25.03.1985
Neðri deild: 51. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 3804 í B-deild Alþingistíðinda. (3150)
347. mál, aðgerðir til að bæta hag sjómanna
Hjörleifur Guttormsson:
Herra forseti. Ég þakka hæstv. sjútvrh. fyrir þær upplýsingar sem hann hefur gefið. Við sjáum að ástæðan fyrir þessu er sú reglugerð sem hann hefur sett með stoð í lögum um breytingar á lögum um fiskveiðilandhelgi Íslands. Ég vil rifja það hér upp að Alþb. beitti sér sérstaklega á móti því að smábátar féllu undir þá stjórnun sem heimild var veitt til skv. þessari breytingu á lögum. Ég tel að í ljósi þeirra aflabragða sem verið hafa undanfarið og þar sem nú horfir mun vænlegar varðandi sjávarfang en verið hefur á undanförnum árum, þá hefði verið eðlilegt að breyta þessari reglugerð og undanþiggja smábátana, í öllu falli að setja þá ekki undir strangari takmarkanir en verið hefur. Ég bendi á að þó að einstakar verstöðvar hafi fengið góðan afla á smábáta, þá eru einnig verstöðvar sem ekki hafa notið slíks fram til þessa. Þetta kemur því mjög misjafnlega niður á einstökum verstöðvum og sýnir okkur hvað það er óeðlileg skipan að hafa þessa bátastærð undir heildarkvóta með þeirri mismunun sem slíku fylgir.