25.10.1984
Sameinað þing: 10. fundur, 107. löggjafarþing.
Sjá dálk 511 í B-deild Alþingistíðinda. (317)

3. mál, umsvif erlendra sendiráða

Árni Johnsen:

Herra forseti. Þegar rætt er um breytingu á reglum varðandi umsvif erlendra sendiráða á Íslandi þykir mér rétt að vekja athygli á einum þætti sem lengi hefur vakið undrun. Það eru ágætar póstsamgöngur milli Íslands og annarra landa, svona að öllu jöfnu þegar verkföll hamla ekki, en um langt árabil hefur sovéska sendiráðið pantað vikulega a.m.k. 3–6 sæti í farþegavélum Flugleiða milli Kaupmannahafnar og Íslands. (Gripið fram í: Fínt fyrir Flugleiðir.) Jú, gott fyrir Flugleiðir. Þessi sæti eru setin tveimur mönnum, eftirlitsmönnum, og síðan póstpokum sem settir eru í sætin og þeirra vandlega gætt. Þetta á sér stað a.m.k. einu sinni í viku og sætin eru skráð á Mr. Bagets. Þetta hefur átt sér stað um langt árabil. Þessir ágætu eftirlitsmenn fara inn í flugvélina langt á undan öðrum og fara síðastir frá borði. Ef vélin tefst, eins og borið hefur við í öðrum flughöfnum á leiðinni, þá neita þessir ágætu menn að yfirgefa vélina.

Það er óhemjumikill póstur sem fer til þessara 37 starfsmanna erlenda sendiráðsins samkvæmt upplýsingum hv. flutningsmanns till. og ég vildi benda á að það væri ástæða til að setja einnig reglu um að þarna væri þó a.m.k. gerð skoðun, eins og á sér stað í öðrum póstflutningum til landsins, og kannað hvað er í þessum tveimur til fjórum sætum skráðum á Mr. Bagets.