefur bindiskyldan verið lækkuð til að mæta því nýja hlutverki viðskiptabankanna að sjá um endurkaup afurðalána, en eftir stendur bindiskylda upp á 18%. Það hefur komið greinilega fram við umfjöllun í nefndinni að miðað við núverandi viðskipti atvinnuveganna við einstaka banka er það mjög mismunandi hverjar kvaðir viðskiptabankarnir verða að taka á sig í endurkaupum. Þetta er svo afgerandi atriði að Seðlabankinn hefur ákveðið að semja við lánastofnanir, sem fá fé losað vegna bindiskyldunnar og þurfa ekki að nýta það vegna afurðalánanna, að þeir fái þetta fé greitt út í áföngum. Þetta er m. a. gert vegna þeirra þensluáhrifa sem það hefði í för með sér að losa um þetta fjármagn í einu vetfangi og til þess að miðla á milli bankastofnana að þessu leyti.

Það kann að vera að einstakir bankar muni geta sinnt betur endurkaupum með því að bindiskyldan sé lækkuð frá 1. júní í 10% eins og meiri hl. fjh.- og viðskn. leggur til. T. d. mundi það leysa vanda Búnaðarbankans að þessu leyti eins og fram kemur í áliti meiri hl. fjh.- og viðskn. Hins vegar mundi það hafa í för með sér að nokkurt fjármagn mundi losna hjá öðrum bönkum sem hafa minni skyldur að þessu leyti og engin trygging er fyrir því að það fé fari til atvinnuuppbyggingar og til þess að leysa vanda húsbyggjenda en ekki til almennrar neyslu í þjóðfélaginu sem mundi auka þann viðskiptahalla sem við eigum við að stríða. Það er þess vegna ætlunin að Seðlabankinn taki enn að sér að jafna á milli bankastofnana meðan þessi breyting er að ganga yfir. Seðlabankinn ber enn skyldur í sambandi við endurkaup afurðalánanna að þessu leyti auk þess sem Seðlabankinn hefur skyldur að því leyti að greiða fyrir þeim breytingum sem fyrirhugaðar eru í sambandi við útborgun landbúnaðarafurða. Minni hl. fjh.- og viðskn. þykir því rökrétt að vísa frv. til ríkisstj. og verði ákvæðin um bindiskyldu endurskoðuð þegar sýnt er hver áhrif þeirra breytinga verða sem nú standa yfir.

Ég mun leiða hjá mér alla hagfræðilega umræðu um peningamagn í umferð á þessu stigi því að mín skoðun er sú að meginatriðið í efnahagslífinu sé að skapa framleiðsluatvinnuvegunum þau skilyrði að þeir séu arðbærir, fyrirtækin í þeim séu eftirsótt sem viðskiptavinir fyrir bankana og innlend sparifjármyndun verði með þeim hætti að innlent fjármagn standi undir útlánum til þeirra.